Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1986, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986. Uflönd Maós enn minnst í Shaoshan Tíu ár liðin frá andláti fyrrum formanns kínverska kommúnistaflokksins Minjasafiiið í kínverska þorpinu Shaoshan var eitt sinn tileinkað besta syni borgarinnar, Maó Tse- tung, byltingarleiðtoga og formanni kínverska kommúnistaflokksins. Nú, tíu árum eftir andlát formanns- ins og hugmyndafræðilega útlegð kenninga hans i kínverskum stjóm- málum, setja poppstjömur frá Hong Kong mestan svip á minjasafnið í Shaoshan en ekki svipmiklar vegg- myndir af formanninum fallna og tilvitnanir í bókmenntaleg verk hans. Verksmiðja ein í útjaðri Shaoshan, er eitt sinn framleiddi tugþúsundir barmmerkja með mynd af Maó for- manni, syni borgarinnar og helsta átrúnaðargoði tugþúsunda er heim- sóttu fæðingarbæ formannsins á hveijum degi, framleiðir nú tekönn- ur og önnur búsáhöld. Forvitnum ferðamönnum gefst þó enn kostur á að kaupa sér barm- merki af foringjanum hjá götusölum í borginni, er selja merkið á fimm krónur stykkið. Þrátt fyrir að stjama Maós sem stjómmálaleiðtoga í Kína fari stöð- ugt lækkandi og harðari gagnrýni núverandi valdhafa á valdaferil hans, heimsækja að meðaltali eitt þúsund manns þorpið þar sem Maó formaður fæddist og ólst upp. En þrátt fyrir það ætla bæjaryfir- völd í Shaoshan ekki að minnast þess sérstaklega að þann níunda september næstkomandi em liðin tíu ár frá andláti Maós. Maó yfirgaf Shaoshan árið 1910, skömmu áður en hann gekk til liðs við sveitir kínverskra kommúnista, Þrátt fyrir harða gagnrýni og almenna fordæmingu núverandi stjómvalda í Kína á stefnu Maó Tse-tung skipar fyrrverandi formaður kínverska kommúnistaflokksins enn háan sess í hugmyndafræði flokksins og sögu alþýöulýð- veldisins. er hann síðar leiddi til sigurs yfir þjóðemissinnum eftir blóðugt borg- arastríð árið 1949. „Maó áorkaði miklu fyrir árið 1949. Án hans hefði nýtt Kína aldrei orðið að veruleika," er haft eftir verkamanni í gömlu barmmerkja- verksmiðjunni í Shaoshan, „en eftir 1949 urðu honum á alvarleg mistök er leiddu til efriahagsöngþveitis og gífurlegs tjóns fyrir landið." Ummæli verkamannsins em í svip- uðum dúr og stefria stjómvalda, er imdanfarin tíu ár hafa reynt að draga úr guðlegri ímynd formanns- ins fyrrverandi á meðal ríflega þúsund milljóna íbúa landsins. Núverandi leiðtogar kínverska kommúnistaflokksins hafa numið úr gildi ýmis helstu grundvallaratriði í stefnu flokksins er fylgt var í tíð Maós. Þar má helst nefha áætlanir um samyrkjubú, bann við einka- framtaki hvers konar, strangt verð- lagseftirlit og þá grundvallarstefriu flokksins að hefja hugmyndafræði og flokkspólitík ofar hagstjóm og efhahagslegum staðreyndum. Haft er eftir vestrænum stjómarer- indrekum í Peking að þrátt fyrir fordæmingu og óhefta gagnrýni njóti ímynd Maós enn virðingar í hug- myndafræði kommúnistaflokksins og sögu alþýðulýðveldisins. „Sovétmenn gátu útskúfað Stalín af því að þeir gátu enn viðhaldið persónudýrkun Leníns, en Kínveijar geta ekki útskúfað Maó algerlega því að þeir hafa engan annan. Þrátt fyrir alvarleg mistök skipar Maó enn stóran sess í huga kínverskra komm- únista," sagði vestrænn stjómarer- indreki í Peking. Fundur óháðra ríkja Athyglin beinist að Suður-Afriku Witness Mangawende, utanríkisráðherra i Zimbabwe, býður P Shiv Shan- ker, utanrikisráðherra Indlands, velkominn á fund samtaka óháðra rikja sem haldinn er i Zimbabwe þessa dagana. Á mánudaginn hófst í Zimbabwe fundur leiðtoga samtaka óháðra ríkja þar sem 102 ríki taka þátt. Harare er núna eins og víggirtur kastali þar sem aragrúi lögreglu- manna og hermanna er á verði. Þar sem fúndarhöldin fara fram em málmleitartæki og röntgentæki á víð og dreif. Það þarf ekki meira en' eymalokk eða kúlupenna til þess að það pípi í tækjunum og verðir ranns- aka pennana eins og um hugsanleg morðvopn sé að ræða. En það er nú ekki að ástæðulausu sem slíkar varúðarráðstafanir em viðhafðar. Stjóm Robert Mugabe ber ábyrgð á lífi gestanna og ná- granninn fyrir sunnan er til alls vís. Það em ekki nema þrír mánuðir síð- an suðurafirískir hryðjuverkamenn sprengdu aðalbækistöðvar afríska þjóðarráðsins í miðri Harare. Mugabe formaður Robert Mugabe er nú orðinn for- maður samtaka óháðra ríkja og gegnir hann því starfi næstu þijú árin eða þar til næsti aðalfundur verður haldinn. Tók hann við af Rajiv Gandhi en áður hafði móðir hans, Indira Gandhi, gegnt for- mannsembætti frá 1983 þar til hún var myrt í október 1984. Milli aðalfundanna er hlutverk formannsins og samtakanna tak- markað en það er þó til nefnd sem kölluð er saman í neyðartilfellum. En kaldhæðnar raddir segja að sam- tökin séu eins og gamall bjöm sem skríði út úr híði sínu nokkra daga á þriggja ára fresti. Gegn heimsvaldastefnu Fyrsti aðalfundur samtakanna var haldinn 1961 í Belgrad. I byijun beittu samtökin sér gegn heims- valdastefiiu og veittu frelsishreyf- ingum stuðning sinn í baráttunni gegn nýlenduveldunum. Var þá gert ráð fyrir að þau lönd, sem í samtök- unum væm, stæðu fyrir utan bandalög stórveldanna. Sem dæmi um það má nefha Júgóslavíu sem er eina Evrópuríkið sem er með í samtökunum. Slitið hugtak Smám saman hefur þó „heims- valdastefna“ orðið slitið hugtak því að til þess að tryggja einingu er forð- ast að gagnrýna Bandaríkin og Sovétríkin harkalega. Þau hafa þó verið gagnrýnd til skiptis á undan- fömum fundum. f Havanna árið 1979 var ráðist harkalega að Bandaríkj- unum. f Nýju Delhí árið 1983 varð vart við hreyfingu inn að miðju. Harðar deilur urðu um Afganistan og sæst á málamiðlun í lokin. Kraf- ist var þess að „útlendar hersveitir" hyrfu frá Afganistan. Tortryggni gætir gagnvart ríkjum eins og Víetnam og Eþíópíu vegna náins samstarfs þeirra við Sovétrík- in. Sama gildir um til dæmis Indó- nesíu, Saudi-Arabíu og Zaire sem sögð em vera tengd Bandaríkjunum. Þannig má segja að „óháð ríki“ sé orðið jafnslitið hugtak og „heims- valdastefria". Máttlausar Þessi tengsl við stórveldin og vilj- inn til þess að einhugur ríki á bak við ákvarðanir leiðir til þess að gefri- ar em yfirlýsingar sem em svo máttlausar að þær leiða ekki til framkvæmda. Talið er að það hafi verið til þess að beina athyglinni að Suður-Afríku að utanríkisráðherrar óháðra ríkja tóku þá ákvörðun í Luanda í fyrra að Robert Mugabe yrði formaður og aðalfundurinn haldinn í Harare. Eftir það hefur ríkisstjóm hvíta minnihlutans í Suður-Afríku verið enn meir í sviðsljósinu. Vopnaðar árásir hafa verið gerðar frá Suður- Afríku inn í Botswana, Zambíu og Zimbabwe og hefur stjómin viður- kennt þessar árásir. Suður-Afiíka hefur sent liðssveitir til Angóla til aðstoðar skæmliðum þm, vopn hafa verið send til Mosam- bik og hryðjuverkamenn hafa gert árásir í Swasilandi og Lesotho. En stjómin í Suður-Afríku neitar þó þessum síðastnefndu staðreyndum. Refsiaðgerðir Undanfama mánuði hafa verið harðar umræður um alþjóðlegar efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku. Robert Mugabe von- ast til þess að einhugur ríki varðandi ákvarðanir sem fordæma ekki bara stuðning Bandaríkjanna við Suður- Afríku heldur einnig Bretlands. Stjómin í Pretoríu veit að mörg afrísk lönd em háð Suður-Afríku hvað varðar innflutning. Þess vegna er þar lítið gert úr þeim orðaflaumi sem vænst er frá fundinum í Harare. En það er þó gert ráð fyrir að ákvarðanir fundarins þrýsti á Bret- land, Bandaríkin og Vestur-Þýska- land til þess að þau beiti stjómina í Suður-Afiíku meiri hörku. Umsjón: Hannes Heimisson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.