Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 26
38
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986.
Loðnu-
bræðsl-
an i
fullum
gangi
Þorgerður Maknquist, DV, Neskaupstað:
Loðnubræðslan í Neskaupstað fór
í gang 9. september sl. og hefur starf-
að óslitið síðan.
Að sögn Freysteins Bjamasonar
verksmiðjustjóra hafa borist hingað
samtals 14000 tonn af loðnu. Af-
kastageta bræðslunnar er um það
bil 800 tonn á sólarhring.
Loðnubræðslan á Neskaupstað hefur starfað óslitið undanfarnar vikur, eins og reykurinn ur strompunum ber greinilega með sér. DV-mynd Þorgerður.
Loönuskipin hafa aflað vel. Hér er verið að landa úr Svani RE.
DV-mynd Þorgerður
Skipin hafa aflað vel
Þorgeiður Malmquist, DV, Neskaupslað:
Loðnuveiði hefúr gengið vel hjá
Norðfjarðarskipunum, að sögn Jó-
hanns K. Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra Síldarvinnslunnar á Neskaup-
stað.
Beitir NK hélt til veiða í byijun
þessa mánaðar og hefur landað um
5600 tonnum úr fjórum veiðiferðum.
Hann var á leiðinni í land er þetta var
ritað með fullfermi. Magnús NK hélt
til veiða í byrjun ágústmánaðar og
hefur honum einnig gengið vel. Hann
hefur aðeins landað einu sinni í Nes-
kaupstað, 530 tonnum.
Börkur NK var á leið til veiða og
er undirbúningur hans fyrir loðnu-
veiðamar á lokastigi. Til dæmis var
settur í hann krani, stór og mikill.
Krani þessi nefnist aðdráttarkrani og
er með blökk. Á hann að auðvelda og
minnka álagið á mannskapnum þegar
nótin er dregin um borð.Börkur NK
er eitt af fáum skipum i loðnuflotanur,,
með þessa nýjung.
Að sögn Más Lárussonar, yfirverk-
stjóra í frystihúsi Sfldarvinnslunnar,
hefur afli smábáta héðan verið tregur
i sumar en var ágætur í vetur og vor.
Veðrið undanfamar vikur hefúr verið
mjög gott, sannkallað gott haustveð-
ur, en frekar kalt.
Neskaupstaður:
Brotist inn á bæiarskrifstofur
Þorgerður Malmquist, DV, Neskaiqælað:
Brotist var inn á bæjarskrifstofum-
ar í Neskaupstað nýlega. Að sögn
Sveins Ámasonar fjármálastjóra var
engu stolið, aðeins skemmt. Tvær
hurðir vom brotnar, þar af önnur lögð
í rúst, skrifborð eyðilagt og fleiri
skemmdarverk unnin. Hér virðist því
skemmdarfýsnin eingöngu hafa ráðið
ferðinni hjá hinum óboðnu gestum,
því eins og áður sagði var engu stolið.
Norðfjorður:
Berjaspretta með betra móti
Þorgerður Malmquist DV, Neskaupslað:
Berjatínslu í Norðfirði lauk fyrir um
það bil hálfum mánuði. Fróðir menn
segja að sjaldan hafi verið eins mikið
af aðalbláberjum. Hins vegar var lítið
sem ekkert af blábeijum og krækiber-
in rétt í meðallagi.
Mikið er búið að tína af berjum og
er framleiðslan eftir því, bláberjasulta,
hlaup, ber til niðursuðu, í snaps, vín
og fleira.
Það voru margar hendur á lofti þegar þökur voru lagðar á hinn nýja grasvöll Þróttaranna, enda langþráð takmark i
augsýn. DV-mynd Þorgerður.
Loksins fengu Þróttaramir grasvöll
Þoigeiður Malmquist DV, Neskaupstað:
Knattspymudeild Þróttar í Nes-
kaupstað hefúr nú loksins fengið eigin
grasvöll. Bærinn hafði lagt til land-
svæði undir völlinn og efni í hann.
Þróttarar unnu svo að þvi hörðum
höndum á dögunum að leggja þökur
á völlinn. Nutu þeir aðstoðar margra
velunnara sem lögðu drjúgan skerf af
mörkum.
Þróttarar hafa að undanfömu að-
eins haft malarvöll til umráða. Með
þessum nýja velli, sem er innst í bæn-
um, batnar aðstaða þeirra til mikilla
muna.
Utimarkaðurinn alltaf vinsæll
Þorgerður Þ&lmquist DV, Neskaupstað:
Útimarkaðir í Neskaupstað hafa
notið mikilla vinsælda í sumar. Alls
voru haldnir þrír markaðir og vom
þeir í senn sölu-, flóa- og prúttmarkað-
ir. Síðasti markaðurinn var þó stærst-
ur og veigamestur. Þar vom verslanir
og fyrirtæki með vörur sínar og einnig
komu bændur úr sveitinni og seldu
afúrðir sínar, svo sem kartöflur og
grænmeti.
Nokkrir vom með sölu á fáséðum
ávöxtum, alla vega hér í bæ, svo sem
kókoshnetum, ananas o.fl. Spáð var í
lófa við góðar undirtektir og kvenfé-
lagið Nanna seldi kaffi og meðlæti,
einnig Sjálfsbjörg.
Skátamir vora með skammtanir og
Stuðmenn mættu á svæðið en þeir'
vom með dansleik um kvöldið í Egils-
búð. Útimarkaðinum lauk svo með
grillveislu um kvöldið og var fólkið í
bænum mjög ánægt með þetta ffamtak
enda skemmtileg tilbreyting.
Til gamans má geta þess að alla þrjá
dagéma, sem útimarkaðurinn var hald-
inn, höfðu veðurfræðingar spáð leið-
indaveðrí. Þrátt fyrir það var sólskin
og skínandi veður svo útimarkaðurinn
hefur greinilega haft blessun veður-
guðanna yfir sér.
Blessuð bömin sváfu í vögnunum í veðurbiiðunni meðan mæöumar, eða feðurnir, gerðu góð kaup.
DV-myndir Þorgerður
Það kenndi ýmissa grasa á útimarkaðinum sem blómstraði á Neskaupstað i
sumar.