Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Page 33
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986.
46
Sviðsljós "
Christina Onassis
Ölyginn
sagði. . .
A-HA
tríóið norska er ekki eins vin-
sælt meðal kolleganna og
meðal almennings. Margir
enskir tónlistarmenn og
popparar bera þeim slæma
söguna og láta það ganga
meðal manna að A-HA eigi
ekki langt eftir.
Einungis sex mánuðum eftir að
Christina og Thierry eigimaður
hennar eignuðust dótturina Athinu
Christina og Thierry um það bil sem
Christina var ennþá nokkrum kilóum
of þung. En nú eru aukakílóin á bak
og burt. Hún lagðist inn á megrun-
arhæli á Spáni.
varð Thierry faðir að enn öðru barni,
sem sænsk kona fæddi í þennan
heim. En Christina vill ekki missa
Thierry og berst um á hæl og hnakka
til þess að halda honum. Hún borgar
alla hans eyðslu og ekki bara það,
hún ýtir undir kjaftasögumar um
framhjáhald hans.
Hjónaband í tvísýnu
Þegar Christina Onassis giftist
Thierry Roussel trúðu fáir að hjóna-
bandið mundi vara. Þrátt fyrir að
Christina væri bæði ung og rík hafði
rugluð fortíð markað spor í persónu-
leika hennar. Hún er skilnaðarbarn
og þegar hún var 34 ára átti hún
þrjú hjónabönd að baki. Þetta leit
ekki vel út.
Thierry var heldur enginn engill.
Þótt hann hefði aldrei gifst átti hann
ótal ástarsambönd að baki. En hann
fékk Christinu til að geisla. Hafði
lífshamingjan loks barið að dyrum
hjá þessari ríku stúlku?
Sænska fyrirsætan
Thierry tókst að gera Christinu
vanfæra. Hana hafði lengi langað til
að eignast dóttur og erfingja. En
Adam var ekki lengi í Paradís, frétt-
ir hófu að berast af sænsku fyrir-
sætunni, hinni fögru Gabi Marianne
Landhage, sem síðan fæddi Thierry
sonin Eric, aðeins sex mánuðum eft-
ir að Christina átti.
Thierry og Gabi höfðu þekkst í
mörg ár, en Gabi vann í París, og
auk þess voru þau í sambandi löngu
áður en Thierry og Christina'kynnt-
ust.
Sögur herma að Thierry hafi heim-
sótt soninn, sem nú býr með móður
sinni í Malmö.
Christina 30 kílóum léttari
En Christina ákvað að láta þessi
tengsl eiginmannsins við Gabi ekki
á sig fá og hrista af sér afbrýðisemina
og tilfinningastríðið. Hjónabands-
erfiðleikarnir eru nú horfnir út í
veður og vind í bili, Thierry fluttur
heim aftur og þau hjónin ganga arm
í arm á landareign sinni í Sviss.
Með stuðningi Thierrys ákvað
Christina að fara enn einu sinni á
megrunarhæli. Og frá Buchinger-
meðferðarheimilinu á Marbella á
Spáni kom hún 30 kílóum léttari.
Nú langar Christinu að eignast ann-
að barn.
Christina hefur nú lést um 30 kíló.
Hún er ekki lengur 96 kiló heidur
66 kíló.
Christina gerir lýðum Ijóst hver er gift Thierry.
"f
Agnetha
Fáltskog
er nú aftur á lausu. í hálft
ár var hún í allgóðu sam-
bandi við plötuupptöku-
stjórann Benny Hedlund
sem er þó nokkuð yngri en
Agnetha. Hann flutti inn til
Agnethu og varð stjúpfaðir
tveggja barna hennar. En
þessi líflegi maður átti erfitt
með að setja sig í hlutverk
ástríks heimilisföður og gat
ekki lifað samkvæmt vænt-
ingum fjölskyldunnar.
Jock Ewing
í Dallas, sem Jim Davis lék
en hætti því er hann dó fyrir
nokkrum árum, mun brátt
birtast aftur í framhalds-
myndaflokknum. Að vísu
geta höfundar Dallas ekki
vakið fólk upp frá dauðum,
a.m.k. ekki ennþá. Þess
vegna hafa þeir fengið leik-
arann Steve Forrest til að
leika Jock. En auðvitað eru
notaðar hókus-pókus að-
ferðir til þess að gera þetta
allt trúverðugt. Þar koma
plastskurðaðgerðir að góð-
um notum.
H*