Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Page 11
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 11 Viðtalið Stefán Eiríksson, forstöðumaöur sölu- og markaðsdeildar Skipadeildar Sam- bandsins. DV-mynd Óskar Öm „Er í næsta syndsamlegum félagsskap“ Nýráðinn forstöðumaður sölu- og markaðsdeildar Skipadeildar Sam- bandsins heitir Stefán Eiríksson. Hann er Hafhfirðingur í „húð og hár“ og leit dagsins ljós þann 30. ágúst 1951 í Hafharfirði. „Þessi fyrstu ár voru eitt stórt ævin- týri og maður lék sér að öllu mögu- legu, var í fjörunni, við höfnina og auðvitað í hrauninu. Svo var maður líka í skóla en ég fór í Bamaskóla Hafharfjarðar sem nú heitir Lækjar- skóli að ég held. Þar fannst mér skemmtilegast að læra málfræði og íslensku. En við vorum nú ekki alltaf lærandi og prakkarar í okkur eins og gengur með stráka. Því gerðum við at og stríddum náunganum þegar færi gafst en allt í góðu,“ sagði Stefán. Leið Stefáns lá í Flensborg sem þá var gagnfræðaskóli. „Þar var mjög gaman og uppáhaldsfögin voru tungu- mál. Annars var þetta einn leikur út í gegn og ég var frekar latur í skóla,“ sagði Stefán. Kynbætti tómata og agúrkur Eftir að námi í Flensborg lauk fór Stefán að vinna næstu 5 árin til sjós og lands. Á þessum tíma dvaldist hann 2 ár í Svíþjóð. „Ég vann þar fyrst í gróðurhúsum í Landskrona við kyn- bætur á tómötum og agúrkum og það var nokkuð skondið starf. Síðara árið sem ég var þama úti vann ég í Malmö hjá mjólkurfyrirtæki. Þetta voru fjör- ug ár og liðu alltof hratt. Sennilega vom þetta bestu ár ævinnar." Hann fór í Iðnskólann í Hafnarfirði og komst á samning hjá Landssmiðj- unni. Úskrifaðist hann sem plötu- og ketilsmiður 1976. „Það var gaman að takast á við þetta en vinnan hjá Landssmiðjuni var þrælarí. Þetta vom uppgangsár í sjávarútveginum og það var unnið myrkranna á milli, lífið var stanslaust streð.“ Stefan segist hafa unnið hjá ýmsum fyrirtækjum til 1978 en þá hafi hann ráðið sig til Skipadeildar Sambandsins við almenn skrifstofústörf. „Ég var búinn að fá mig fullsaddan af þvi að þræla myrkranna á milli án þess að fa neitt og sjá aldrei neitt nema puð- ið,“ sagði Stefán. Fékk bíladellu hálffulloröinn Þegar talið berst að tómstundaiðju kemur fyrst upp í huga Stefáns bíla- della sem hann segist hafa fengið hálffullorðinn. „Þetta stóð stutt yfir en á meðan á þessu stóð var ég með nefið ofan í kvartmílu og var sjálfur að eiga við bíla þó að það gengi hálf- brösuglega. Einnig reyndi ég að koma upp eigin bíl en það tókst nú ekki.“ Hann segist aldrei hafa verið mikill íþróttamaður en hafi þó verið í hand- bolta og fótbolta með Haukum hér áður fyrr, í yngri flokkunum. Segist hann hafa verið í þessu fyrir félags- skapinn. „Ég starfa ennþá í félagsmál- um í kringum íþróttir og hef setið í knattspymustjóm FH,“ segir Stefán. Þegar hann er spurður hvort það flok- kist ekki undir drottinssvik hjá gömlum Haukamanni að starfa fyrír FH, kveður hann nei við. Segist hann aldrei hafa verið rígbundinn í þessum félagaríg og frekar opinn fyrir félögum og félagastarfsemi. „Slíkt umburðarlyndi gagnvart fé- lögum er kannski tilkomið vegna þess að ég er í næsta syndsamlegum félags- skap, verri en nokkur ljónahópur. Það er svonefnt Átthagafélag Hafnfirð- inga. Skæður hópur Hafhfirskra átthagamanna i Reykjavík sem kemur saman á föstudögum og slúðrar yfir hádegisverði á Borginni. Á vetuma bætist svo bridge við starfsemina á hverju fimmtudagskvöldi. Em allt upp í 10 manns í þessu ægilega félagi," segir Stefán hlæjandi. „Fréttasjúkur eins og flestir ís- lendingar" Eitt af áhugamálum Stefáns er ferðalög. „Ég hef ferðast mikið um Evrópu og mitt helsta hobbí nú er að ferðast erlendis. Vera frjáls eins og fuglinn." Hann segist lesa mikið og þá helst reyfara. „Ég er fréttasjúkur eins og flestir Íslendingar. Við viljum alltaf vita nákvæmlega hvað er að gerast alls staðar í heiminum. Enda er sjálf- sagt gósentími fram undan fyrir okkur fréttasjúklingana ef nýju útvarps- og sjónvarpsstöðvamar standa sig í frét- taflutningi." Hann segist lesa öll blöðin og þau tímarit sem hann kemst yfir. „Einnig horfi ég töluvert á sjón- varp en hef þó minnkað það í sumar enda hefur það verið heldur lélegt, maður hefur fullt eins getað horft á útvarpið eins og einhver sagði héma um árið,“ segir Stefán. Hann segir starfið skemmtilegt, það komi aldrei dauðir punktar, „og eigin- lega er ég vinnusjúklingur." „Annars er mitt markmið í framtíðinni að skila þessu starfi vel af mér og tryggja mér og mínum og auðvitað fyrirtækinu sem ég vinn hjá góða framtíð. Ég vil vera ég sjálfur og helst geta bætt sjálf- an mig,“ sagði Stefán Eiríksson. JFJ Föstudag, laugardag mánudag og þriðjudag ^SköBúðIn^ Aipviió \ &0RGARTÖM 23 Opið virka daga kl. 9-18. laugardaga kl. 10-12. simi 29350 GMC Suburban K-25 4x4 árg. 1978 með 6,2 lítra orginal GMC disilvél, ekinn aðeins 40 þús. km, 4 gira, vökvastýri, fljótandi öxlar, nýleg dekk, útvarp og segulband. 9 manna. Tilvalinn I skólaakstur, glæsilegur bíll með nýju lakki. Ath. skipti á ódýrari. Verð kr. 650.000. Dodge Ramcharger 150 Royal SE ár- gerð 1982. Stórglæsilegur, ekinn aðeins 77 þús. km, 8 cyl. sjálfskipt- ur, vökvastýri, breið dekk, krómfelg- ur, útvarp/kassetta, litur svartur, einn eigandi frá upphafi. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 760.000. Nissan Sunny 1500 GL árgerð 1986, ekinn aðeins 9 þús. km, góður nýleg- ur, framdrifinn bill fyrir veturinn. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 410.000. Daihatsu Charade CX árgerð 1986, ekinn 5 þús. km, 5 dyra, sem nýr. Bein sala. Verð 330.000. Saab 900 GL árgerð 1982, ekinn að- eins 69 þús. km, framdrifinn vetrar- bill. útvarp/kassetta. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 350.000. Mercedes Benz 280 SE árg. 1980, ekinn 188 þús km, 6 cyl., sjálfskipt- ur, vökvastýri, rafmagnssóllúga, centrallæsingar, álfelgur, útvarp/ segulband. Ath. skipti á ódýrari bifreiö. Verð aðeins 700.000. SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR MEIRIHÁTTAR VERÐLÆKKUN Opið til kl. 21 í kvöld og frá 10-16 á laugardögum. Smiðjuvegi 4e, c-götu, á horni Skemmuvegar. Símar 79866 og 79494. Laugavegi 28, Reykjavík Mánagötu 1, ísafirði Stóragarði 7, Húsavík Hafnarstræti, Akureyri. Egilsbraut 7, Neskaupstað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.