Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Síða 7
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 7 Atviimumál Hvalamálið: Japanir tvistígandi - hafa áhuga en vantar tryggingu Enn er óvissa um það hvort tekst að selja þau 49% af hvalafurðum úr landi sem til stendur. Japanir eru enn tvístígandi þótt forráðamenn Hvals hf. séu kokhraustir og segi öll 49% þegar seld og fari fyrsti farmur til Japans í október. „Við höíum átt í viðræðum við Bandaríkjamenn vegna þessasagði Nomura, sendiráðsritari í japanska sendiráðinu í Washington, í samtali við DV. „Bandaríkjamenn neituðu okkur í fyrstu um tryggingu fyrir því að þeir myndu ekki beita okkur efria- hagslegum refsiaðgerðum ef við keyptum hvalkjöt af Islendingum. Við höfum beðið þá áð endurskoða þetta mál og nú bíðum við eftir svari frá þeim, þvi áhugi á þvi að kaupa er mikill í Japan.“ Nomura sagðist ekkert geta sagt til um hvenær Bandaríkjamenn myndu svara þeim. Það væri þó ljóst að ef þeir stæðu við fyrri ákvörðun sína myndu Japanir ekki kaupa hvalkjöt af Islendingum. Þeir hefðu einfaldlega ekki ráð á því, þar sem miklir hagsmunir væru í húfi. Hann sagði að hvalkjöt væri mjög dýrt um þessar mundir í Japan, enda væri eftirspumin mun meiri en fram- boðið. Samkvæmt upplýsingum DV kaupa Japanir hvalkjötið dýru verði, ef af verður. Kaupa þöir hvert kíló á 80 til 180 krónur en verðið fer eftir þvi hvar á skepnunni kjötið er. -KÞ Loðnuflotinn til Jan Vestfjarðamið reyndust ekki eins gjöful á loðnu og menn ætluðu um síðustu helgi. Hafa loðnuskipin verið að færa sig aftur á mið við Jan Mayen. Loðnuskipin öfluðu vel fyrstu tvo dagana á Vestfj arðamiðum. Fór svo að dofha yfir veiðunum. I gærmorgun höfðu flest skipin hætt þar veiðiskap. Tvö skip tilkynntu loðnu af Hala- miðum í gær; Eldborg og Skarðsvík. Mayen Fóru bæði til Siglufjarðar. I fyrradag tilkynntu tvö skip um afla; Eskfirðing- ur, sem fór til heimahafnar, og Öm sem landaði í Grindavík i nótt fyrstu loðnunni þar á vertíðinni. Helmingur loðnuflotans hefur nú hafið veiðamar, eða 24 skip af 48. Síð- ast bættust við Huginn VE, ísleifur VE og Guðmundur Ólafur ÓF. -KMU Maigir vilja í flugtum Margir vilja vinna uppi í flugtumi. Flugmálastjóm bárst 51 umsókn um nám í flugumferðarstjóm. Umsóknarfrestur rann út fyrr í vikunni. Pétur Einarsson flugmálastjóri sagði að á næstu dögum yrðu menn valdir úr hópnum til að fara í fomám. Sá hópur yrði svo prófaður en fjórir til sex nemendur síðan sendir til Kanada til að læra fagið. -KMU Skyndlokanir á þorskveiðisvæðum voru fjörutíu í fyrra. I ár eru þær þegar orðnar 49. Skyndilokanir þorskveiðisvæða aldrei fleiri „Allt árið í fyrra vom rúmlega 40 skyndilokanir gerðar á þorskveiði- svæðum í kringum landið, á þessu ári em þær þegar orðnar 49, sumar hveij- ar oftar en einu sinni á svæðum sem aldrei hefur þurft að loka fyrr, t.d. úti fyrir Vestmannaeyjum," sagði Hrafri- kell Eiríksson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofhun, um óvenju- mikinn fjölda skyndilokana í ár. Skyndilokun er gerð á þorskveiði- svæði þegar í ljós kemur við athugun eftirlitsmanna að yfir 20% af þorski sem veiðst hefur er smærri en 55 sentí- metrar að lengd.Fyrr í vikunni var tveimur svæðum lokað af þessum or- sökum, svæðinu úti fyrir Patreksfirði, Amarfirði og Dýrafirði, sem lokað var fyrir dragnót, og svæðinu á Stranda- grunni úti fyrir Homströndum, sem var lokað fyrir togveiðum. I gær var svo svæðinu á Digranesflaki, úti fyrir Vopnafirði, lokað fyrir togveiði. Auk þess hafa svæði á Skagagrunni og Sléttugrunni verið lokuð fyrir togveiði í nokkum tíma. Skyndilokanir veiðisvæða gilda allt að viku, nema ef reglugerð ráðuneytis segir til um lengri tíma. Fyrir kemur að svæðum er lokað í viku, oftar en einu sinni á sumri. Stærsti hluti þess- ara lokana hefur verið gerður á veiðisvæðum umhverfis Vestfirði. Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðing- ur sagði að ástæðan fyrir því að skyndilokunum hefði fjölgað svo mik- ið í ár væri líklega sú að nú væri að koma upp þorskur úr stórum árgangi frá árinu 1983. „Orsökin er ekki sú að minna sé um stóran þorsk,“ sagði Ólaf- ur „en litlir þorskar úr árganginum slæðast með. Eg reikna með að lokun- um fækki aftur næsta ár þegar þessi stóri árgangur hefur náð viðimandi stærð." -BTH BESTA BORGARMYNDIN Verðlaun fyrir bestu afmælismyndina LJÓSMYNDAKEPPNI Tókst þú Ijósmynd í Reykjavík á afmælisdaginn 18. ágúst? Sé svo átt þú kost á að vinna til veglegra verðlauna. Myndirnar mega vera í lit eða svart/hvítu, á pappír eða skyggnu. Veitt verða þrenn verðlaun, Ijósmyndavörur frá versluninni Gevafoto, þau fyrstu að verðmæti 20 þúsund krónur, önnur að verðmæti 10 þúsund krónur og þriðju að verðmæti 5 þúsund krónur. Skilafrestur er til 3. september. Ljósmyndin þarf að vera vel merkt höfundi með nafni, heimilisfangi og síma. Hún þarf að berast til DV í umslagi merktu: DV „BORG ARM YNDIN“ Þverholti 11, 105 Reykjavík. Til að við getum sent myndirnar aftur til eigenda þarf að fylgja umslag með nafni og heimilisfangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.