Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 3 Fréttir Bylgjan næst misvel utan Reykjavíkur Útsendingar nýju útvarpsstöðvar- innar, Bylgjunnar, virðast nást vel á svæðinu við sunnanverðan Faxaflóa, frá Akranesi til Suðumesja, ef undan er skilin Mosfellssveit. Bylgjan næst síður á Selfossi og í Borgamesi og mjög illa í Stykkis- hólmi, samkvæmt viðtölum DV við útvarpshlustendur í gær. „Við náum Bylgjunni mjög vel, miklu betur en rás tvö og svæðisút- varpinu," sagði Heiða Kristjánsdóttir, fulltrúi á bæjarskrifstofunum á Akra- nesi. „Þetta var svolítið vandræðalegt hjá þeim í morgun en lagaðist þegar Páll Þorsteinsson tók við,“ sagði Skaga- stúlkan. „Við erum búnar að hlusta á Bylgj- una í morgun. Það heyrist mjög vel í henni, svipað og Ríkisútvarpinu," sagði Hildur Ásmundsdóttir á Aðal- stöðinni í Keflavík. „Við kunnum alveg ágætlega við nýju útvarpsstöðina. Þetta em góð lög sem þeir spila,“ sagði sú í Keflavík. Næst betur en rás 2 í Grindavík „Nýja rásin heyrist mjög vel hér. Ég næ henni betur, ef eitthvað er, en rás tvö,“ sagði Grétar Sigurðsson á hafharvoginni í Grindavík. „Þetta er frekar óskýrt. Það er svo mikið suð í því. Það er ekkert gaman að hlusta á þetta. Við náum rás tvö mikið betur,“ sagði María Kristjáns- dóttir, starfsmaður á Reykjalundi í Mosfellssveit. „Það virðist heyrast alveg þokka- lega. En það er ekki sami styrkur ög í Ríkisútvarpinu. Það kviknaði ekki ljós á útvarpstækinu eins og gerist þegar gæðin em best,“ sagði Sigurjón Gunnarsson, Þórðargötu 4 í Borgar- nesi. „Það þarf loftnet til að ná stöðinni. Ég náði henni ekki með loftnetslausu Starfsfólk Bylgjunnar við upphaf útsendinga i gærmorgun. Allir nema útvarpsstjórinn vom klæddir hvitri treyju með merki stöðvarinnar. DV-mynd Óskar. hmm. Þn a Bylgjunni synir mælinnn einn. Sem sagt einn fimmta af styrk KiKisutvarpsins, sagði bellossbuinn. -KMU Davíð yfflr á Bylgjuna tæki í morgun," sagði Borgnesingur- inn. Skruðningar í Stykkishólmi „Ég heyri einhverja skmðninga. Ég heyri bara óminn af talinu. Þetta er mjög óskýrt og dettur út þess á milli. Það er langt í frá að ég njóti þess að hlusta á þetta,“ sagði Erla Lámsdótt- ir, Silfúrgötu 25 í Stykkishólmi. „Það er ekki nógu gott að hlusta á þetta. Ég svissaði aftur yfir á rás tvö. Svona bjagaður tónn pirrar mann,“ sagði Kristján Einarsson, Vallholti 47 á Selfossi. „Ég er með mjög gott loftnet. Þegar ég stilli inn á rásir Ríkisútvarpsins sýnir mælirinn fúllan styrk, sem er „Ég býst við að flytja töluverðan hluta af auglýsingum mínum yfir á Bylgjuna, að því tilskildu að stöðin nái vinsældum," sagði Davíð Scheving Thorsteinsson iðnrekandi, sem verið hefur einn stærsti auglýsandi á rás 2 frá upphafi. Davíð hefúr nýverið eytt tæpum tveim milljónum króna í að auglýsa svaladrykk í sambandi við kjör ungfrú Bretlands og er með alheimsfegurðar- drottninguna Hólmfríði Karlsdóttur og Jón Pál, sterkasta mann í heimi, á stöðugum ferðum í Englandi og írl- andi við kynningarstörf. „Hvar sem þau koma fram selst Svali upp á örfáum mínútum. Jón Páll er til dæmis óhemjuvinsæll í Skotlandi," sagði Davíð Scheving. -EIR Sólheimaleikamir: Lokaátakið í byggingu nýja íþróttaleikhússins Mikil íjölskyldu- og íþróttahátíð verður haldin að Sólheimum í Gríms- nesi um helgina. Er búist við að mörg hundruð manns sæki þessa Sólheima- leika, sem svo hafa verið nefndir, en meiningin er að þetta verði árlegur viðburður í framtíðinni. „Hér verður eitthvað fyrir alla,“ sagði Guðjón Sigmundsson, sem hefur framkvæmd leikanna með höndum, „enda er hér um að ræða stórviðburð í félagslífi fatlaðra og þroskaheftra." Sólheimaleikamir hefjast á föstu- dagskvöld með kvöldvöku, en form- lega verða þeir ekki settir fyrr en á laugardagsmorgun með ræðuhöldum og lúðrablæstri Lúðrasveitar verka- lýðsins. Að lokinni setningunni hefst Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Sólheimaleikanna, til hægri og Guðmundur Pálsson, móts- stjóri. DV-myndir Óskar svo keppni í heföbundnum íþróttum fatlaðra, borðtennis, boccia og sundi, og stendur keppni fram eftir degi. Um kvöldið verður svo diskótek og að því loknu verður efnt til glæsilegrar flug- eldasýningar. Klukkan 10 á sunnudagsmorgun hefet svo keppni í göngu, sem Reynir Pétur leiðir, og verður farið svokallað- an Sólheimahring, þó misjafnlega langan eftir getu hvers og eins, svo sem 5 kílómetra hring, 10, 15 eða 24 kíló- metra. Veittir verða verðlaunapening- ar og viðurkenningarskjöl öllum þeim sem ljúka göngu og um leið veitir þátttaka í leikunum rétt til að fara á ball, þar sem Stuðmenn leika fyrir dansi síðdegis á sunnudag. Leikunum lýkur svo um kvöldmatarleytið á sunnudag. Þá má nefiia að einnig verður til skemmtunar ýmiss konar glens og leikir. Sett hefúr verið upp tívolí og farið verður í ýmsa þrautaleiki, hesta- reiðtúra, sund og gufu, svo eitthvað sé nefnt. Guðjón sagði að þegar heföu 130 manns skráð sig til keppni, en þeir byggust við mun fleiri, enda væri hér kærkomið tækifæri fyrir fatlaða og aðstandendur þeirra að koma saman. Aðspurður um kostnað vegna þessa, sagði hann að hann væri hverfandi lítill, þar sem nánast öll vinna við undirbúning leikanna væri gefin, en skátar hafa hjálpað þeim Sólheima- mönnum mikið að undanfömu. Þá væri öll útgáfa í sambandi við leikana fjármögnuð með auglýsingum. Einnig væri þátttökugjald á leikana. Það kostar 2.750 kr. að vera með alla dag- ana, en 500 krónur að taka aðeins þátt í göngunni á sunnudag. Sólheimaleikamir nú era lokaátakið í byggingu nýja íþróttaleikhússins á staðnum. Húsið er nú langt komið og stendur til að vígja það fyrsta vetrar- dag næstkomandi með leiksýningu vistmanna. Öllum gefet því kostur á að leggja sinn skerf í þetta stórátak, sem hófet með íslandsgöngu Reynis Péturs í fyrra. -KÞ Þaö er sérstök tilfining aö sjá þennan kabarett. Sambland af dulúö, spennu og grátbroslegri kímni. Shahid Malik, einn fremsti sjónhverfinga- og töframaður heims, tvöfaldur heimsmeistari í listinni, kallaöur „Houdini nútímans". Walter Wasil, jafnvægislistamaður og loftfimleikakonan Jessica, bæöi með æsileg atriöi. Barnatrúöurinn Rhubard the Clown og „Stóri karlinn" prófessor Crump. - Allt velþekkt fjöllistafólk sem skapar hinn ógleymanlega kabarett. „Commodore Cabarett" á sýningarpalli virka daga klukkan 17,19 nn ?1 nn um hfilnar kl 15.17.19 oa 21. bYNINU MARKAÐUR SKEMMTUN HeimiliÓ'86 Laugardalshöll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.