Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. Viðskipti Kodak innkallar myndavélar „Ég tel þetta vera vel gert við kúnnann enda hafa viðbrögðin við þessu verið góð, bæði hér sem og um allan heim að því mér skilst. Fólk hefur haft afiiot af vélunum í nokkum tíma og er nú gefinn kostur á því að fá þær endurgreiddar á sanngjömu verði. Þó að þetta kosti stórfé hef ég þá trú að þetta verði fyrir- tækinu til framdráttar þegar fram í sækir,“ sagði Bjami Ragn- arsson, sölustjóri neytendavam- ings hjá Hans Petersen, sem hefur umboð fyrir Kodak vörur á íslandi. Kodak fyrirtækið hefur um all- an heim innkallað svonefhdar skyndimyndavélar en þær em með filmu sem framkallast sjálf. Ástæðan fyrir þessari skyndilegu innköllun er sú að í lok síðasta árs tapaði fyrirtækið málaferlum sem staðið hafa í nokkur ár. Hafði Polaroid höfðað mál gegn fyrirtækinu á þeim forsendum að það hefði notað hugmynd Pol- aroid að sjálfframkallandi filmu. Vegna þessa hefúr verið hætt að framkalla þessar filmur og án þeirra em myndavélamar vita gagnslausar. Hyggst því fyrir- tækið bæta viðskiptavinum sinum þetta með því að innkalla vélamar og bjóða greiðslu eða úttekt á öðrum Kodak vörum í staðinn. Að sögn Bjama er Hans Pet- ersen einungis framkvæmdarað- ili og ákveður því ekki hvers virði vélarnar em. Tilboðið um innlausnina mun standa frá 25. ágúst til 1. júní 1987. _jpj Peningamarkaöur VEXTIR (%) hæst Innlðn óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar R-9 u> Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb 6 mán. uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb 12 mán. uppsögn 11-14 Ab Sparnaður - Lánsróttur Sparað í 3-5 mán. 8-13 Afa Sp. í 6mán. ogm. 9-13 Ab Avísanareikningar 3-7 Ab Hiaupareikningar 3-4 Lb.Sb Innián verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1 Allir 6 mán. uppsögn 25-3.5 Lb Innlán með sérkjörum 8-16 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 6-7 - Ab Steriingspund 9-10.5 Ab.Vb Vestur-þýsk mörk 3.8-4 Ab Danskar krónur 8-7.5 Ab.Lb.Sb Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir Viðskiptavixlar(forv.)(1) kgeog19.5 Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kfle Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9 Utlán verðtryggð Skuldabréf Að 2.5 órum 4 Allir Til lengri tima 5 Allir Utlán til framleiðslu isl. krónur 15 SDR 7.75 Bandaríkjadalur 7.75 Sterlingspund 11.25 Vestur-þýsk mörk 6 Spariskirteini 3ja ára 7 4ra ára 8.5 6ára 9 Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16 Gengistryggð{5 ár) 8.5 Almenn verðbréf 12-16 Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 Dráttarvextir 27 VfSITÚLUR Lánskjaravisitala 1463 stig Byggingavisitala 272.77 stig Húsaleiguvisitala H«kkaði5%1. júli HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs: Eimskip 200 kr. Flugleiðir 140 kr. Iðnaðarbankinn 98 kr. Verslunarbankinn 97 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá flestum bönkum og stærri sparisjóðum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb=Búnaðar- bankinn, Ib=Iðnaðarbankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar- bankinn, Sp = Sparisjóðimir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV ó fimmtudög- um. ,, Ljóst að menn hengja ekki upp skreið' ‘ Þótt 61 þúsund pakkar af skreið hati farið til Nígeriu nýlega er ekki algengt aö. skip full af skreið leggi úr höfn. Verðið sem fæst fyrir skreiðina er þar að auki langt undir framleiðsluverði, að sögn söluaðila, og þess vegna er hafist handa við að rifa niður skreiðarhjalla. Skreiðarhjallar Granda hf. á Seltjarnarnesi eru smám saman að hverfa eins og myndin sýnir. Þrátt fyrir gífúrlega sölutregðu og ótryggar greiðsluhorfúr hafa menn ekki ennþá gefist upp við að reyna að selja skreið. Nú virðast vera i gangi ýmsar undanþágur frá inn- flutningsbanninu sem gekk í gildi í Nígeríu 1. júlí síðastliðinn. „Það eru aðilar sem segjast vera með framlengd innflutningsleyfi til áramóta. Tollayfirvöld í Nígeríu virðast hins vegar ekki hafa fengið fyrirmæli um framlenginguna. Við höfum þó séð leyfin en erum að kanna hvort þau eru marktæk og hvað viðkomandi aðilar geta gert varðandi greiðslur," sagði Ragnar Sigurjónsson, forstöðumaður skreið- ardeildar SÍS. Talið er að nú séu um 120 þúsund pakkar af skreið til í landinu að verðmæti um 700 milljónir króna. Framtíö skreiðarframleiðslu Þótt menn hafi ekki alveg gefist upp við skreiðarsöluna gætir mikill- ar svartsýni á framtíð skreiðarfram- leiðslu í landinu. Söluaðilar í greininni hafa hvatt framleiðendur Hertir fiskhausar eru nú uppseldir í landinu. Þrátt fyrir gífúrlega erfið- leika við sölu á skreið til Nígeríu hefur ekki reynst erfitt að selja haus- ana. Samtals hafa selst um 200 þúsund pakkar frá áramótum. til að hætta alfarið að hengja upp skreið, rífa niður skreiðarhjallana og koma trönunum í verð. „Hausamir eru ekki á bannlista og hefúr kaupendum reynst auðvelt að fá innflutningslejfi fyrir hausa í Nígeríu. Markaðsverð fyrir hausa er tiltölulega lágt þannig að kau- pendur sjá sér hag í að versla frekar með hausa en skreið. Almenningur í Nígeríu getur síður keypt skreið- „Það er alveg ljóst að menn hengja ekki upp skreið fyrir það verð sem fæst fyrir hana. Framleiðslukostnað- ina, verðið er svo hátt,“ sagði Ragnar Sigurjónsson, forstöðumað- ur skreiðardeildar Sambandsins. „Það er ljóst að menn hengja ekki upp skreið en við höfum hvatt menn til að hengja upp hausa," sagði Ragnar. -KB ur er langt umfram gangverð. Það eina sem vit er í að hengja upp eru skreiðarhausar og höfum við hvatt menn til þess. Það hefur gengið vel að selja þá til Nígeríu. Þeir eru upp- seldir," sagði Ragnar Sigurjónsson. Skreiðarhjallarnir hverfa Grandi hf. er nú að láta rífa niður alla sina skreiðarhjalla, bæði þá sem staðið hafa við Korpúlfsstaði og á Seltjamamesi. Verkinu er næstum lokið og fyrir trönumar eiga að fást um 750 þúsund krónur. Er næsta víst að margir hjallar muni hljóta sömu meðferð á næstunni. -KB Hausamir uppseldir Starfsnám Verslunarskólans í nýjan búning: Bókhald á brautum Undanfarið hefur verið urrnið að gagngerum breytingum á starfsnámi Verslunarskólans. Hingað til hefur verið boðið upp á einstök námskeið ósamtengd en nú mynda námskeiðin samtengda heild og verða kennd á sérhæfðum brautum, bókhaldsbraut og skrifstofubraut. „Starfsnámið er öllum opið, það em engin skilyrði fyrir inntöku," sagði Helgi Baldursson, forstöðumaður starisnámsins. Rassvasabókhald „Námið getur hentað í ýmsum til- gangi þeim sem vilja á skömmum tíma öðlast þá þekkingu sem krafist er af vinnumarkaðinum á sviði bókhalds- eða almennra skrifstofústarfa, smáat- vinnurekendum sem hafa haft bók- haldið í rassvösunum en vilja koma skipulegri reglu á reksturinn, fólki sem hefur áhuga á því að vaxa i starfi og/eða takast á við ný verkefni eða störf og t.d. húsmæðrum sem vilja Helgi Baldursson forstöðumaður starfsnáms Verslunarskóla Islands situr hér í tölvustofu skólans sem mun vera eín af þeim fuilkomnustu á landinu. komast út á vinnumarkaðinn," sagði Helgi Baldursson. Helgi sagði að mörg dæmi væru um að atvinnurekendur sæju sér hag í að senda starfsmenn sína á sérhæfð nám- skeið og greiddu jafnvel námskostnað. Tilhögun Kennsla á báðum brautum starfs- námsins fer fram á kvöldin og er hægt að ljúka brautunum á 2 til 3 námsönn- um. Kennarar eru mikið til þeir sömu og kenna i dagskólanum. Námið fer fram í áfóngum og byggt þannig upp að þeir sem vilja halda áfram námi geta fengið brautanámið metið til verslunar- og eða stúdentsprófs í öld- ungadeild skólans sem hefúr verið sett á laggimar í Verslunarskólanum og tekur í fyrsta skipti til starfa nú í haust. Hið nýja húsnæði Verslunarskólans við Ofanleiti hefur gert þessa nýju námsmöguleika við skólann mögu- lega, en með tilkomu nýja húsnæðisins hefúr öll að aðstaða til kennslu stór- batnað. 150 manns Helgi sagði að hver kennslustund í starfenáminu kostaði í kringum 100 krónur. I sumum tilfellum hafa stétta- félög, eins og Starfemannafélag ríkis- stofnana, Starfemannafélag Reykja- víkurborgar og Verslunarmannafélag Reykjavíkur, greitt námskostnaðinn fyrir félagsmenn sína eða stutt þá til námsins á annan hátt. Skráning í starfenámið er hafin og lýkur henni eftir hálfan mánuð. Reikn- að er með að hægt sé að innrita um 150 manns. -KB Þróunarsjóður í Byggðasjóði Enn hefúr ekki verið ákveðið hvaða aðili eigi að annast rekstur norræns þróunarsjóðs fyrir Færeyjar, Græn- land og ísland, sem stofnaður var fyrir skömmu. í stofnsamningi, sem undirritaður var á Höfri á Homafirði 19. ágúst síð- astliðinn, segir að aðsetur sjóðsins skuli vera í Reykjavík. Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra sem undirritaði stofnsamninginn fyrir Is- lands hönd, sagði í samtali við DV að ákvörðun um nánari aðsetur sjóðsins yrði ekki tekin fyrr en kosið hefði verið í stjóm og að það yrði gert í haust. Þangað til og fyrst um sinn yrði rekstur sjóðsins því eflaust í höndum Byggðasjóðs. -EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.