Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. Fréttir SeHjamames: Blindur maður rekinn af bæjarstjómarfundi Sá atburður átti sér stað á bæjar- stjómarfundi á Seltjamamesi í fyrradag að blindur maður var rek- inn af fundinum fyrir að hljóðrita umræður er þar fóm fram. Hinn blindi, Amþór Helgason, mætti á fundinn með segulbandstæki þar sem hann hafði áhuga á að hljóð- rita umræður á fundinum um 20% hækkun dagvistargjalda. Er forseti bæjarstjómar tók eftir því að Amþór var að hljóðrita það sem fram fór á fundinum gerði hann hlé á honum og spurði Amþór um þetta. Hann fékk þau svör að Arnþór hefði spurt þann bæjarfulltrúa, sem hann náði í fyrir fundinn, Guðrúnu Þorbergs- dóttur frá Alþýðubandalaginu, um hvort þetta væri í lagi og fengið þau svör að svo væri. Guðrún staðfesti þetta. Forseti bæjarstjómar, Guðmar Magnússon, bað Amþór að hætta hljóðrituninni þar sem hann hefði ekki leyfi frá bæjarstjóm til þessa. Síðan hélt fundurinn áfram. Skömmu síðar spyr Guðmar aflur hvort Amþór sé að hljóðrita og fær að vita að svo sé. Segir hann þá að annaðhvort hætti Amþór því eða honum verði vísað á dyr. Stóð Am- þór þá upp og fór af fundinum. „Hann hafði ekki leyfi fyrir þessu og mér fannst ekki hægt að taka málið fyrir á miðjum fúndinum þannig að ég bað hann að hætta hljóðrituninni og hann gerði það. Þegar ég tók svo eftir því að hann hafði byrjað aftur að hljóðrita tók ég það sem beina ögrun við mig og vísaði honum af fúndinum," sagði Guðmar Magnússon, forseti bæjar- stjómar, í samtali við DV. Aðspurður hvort ekki væri eðlilegt að Amþór tæki niður efni fundarins á þennan hátt þar sem hann væri blindur sagði Guðmar: „Amþór er slíkur yfirburðamaður að maður gleymir yfirleitt fötlun hans. Ég hef átt góð samskipti við hann og tel að hann vilji að maður meðhöndli hann eins og um hvem annan væri að ræða.“ Amþór Helgason sagði í samtali við DV að þar sem um opinn fimd hefði verið að ræða og umræður fyr- ir opnum tjöldum hefði hann ekki séð neitt athugavert við að hljóðrita umræðumar. „Forseti bæjarstjómar vitnaði í 10. grein bæjarmálasamþykktarinnar sem kveður á um að sá sem truflar fúnd skuli vísað út. Ég tel mig ekki hafa verið að trufla fúndinn og ef einhveijum hefði átt að vísa út sam- kvæmt þessari grein var það forset- inn sjálfum. I hvert sinn sem fúlltrúar minnihlutans tóku til máls fór hann að hvískra og pískra við samílokksmenn sina og truflaði þannig fúndinn," sagði Amþór. Amþór taldi að harkaleg viðbrögð bæjarstjómarforsetans í þessu máli væm einkum tilkomin vegna þéss að hann og flokkur hans ættu slæm- an málstað að veija í máli því sem hann vildi hljóðrita. -FRI Seltjamames: Dagvistunargjöld hækkuð um 20% Bæjarstjóm Seltjamamess hefur ákveðið að hækka dagvistunargjöld á bamaheimilum um 20 prósent. Frá 1. október verður mánaðargjaldið 6400 krónur. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri sagði að gripið hefði verið til þessarar hækkunar vegna hallarekstrar á dag- vistunarstofiiunum bæjarins. Það sem af væri árinu væri áætlun þeirra kom- in 750 þúsund krónur fram yfir. Með þessari hækkun væri ekki ætlunin að ná upp þessum halla en stefiit að þvi að stöðva hann. Sigurgeir vildi jafnframt benda á að nýlega hefði verið opnaður nýr leik- skóli á Seltjamamesi. Hann gerði það að verkum að nú uppfyllti bærinn þörfina fyrir dagvistun bama og eng- inn biðlisti væri eftir plássum. -APH Sigurvegarinn í Borgarmyndasamkeppni DV: Keypti myndavél fyrir verðlaunin „Ég hef hingað til notast við gamla Konica C 35 myndavél sem pabbi á. Þessi verðlaun nægðu til að ég keypti mér strax nýja vél,“ sagði Unnar Eiríksson sem vann fyrstu verðlaun í Borgarmyndasamkeppni DV. Fyrir bestu myndina í sam- keppninni fékk hann 20.000 krónur sem hann hefur þegar varið til að „eignast almennilegt verkfæri", eins og hann sagði í samtali við DV. Verðlaunamynd Unnars er af lög- regluþjóni þar sem hann er að bijótast út úr þrönginni miklu sem myndaðist við afinælistertu borgar- innar. „Ég var búinn að ákveða þegar ég fór niður í Lækjargötu að ná góðri mynd,“ segir Unnar um aðdraganda þess að óskastund ljós- myndarans rann upp. „Ég lenti inn í þrönginni og komst hvorki aftur á bak né áfram. Það var því nógur tími til að úthugsa myndina. Lögregluþjónninn á myndinni var að hjálpa gamalli konu þótt það líti út fyrir að hann hafi verið að svíkj- ast undan skyldustörfum. Ég sá strax að þetta var gott myndefhi og smellti af.“ Unnar hefur fengist við ljósmynd- un síðan á menntaskólaárunum. Hann er nú 26 ára, kennari að mennt. Kunnáttu sína í Ijósmyndun hefúr hann aðallega úr ljósmynda- blöðum og bókum. Eins og svo margir aðrir sem unn- ið hafa til verðlauna í tilefrii af afinæli borgarinnar þá er Unnar ut- an af landi. Hann er frá Egilsstöðum en hefur í sumar unnið að viðgerð kirkjunnar í Viðey. GK Unnar Eiríksson með nýju myndavélina og þá gömlu sem hann tók verð- launamyndina á. Danadrottning og dýralæknir - meðal 2o nýrra heidursdoktora við Háskóla íslands Tuttugu einstaklingar munu taka við heiðursdoktorsnafnbót við Há- skóla íslands á háskólahátíð er hefst 4. október. Er hátíðin haldin í tilefni af 75 ára afinæli skólans. Sex af níu deildum háskólans útnefna heiðurs- doktora og meðal þeirra má nefna drottningu og dýralækni. Heiðursdoktorar við læknadeild verða eftirtaldir: Benedikt Tómasson, fyrrum skóla- yfirlæknir, Júlíus Sigurjónsson pró- fessor, Ófeigur J. Ófeigsson læknir og Páll A. Pálsson yfirdýralæknir. Heimspekideild: Margrét Danadrottning, Snorri Hjartarson skáld, Anna Sigurðardótt- ir, forstöðukona Kvennasögusafhs, Ásgeir Blöndal Magnússon, fyrrum orðabókarstjóri, Gösta Holm, prófess- or í Lundi, Ludvig Holm-Olsen, pró- fessor í Bergen, Jón Steffensen prófessor og Bruno Kress, prófessor í Greifswald í A-Þýskalandi. Verkfræðideild: Christian H. Gudnason, prófessor í Kaupmannahöfn, Jakob Gíslason, fyrrum orkumálastjóri, og Konrad Zuse, verkfræAingur frá V-Þýskalandi. Raunvísindadeild: Bjami Jónsson, prófessor í Nash- ville, Sigurður Helgason, prófessor í Boston, og Þorbjöm Sigurgeirsson, prófessor í Reykjavík. Guðfræðideild: Eugene A. Nida, formaður ameríska Biblíufélagsins í New York. Viðskiptadeild: Ólafúr Bjömsson prófessor. Þijár deildir Háskóla Islands út- nefhdu enga heiðursdoktora af þessu tilefni, tannlæknadeild, lagadeild og félagsvísindadeild. -EIR Hallvarður Einvarðsson fluttí fyrr í vikunni sitt fyrsta mál fyrir Hæstarétti sem rikissaksóknari. Hann er ekki ókunnur réttinum því að á árunum fyrir 1977 fiutti hann þar mörg mál sem vararíkissaksóknari. Hér sést Hallvarður í ræðupúlti Hæstaréttar. DV-mynd BG Ríkið greiðir bænd- um fullt verð Undirritaður hefúr verið samningur milli Stéttarsambands bænda og ríkis- ins um hversu mikið magn af mjólk og kindakjöti ríkið ábyrgist að greiða bændum fyrir verðlagsárið 1987 til ’88. Gert er ráð fyrir að fúllt verð verði greitt fyrir 11.800 tonn af kindakjöti. Þetta er sama magn og greitt er fullt verð fyrir á þessu verðlagsári. Á móti kemur að bændur ætla ekki að hækka afúrðir sínar umfram almennar verð- hækkanir. Að sögn Inga Tryggvason- ar, formanns Stéttarsambandsins, hefúr komið fram í könnun Hagstof- unnar að bændur eigi rétt á hækkun- um í samræmi við verðlagsþróun. Þá er gert ráð fyrir að kúabændur fái fullt verð fyrir 105 milljónir lítra af mjólk, sem er einni milljón lítrum minna en á þessu verðlagsári. Fram- leiðsla þeirra var nokkuð yfir fullvirð- ismagn á síðasta verðlagsári eða um 3 til 4 milljónum lítrum. Þá er jafhframt gert ráð fyrir að Framleiðnisjóður greiði bændum fyrir að draga úr eða hætta búskap og styðji þá til að taka upp nýjar búgrein- ar. Uppkeyptur framleiðsluréttur dregst siðan frá heildarverðábyrgð ríkisins. Framleiðnisjóður hefur meira að spila úr þegar útflutningsbætumar minnka. Á næsta án er gert ráð fyrir að hann hafi um 200 til 250 milljónir króna. Ingi Tryggvason sagði að þessi samningur hefði verið gerður svo snemma til að bændur vissu betur hversu mikið fé þeir ættu að setja á í vetur. „Ég tel að miðað við aðstæður sé þetta skynsamlegur samningur. Hann hlýtur samt að verða nokkuð umdeildur," sagði Ingi Tryggvason. -APH „Eyðni“ er að sigra „Mér þykir merkilegt rannsóknar- efni fyrir málfræðinga hvemig orð ryðja sér til rúms í málinu," sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur, höfúndur orðsins eyðni sem DV hefúr einvörðungu notað í umfjöllun sinni um sjúkdóminn AIDS. „Þetta er því merkilegra þegar haft er í huga að tvö önnur orð vom þegar í notkun er eyðni kom fram, alnæmi og ónæmi- stæring." Orðið eyðni virðist nú smám saman vera að ryðja keppinautum sínum, ónæmistæringu og alnæmi, úr vegi enda um flest betra orð. Verður þess æ oftar vart í umfjöllun fjölmiðla, jafiit sem í munni almennings, að gripið sé til þessa orðs þegar vágesturinn er til umræðu. Ríkisútvarpið hefúr lengst af notað orðið ónæmistæring en það virðist nú vera að víkja fyrir eyðni. Einnig hefúr eyðni sést á síðum Morg- unblaðsins sem annars var búið að ákveða að AIDS héti alnæmi á ís- lensku. I öðrum dagblöðum hafa nöfhin verið á reiki nema í DV sem hefúr haldið tryggð við eyðni frá upp- hafi. „Annars er það skoðun mín að rúm sé fyrir bæði eyðni og alnæmi í þess- ari umræðu. Eyðni myndi þá merkja sjúkdóminn á byijunarstigi en alnæmi lokastig hans þegar ónæmiskerfi lík- amans er hrunið. Það eru þess dæmi að fólk hafi fengið alnæmi án þess að hafa nokkru sinni sýkst af eyðni, til dæmis nýfædd böm sem em næm fyr- ir öllum sjúkdómum, alnæm,“ sagði Páll Bergþórsson. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.