Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. Fréttir Ronald Reagan Bandarikjaforseti stígur út úr flugvél sinni. Forsetinn hneppti frakkanum upp í háls í vörn gegn islenskri veðráttu. DV-mynd Ragnar Th. Brosandi forseti i íslenskri rigningu Ronald Reagan brosti sínu breiðasta þegar hann sté út úr flugvél sinni og á íslenska grund klukkan 19.05 í gær- kvöldi. Úti fyrir beið hans íslensk sendinefnd með Vigdísi Finnbogadótt- ur og Steingrím Hermannsson í broddi fylkingar auk §ölda blaða- og frétta- manna og löggæslu- og öiyggisvarða. Það var þrungið spennu loftið á Keflavíkurflugvelli meðan beðið var komu Reagans Bandaríkjaforseta og fylgdarliðs hans. Flugstöðin hafði ver- ið rýmd nokkru áður og þar var ótrúlegur fjöldi íslenskra og banda- rískra öryggisvarða. Þeir blaða- og fréttamenn, sem leyft hafði verið að vera viðstaddir, voru merktir sérstak- lega og þurftu þeir að fara í gegnum mjög stranga tollleit. Var bæði leitað mjög nákvæmlega á fólki, svo og í farteski þeirra. Þurftu ljósmyndarar meðal annars að smella af vélum sín- um til að sýna ffam á að þar fór ekki dulbúin sprengja. Þegar út á sjálfan völlinn kom var svæðið þar sem vélin átti að stansa vandlega girt. Fyrir utan girðinguna var pallur þar sem blaða- og ffétta- menn máttu vera og hvert sem litið var voru öryggisverðir. Rétt fyrir klukkan 19 lenti þyrla Landhelgisgæslunnar á flugvellinum. Þar fór íslenska sendinefadin sem tók á móti Reagan. Á slaginu sjö lenti vél forsetans og fimm mínútum seinna renndi vélin upp að flugstöðvarbygg- ingunni. Rauður dregill var lagður frá landgangi vélarinnar og að bíl forset- ans sem beið hans. Fyrir aftan bílinn biðu um 30 bflar til viðbótar sem voru fyrir fylgdarlið forsetans. Nú röðuðu sér upp við dregilinn rauða sjö íslenskir lögreglumenn og stóðu heiðursvörð. íslenska sendi- nefndin raðaði sér einnig upp á dreglinum fyrir framan lögreglumenn- ina. Næst flugvélinni var Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, þá Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra, Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra, Guðmundur Bene- diktsson, ráðuneytisstjóri í forsætis- ráðuneytinu, Ingvi Ingvason, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, og Halldór Reynisson forsetarit- ari. Magnaðist nú spennan meðan beðið var þess að hurð vélarinnar opnaðist. Allir mændu á dymar og þær opnuð- ust. Fyrstir út voru öryggisverðir og loks kom forsetinn sjálfur. Hann staldraði við í dyrunum. Honum virt- ist hálfkalt, en brosti þó, hneppti hvítum frakkanum upp í háls, setti hendur í vasana og gekk svo hratt og örugglega niður landganginn. Hann heilsaði Vigdísi, svo Steingrími og öðrum úr sendinefridinni. Þá brá hann hægri hendi að enninu og heilsaði heiðursverðinum. Allt í kring voru öryggisverðir og gutu augunum allt í kring. Þeir vildu greinilega að forset- inn flýtti sér inn í bílinn. En hann virtist þurfa að tala meira við Vigdísi. Hann gekk aftur til hennar og þau spjölluðu saman drjúga stund á meðan þau gengu í átt til bílsins sem beið hans. Þau létu ekki rigninguna á sig fá. Svo kvöddust þau með virktum. Reagan fór inn í bíl sinn ásamt ör- yggisvörðum. Við bílinn stóðu aðrir öryggisverðir á meðan beðið var þess að bílalestin færi af stað. Og þess var ekki langt að bíða. Öiyggisverðimir, sem staðið höfðu við bílinn stukku inn í næsta bíl og haldið var áleiðis til Reykjavíkur undir blikkandi ljósum lögreglunnar. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti var kominn til íslands í fyrsta sinn. -KÞ Islenska sendinefndin sem tók á móti Bandaríkjaforseta. Hér heilsar forsetinn Steingrími Hermannssyni. Á milli þeirra er Vigdís Finnbogadóttir. DV-mynd GVA Matthias A. Mathiesen utanríkisráðherra heilsar Bandarikjaforseta. A milli þeirra stendur Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. DV-mynd GVA Bandaríkjaforseti heilsar Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. DV-mynd Ragnar Th. Það fór vel á með þeim Vigdísi og Reagan og þau spjolluðu saman drjuga stuna og létu rigning- una lítt á sig fá. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.