Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Síða 7
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986.
7
Atviimumál
Hundruð opin-
berra starfs-
manna undirbúa
hópuppsagnir
Þegar hafa nokkrir starfshópar í
opinberum störfum ákveðið að grípa
til fjöldauppsagna til að knýja fram
launahækkanir. Aðrir eru i starthol-
unum þessa stundina. Ljóst er að ef
til uppsagna kemur mun heilsugæsla
lamast þvi flestir hinna óánægðu
starfa á því sviði. Hér er um starfs-
hópa að ræða bæði úr BSRB og
BHMR. Ekki er hægt að slá föstu
hversu margir þetta verða en ekki
ólíklegt að þeir verði á annað þúsund.
Sjúkraliðar hafa ákveðið að beita
hópuppsögnum og ætlunin er að segja
upp frá og með 1. október. Þegar hafa
tæplega 300 sjúkraliðar skilað inn
uppsögnum til Sjúkraliðafélagsins.
Ekki er talið ólíklegt að uppsagir verði
um 500. „Samstaðan hefur verið mjög
góð og sýnir best hversu mikil óánægj-
an er með kjörin," sagði Hulda
Ólafsdóttir, formaður Sjúkraliðafé-
lagsins, og upplýsti að byijunarlaun
eftir þriggja mánaða nám væru 24.200
krónur.
Fóstrur, sem starfa hjá Reykjavíkur-
borg og ríkinu, hafa einnig ákveðið
að fara út í hópuppsagnir. Þar er óán-
ægja með launin sú sama og hjá
sjúkraliðum og byijunarlaun þau
sömu eftir þriggja ára nám. í skoðana-
könnun meðal félagsmanna kom fram
að 80 af hundraði töldu að vænsti
kosturinn væri að beita uppsögnum
til að knýja á um betri kjör. Stefrit er
að því að uppsagnimar taki gildi frá
og með 1. nóvember. Margrét Pála
Ólafsdóttir fóstra bendir á að raun-
verulega hafi þegar átt sér stað
hópuppsagnir innan stéttarinnar því
flótti ríki nú þar. „Þetta hefur gert
rekstur dagvistunarstofnana mjög
þungan. Ekki hefúr tekist að manna
þær og draga hefur þurft úr rekstri.
Eina leiðin er að bæta kjörin til að
hægt verði að byggja þessa starfsgrein
upp hér á landi,“ segir Margrét Pála.
Ymsir hópar innan vébanda BHMR
eru einnig að velta fyrir sér uppsögn-
um. Hjúkrunarfræðingar hafa þegar
tekið ákvörðun en ekki er enn ákveð-
ið hvenær uppsagnimar taka gildi.
Þá em iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, fé-
lagsráðgjafar, sálfræðingar og nátt-
úrufræðingar þeir hópar sem taldir em
líklegastir til að fara út í hópuppsagn-
ir.
-APH
Skiptaráðendafundur í þrotabúi Hafskips:
Afstaða tekin
tii mótmæla
Annar skiptaráðendafundurinn í
þrotabúi Hafskips var haldinn í gær
og þar tekin afstaða til þeirra mót-
mæla sem bárust gegn úrskurðum
bústjóra þrotabúsins til krafha í það.
Alls lágu fyrir fundinum 200 slík mót-
mæli.
Fundinn sátu þeir Markús Sigur-
bjömsson skiptaráðandi og bústjór-
amir Gestur Jónsson og Jóhann H.
Nielsson. Er DV leit inn á fundinn
fyrir hádegið höfðu þeir það rólegt því
sá tími var fyrir umdeildar erlendar
kröfur og aðeins einn fulltrúi erlends
kröfuhafa hafði mætt.
Að sögn Gests Jónssonar bústjóra
vom málin afgreidd með tvennum
hætti á fundinum. Annars vegar var
umdeildum kröfum vísað til úrskurðar
skiptaráðenda og hins vegar leitað
eftir fundum með kröfuhafa til að sjá
hvort hægt væri að fá niðurstöðu í
málinu.
-FRl
Sérhannaði sendibfllinn fýrir fatlaða:
Undrandi á orðum
formanns Hreyfils
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyii
„Ég tel tilvalið fyrir einhvem bíl-
stjóranna á Bifreiðastöð Akureyrar
að fá sér svona sérhannaðan sendibíl
fyrir flutning á fötluðum," sagði Vald-
imar Pétursson, Akureyringur og
stjómarmaður í framkvæmdastjóm
Sjálfebjargar, Landssambands fatl-
aðra.
„Það er ekkert vafamál að það fer
mjög vel um fatlaða í þessum bílum,
auk þess sem þeir þurfa ekki að fara
úr hjólastólnum meðan á akstrinum
stendur."
Valdimar sagðist mjög undrandi á
orðum Ólafe Magnússonar, formanns
stjómar Hreyfils, í DV á laugardag
vegna sérhannaðs leigubíls Þóris
Garðarssonar sem nú ekur fyrir Bæ-
jarleiðir.
„Það er mjög ofeagt að leigubílstjór-
ar hjá Hreyfli geti ekið fötluðum svo
framarlega sem þeir séu ekki í vél-
hjólastólum. Það hafa komið upp
vandræði vegna fólks sem er í venju-
legum hjólastólum. Ég get sagt sögu
af sjálfúm mér. Ég var næstum búinn
að missa í eitt skipti af flugvél til
Akureyrar vegna þess að leigubílstjór-
inn, sem var eldri maður, treysti sér
ekki til að taka hjólastólinn upp úr
NY BLOMABUÐ
I
og
■ ngólfsstræti 6
Sími 2-56-56
skottinu. Málið bjargaðist vegna
manns sem átti leið framhjá og hjálp-
aði til.“
Valdimar sagði að fatlaðir utan af
landi, sem kæmu til Reykjavfkur, yrðu
að nota leigubíla mikið. „Ég vona að
þeir hjá Hreyfli sjái ástæðu til að bjóða
upp á slíkan sérhannaðan sendibíl í
framtíðinni og eins stöðin hér á Akur-
eyri,“ sagði Valdimar.
Opið til kl. 20
í kvöld
Leiðin liggur til okkar
í verslanamiðstöð
vesturbæiar.
Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð -
Húsgagnadeild~2. og 3. hæð -
Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð -
Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grillið
Sérverslanir í JL-portinu
Munið barnagæsluna 2. hæð
opið kl. 14-20 föstudaga
og 9-16 laugardaga
JIS
KOBT
j|B
/a a áa a. a
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
“IlZC'Z; Z3E1UPDL
Ej C c C i_lkJ UQQa.í^
l-. L_ _o uuoajiij
U«[ÍUUIiUilkl
Sími 10600
Óskum eftir öllum geröum af
bifreiðum á söluskrá og á
staðinn. Bjartur og rúmgóður
sýningarsalur.
(Erum við hliðina á Hagkaupi.)
Verið velkomin.