Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Side 9
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. 9 Bólivískir kókaínbændur á leið með uppskeru sina til dreifingaraðila í nánd við höfuðborgina La Paz. Bólivískir og bandarískir embættismenn segja að sameiginlegar aðgerðir ríkjanna gegn kókaínframleiðendum í sumar hafi borið verulegan árangur og truflað eiturlyfjaframleiðslu i landinu Bandarískar her- sveitir til Perú, Kólumbíu og Ecuador? Bandaríska blaðið New York Times skýrir frá því í dag að bandarísk yfir- völd eigi nú í viðræðum við stjómvöld í Perú, Kólumbíu og Ecuador um að senda sérþjálfaða bandaríska hermenn á vettvang í þessum ríkjum til aðstoð- ar í baráttumii gegn ræktendum eiturlyfja. Bandarískar sérsveitir búnar þyrlum nutu fyrir skömmu aðstoðar yfirvalda í Bólivíu við að komast yfir og eyði- leggja uppskem kókaínbænda viðs vegar um Bólivíu. Haft er eftir banda- rískum embættismönnum að aðgerð- imar í Bóliviu hafi heppnast vel og því sé ekkert til fyrirstöðu að reyna svipaðar aðgerðir í öðrum ríkjum Rómönsku Ameríku. Wall Street Journal bannað í Malaysíu Stjómvöld i Malaysíu hafa bannað sölu og dreifingu á Asíuútgáfú fjár- málablaðsins Wall Street Joumal i landinu í þrjá mánuði og saka út- gefendur dagblaðsins um að hafa brotið hefðir í útgáfústarfsemi með of miklu frjálslyndi í efni blaðsins. Asíuútgáfa Wall Street Joumal er systurútgáfa bandarísks blaðs er gefið er út í New York og fjallar um efna- hags- og fjármál. Stjómvöld í Malaysíu hafa áður kvartað yfir umfjöllun blaðsins á mál- efnum landsins og þótt hún helst til of gagnrýnin. 1 tilkynningu innanríkisráðuneytis landsins í morgun segir að stjómvöld í Malaysíu muni i framtíðinni ekki hika við að beita svipuðum aðferðum gegn hverjum þeim fjölmiðli er uppvís yrði að því að grafa undan áliti og ímynd þjóðarinnar með efnislegum rangtúlkunum er brytu gegn löggjöf landsins og stefndu hagsmunum landsins í voða. Klofningur í sænsku launþegasamtökunum Hörð átök eiga sér stað á þingi sænsku launþegasamtakanna sem nú stendur yfir. Blossað hafa upp deilur á milli fúlltrúa opinberra starfsmanna og fúlltrúa starfsmanna einkafyrir- tækja. „Opinberir starfsmenn hafa rofið samstöðuna," sagði til dæmis Andeis Stendalen, .formaður félags námu- manna. Stig Malm, formaður laun- þegasamtakanna, hefur nú viðurkennt að samtökunum hefúr mistekist. í nótt beið Malm mikinn persónulegan ósig- ur á þinginu. 23 af 24 ræðumönnum á þinginu létu í ljósi eindregna andstöðu við tillögur hans um að lögð verði niður skylduaðild félaga launþega- samtakanna að jafnaðarmanna- flokknum. Það atriði hefur lengi verið mjög umdeilt og jafiiaðarmannaflokk- urinn harðlega gagmýndur fyrir að misnota launþegahreyfingima á þann hátt. Fjarlægðu handsprengju úr öxl sovésks hermanns Sovéskir skurðlæknar fjarlægðu handsprengju úr öxl hermanns sem særst hafði í Afganistan. Að því er sagði í Pravda, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, hafði hermað- urinn þegar gengist undir skurðaðgerð á vígstöðvunum þar sem fjarlægð voru sprengjubrot úr líkama hans. Þegar hann hafði verið sendur til Tadzhikistan til hvíldar uppgötvaðist við röntgenmyndatöku að hand- sprengja var í vöðvum hægri axlar. Voru læknamir í sérstökum hlífðar- fötum þegar handsprengjan var fjíir- lægð og stóðu aðrir læknar viðbúnir þar hjá ef allt liðið skyldi nú springa í loft upp. Handsprengjan var síðan gerð óvirk og hermanninum heilsaðist vel eftir aðgerðina. Andstaðan gegn Banda- ríkjunum aldrei meiri Höfúðandstæðingur stjómarinnar í Pakistan, Rasul Buksh Palejo, sagði í viðtali við Reuter fréttastofúna í morgun að andstaðan gegn Bandaríkj- unum í Pakistan hefði aldrei verið meiri í sögu landsins. Telur hann að hætta sé á því að leiðtogi stjómarand- stöðunnar, Benazir Bhutto, tapi baráttunni nema Bandaríkin komi henni til aðstoðar. Palejo sat átta ár í fangelsi undir stjóm Zia ul-Haq en var sleppt fyrir tilstilli Amnesty Intemational. Útlönd Franskar hersveitir á leið til Togo Skothríð hefur hafist að nýju í Lome i Togo eftir misheppnaða árás á herbúðir Gnassingbe Eyadema, forseta landsins. Þykir það vísbend- ing um að ástandið sé alvarlegra en fyrst var talið og eimtig sú staðreynd að Frakkland hefúr ákveðið að senda hersveitir til landsins. Toga var áður frönsk nýlenda og 1963 var gerður vamarsamningur milli land- anna. Að sögn yfirvalda í Togo tóku 50 manns þátt í árásinni á herbúðimar og aðrar mikilvægar byggingar að- faranótt þriðjudagsins. Var ætlunin að grípa eða ráða af dögum forseta landsins að því er heryfirvöld segja. Ríkisútvarpið í Togo skýrði frá því að tíu árásarmenn hafi verið hand- teknir í gær og er þá tala handtek- inna orðin 29. Tilkynnt var að 7 árásarmenn hafi látið lífið í upphafi átakanna. Benti einn sendifulltrúi á að þá gætu ekki margir af þeim 50 sem sagt var að hefðu tekið þátt í árásinni leikið lausum hala og samt hafi þótt ástæða til að kalla á fransk- ar hersveitir til aðstoðar. Yfirvöld hafa lýst því yfir að um sé að ræða hryðjuverkastarfsemi en ekki tilraun til að kollvarpa stjóm- inni. En nýjar skothríðir og sú staðreynd að engin gagnrýni beind- ist að Ghana, þaðan sem hryðju- verkamennirnir em sagðir koma, studdi þá skoðun sendifulltrúanna að um innanríkisvandamál væri að ræða. Eyadema hefur stýrt Togo með jámhendi frá því að hann hrifsaði til sín völdin fyrir 19 árum. Flestir andstæðingar . stjómarinnar em í útlegð í Frakklandi og Ghana en stjómin í Accra segist ekki eiga hlutdeild í árásinni. Tveir óbreyttir borgarar í Ghana urðu fyrir skotum í upphafi árásar- innar og vom uppi vangaveltur um það í útvarpinu í Accra hvort stjóm- in í Ghana myndi ekki loka landa- mærum landanna. Sigursæl engisprettu- herferð í Henanhéraði Þúsundir kínverskra bænda í Hen- an héraði hafa undanfama daga háð mikla orrustu við engisprettur er heij- að hafa á héraðið að undanfömu. Er haft eftir fréttástofu Nýja Kína að hér sé um mesta engisprettufarald- ur að ræða er hrjáð hafi Mið-Kína i fjörutíu og fjögur ár. Miklir þurrkar hafa geisað í Mið- Kína í sumar og hafa þeir orðið til að auka enn á engisprettufaraldurinn. Er haft eftir fréttastofunni að sextán þúsund bændum í héraðinu hafi að mestu tekist að þagga niður í engi- sprettunum með skordýraeitri er dreift hafi verið á skipulegan hátt í Henan héraði og hafi herferðin staðið yfir í tuttugu daga. Segir fréttastofan ár- angurinn hafa verið svo góðan að víða sjáist ekki í auða jörð fyrir dauðum engisprettum og sé landið víða sem svart yfir að líta. Mfkiö úrval af CASIO hljómborðum, synthesizerum og fylgihlutum (RZ-1 trommuheili, SZ-1 sequencer) í okkar rúmgóðu nýju verslun að Laugavegi 26. 1 “ umboðið, Laugavegi 26. Sími 91-21615.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.