Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986.
Utlönd
BorgMdur Arma Jónsdótlir, DV, Paris:
Hryðjuverkin í Paris snerta á einn eða annan hátt líf allra borgarbúa.
Abdallahfjölskyldan kveðst ekkert viðriðin þau hryðjuverk sem framin hafa verið í París til |
til að láta Ibrahim Abdallah skæruliðaforingja lausan.
i að fá frönsku stjórnina
Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags
lést lögreglumaðurinn Bertrand Gaut-
hies, 29 ára að aldri. Hann slasaðist í
sprengingunni sem varð í Renault-
salnum á Champs-Elysées án þess að
komast til meðvitundar. Félagi hans í
lögreglunni, Jean Louis Breteau, 24
ára, fórst samstundis. Þeir eru taldir
hafa bjargað fjölmörgum mannslifum
þegar þeir báru út tösku með sprengj-
um sem fannst í þéttsetnu kaffihúsi.
Gauthies er ellefta fómarlambið sem
týnir lífi á tíu mánuðum en um tvö
hundmð manns liggja meira og minna
særðir á sjúkrahúsum. Flestir slösuð-
ust í sprengingunni fyrir utan versl-
anasamstæðu á Rue de Rennes - sextíu
og einn slasaðist en fimm létust. Þar
voru fómarlömbin aðallega konur og
böm.
Síðustu vikumar hafa verið örlaga-
ríkastar, löggæsla hefur verið hert til
muna og skylda er að bera á sér per-
sónuskilríki á almannafæri. Verðir
laganna em á öðm hverju götuhomi
í miðborginni önnum kafnir við að
athuga ferðir borgaranna. í flestum
tilvikum em það þó vegfarendur með
austurlenskt yfirbragð sem stöðvaðir
em af þessum sökum. Leitað er á öllum
við inngöngu í stæiri verslanir og
samkomuhús.
Röskun á lífsmynstri
Andrúmsloftið hér í Parísarborg er
spennu þmngið. Fólkið á götunum er
þungbúið, færri sjást á kaffihúsum og
stórmarkaðimir em nánast tómir.
Umræðuefnið manna á meðal - númer
eitt, tvö og þrjú - er hryðjuverkin sem
snerta á einn eða annan máta líf allra
borgarbúa og hefur þetta raskað
venjubundnu lífsmynstri.
Skólamir em undir smásjá og nem-
endur hvattir til að dreifa sér strax
og skóla lýkur. Eftirlit er með því
hveijir fara inn á lóð skólanna og í
sumum leikskólum fá foreldrar ekki
að stíga inn fyrir dyr. Áður fjdgdu
þeir bömunum inn en óttinn við að
laumað verði sprengju með einhverju
bamanna hefur valdið því að foreldrar
em þar ekki aufúsugestir. Þannig hef-
ur þetta valdið óróa og ótta, jafhvel
meðal yngstu borgaranna.
Foreldrasamtök ýmiss konar hafa
boðað til fundar til þess að ræða
ástandið og hafa menn ekki síst
áhyggjur af áhrifum ástandsins á
bömin og á skoðanamyndun þeirra.
Heimakær fjölskylda
„Abdallahfjölskyldan er hætt að
sofa,“ segir France Soir sigrihrósandi
í fimm dálka fyrirsögn einn daginn.
Víst er að fæstir Frakkar hafa áhyggj-
ur af svefnleysi þessarar líbönsku
fjölskyldu. Töldust þetta þvi með betri
tíðindum þann daginn.
Annars þykir mál þeirra bræðra allt
hið undarlegasta og fátt meira rætt
héma þessa dagana.
Eftir sprenginguna á Rue de Rennes
var lýst eftir tveimur bræðrum foringj-
ans Ibrahim Abdallah - þess sem inni
situr hér í Frakklandi. Þeir em taldir
bera ábyrgð á hryðjuverkunum og 6
miljónum íslenskra króna var heitið
hverjum þeim sem veitt gæti upplýs-
ingar um dvalarstað þeirra. Þetta er
í fyrsta sinn í sögu frönsku lögregl-
unnar sem slíkt er gert og strax næsta
dag héngu myndir af þeim uppi á öllum
helstu lestarstöðvum.
Veggspjöld með mynd bræðranna
minnti helst á önnur slík frá blóma-
skeiði villta vestursins. Síðar meir var
lýst eftir þremur meðlimum Abdallah-
fjölskyldunnar til viðbótar sem frönsk
yfirvöld vildu gjaman ræða við að
auki.
Ekki leið á löngu þar til bræðumir
skutu upp kollinum - einn af öðrum.
Ekki reyndar hér í Frakklandi heldur
í heimabænum Koubyat í Líbanon.
Fjölskyldan virðist fremur lítið til
ferðalaga fallin því þeir bræður sögð-
ust ekki hafa fæti stigið út fyrir
föðurlandið í lengri tíma - töldu dval-
arlengd á heimastöðvum reyndar í
árum en ekki dögum eða vikum.
Undir lokin var fjölskyldan öll sam-
einuð í Koubyat þar sem haldinn var
blaðamannafundur. Á staðinn mættu
bræðumir vel vopnaðir hríðskotariffl-
um og skammbyssum - greinilega við
öllu búnir. Þar skildu þeir að eigin
sögn lítið í brambolti frönsku lögregl-
unnar og notuðu tækifærið til að
kvarta yfir meðferðinni á gæðablóðinu
Ibrahim bróður sem sæti alsaklaus
inni í frönsku fangelsi. Fæstir Frakkar
trúa einu orði af því sem bræðumir
líbönsku hafa til málanna að leggja
en allt þykir málið hið undarlegasta.
Mótmæli við Óperuna
Ástandið hefur orðið vatn á myllu
öfgamanna til hægri og Jean Marie
Le Pen, leiðtogi Front National, hefur
hamrað jámið á meðan heitt er. Aug-
lýstur fundur hans og mótmælaganga
gegn hryðjuverkum voru bönnuð eins
og annað núna en hann lýsti því yfir
að fundur yrði samt haldinn fyrir
framan Óperuna. ■
Þangað mætti mannfjöldi og Jean
Marie Le Pen hélt eina af sínum frægu
ræðum þar sem meginkjaminn snerist
um ættjarðarást. „Ég sagði ykkur
þetta fyrir löngu,“ sagði hann. Þar á
hann við hertar reglur um vegabréfsá-
ritun og fleira. Hann heimtaði dauðar-
efsingu innleidda á ný hér í
Frakklandi og mannfjöldinn á torginu
æpti slagorð um ættjörðina og dauða-
dóma.
Foringi ungliðanna
Foringi ungliða Front National -
Martial Bilt - sagðist í samtali við
DV vera sannfærður um að flokkurinn
myndi stórauka fylgi sitt í næstu kosn-
ingum. Það gerði flokkurinn reyndar
í síðustu kosningum og er nú orðinn
jafnstór og kommúnistaflokkurinn.
Bilt stjómaði slagorðahrópum og hyll-
ingunum til foringjans á staðnum -
greinilegur áróðursmeistari flokksins.
Hann tók að sér myndatöku fyrir
DV með glöðú geði; ekkert tækifæri
skal ónotað til að koma skoðunum
foringjans á framfæri.
Fyrir utan stórverslunina á Rue de
Renne, þar sem saklaus böm og konur
voru fómarlömb, er blómvöndur á
gangstéttinni. Hann er frá ýmsum
þekktum frönskum borgurum sem lýst
hafa yfir andúð á hryðjuverkunum.
Vegfarendur standa þögulir og virða
fyrir sér blómin og skemmdirnar á
næstu byggingum. Karlmaður kemur
aðvífandi með blóm í fangi, leggur þau
niður á gangstéttina, hristir höfuðið
og gengur sína leið.
Hver á þennan poka?
Taugaveiklun er áberandi og allir
pokar og töskur undir smásjá. Ef eng-
inn sjáanlegur eigandi er nærri
hendast allir nærstaddir í burtu og
hverfa á örskotsstundu. Spumingin
„hver á þennan poka?“ er að verða
nokkuð algeng héma og það er fljót-
legasta leiðin til þess rýma lestarvagna
og verslanir.
Eitt skiptið var plastpoki undir sæti
í lestinni til Vincennes kastalans sem
hreinlega tæmdi viðkomandi vagn á
skammri stundu. Við nánari athugun
reyndist pokinn innihalda appelsínur,
hýði og bréfarusl. Þama kom þó í ljós
að athugun á slíkum poka er sérís-
lensk hegðun sem verður vist örugg-
lega ekki endurtekin.
Daginn áður fannst í hraðlestinni á
sömu leið sprengja sem nægt hefði til
að eyða kerfinu á stóru svæði og um
kvöldið var aðvörun í öllum fréttatím-
um sjónvarpsins þar sem fólki var
ráðlagt að snerta hvorki poka, töskur
eða annað sem það ekki vissi hvað
innihéldi og enginn eigandi fyndist að.
Skopteiknarar hafa þó ekki getað
látið hjá líða að túlka ástandið. í
France-Soir hefur teiknarinn Prez
meðal annars dundað við að tylla
sprengikúlum á topp Eiffeltumsins.
Mun mönnum til skiptis grátur og
hlátur f huga.
Víst er að daglegt líf Parísarbúa
hefur tekið talsverðum breytingum þó
að allir séu sammála um að lífið verði
að hafa sinn vanalega gang. Og varla
getur það talist auðvelt hlutskipti að
vera Líbani í Parísarborg þessa dag-
ana.
Fimm mánaða friður?
Eftir fyrstu sprengingamar kom
Chirac, forsætisráðherra Frakklands,
fram í sjónvarpi og lýsti yfir stríði
Frakklands á hendur hjyðjuverka-
mönnum. Þeir svömðu með því að
sprengja í svo að segja næsta húsi við
yfirstandandi fund forsætisráðherrans
um öryggismál og í síðustu yfirlýsingu
sagði að röðin væri komin að forseta-
höllinni.
Nú segja óstaðfestar fregnir að náðst
hafi fimm mánaða vopnahlé við
hryðjuverkamennina. Árásimar
standi í beinu sambandi við leynilegan
samning sem gerður hafi verið um
fangaskipti. Líbanir hafi sleppt einum
Frakka strax og því átt von á að Ibra-
him Abdallah yrði leystur úr haldi í
staðinn. Það gerðist ekki og því átti
að kenna franska forsætisráðherran-
um betri siði í samningum. Vart verður
því að vænta tíðinda fyrr en um mán-
aðamótin janúar/febrúar ef báðir
aðilar standa við gefin loforð sín.
Hver á þennan poka?
DV upplifir ógnaröld í París