Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. 6 Fréttir Jón Ottar Ragnarsson sjónvarpsstjóri í upphafsávarpi sínu í gær. DV-mynd KAE. Fyrsta útsendingin „Frelsi í íslenskri íjölmiðlun er loks- ins orðið staðreynd. Einokun ríkisins á öldum ljósvakans hefur verið afhum- in. Stöð tvö er að hefja göngu sína. Ég óska öllum landsmönnum, fjær og nær, til hamingju á þessum tímamót- um.“ Með þessum orðum Jóns Óttars Ragnarssonar hófst útsending Stöðvar tvö, fyrstu einkasjónvarpsstöðvarinn- ar hérlendís, klukkan 18.4ð í gær. Eftir fimm mínútna ávarp sjónvarpsstjórans átti bein útsending frá Keflavíkui flugvelli að hefjast, en hún misfórst vegna tæknilegra örðugleika.-KMU Flugkennsla fellur „Okkur líst eðlilega ekki vel á þetta. Það er alveg víst að flugkennsla fellur niður um helgina. Hér verður ekkert hreyft fyrr en klukkan þrjú á mánu- dag,“ sagði Hafsteinn Pálsson, flug- kennari og framkvæmdastjóri daglegs reksturs hjá Flugskólanum Flugtaki á Reykjavíkurflugvelli, um takmarkanir á flugi. „Mér finnst fulllangt að láta þetta gilda til klukkan þrjú á mánudag. Reagan og Gorbatsjov fara báðir á sunnudag," sagði Hafsteinn. niður „Það fer nokkuð eftir veðri og vind- um. Ef það verður sterk norðanátt gæti orðið vandamál," sagði Albert Baldursson, flugmaður hjá Flugleigu Sverris Þóroddssonar, er DV spurði hvaða áhrif takmarkanir á flugumferð hefðu á starfsemi félagsins. „Menn þurfa að sækja um undan- þágu með þriggja klukkustunda fyrir- vara. Ég sé enga ástæða til að ætla að undanþágur verði ekki veittar," sagði Albert. -KMU „Fiskurmn héma miklu betri en heima“ - segir Nicholas Horrock frá Chicago Tribune „Það sem mér hefur fundist ánægju- legast við dvölina hér er fiskurinn sem ég hef fengið á veitingahúsunum. Hann er miklu betri en heima en ég er fiskæta og vil helst ekki borða kjöt,“ sagði Nicholas Horrock, yfir- maður Washingtonskrifstofu banda- ríska stórblaðsins Chicago Tribune, í samtali við DV er við hittum hann í alþjóðlegu blaðamannamiðstöðinni ^ úti í Hagaskóla. Horrock hefúr dvalið hérlendis und- anfama fjóra daga ásamt þremur öðrum frá blaðinu en alls verða blaða- menn Tribune fimm vegna leiðtoga- fundarins. Sá fimmti kom með forsetavél Reagans í gær. Aðspurður hvað þeir hefðu gert þessa daga míeðan ekkert var að ger- ast sagði Horrock að þeir hefðu sent tvær fréttir, aðra um undirbúning fs- lendinga, sem hann taldi furðu góðan miðað við aðstæður, og hina um hlut- verk íslands í stríðsáætlunum NATO og Bandaríkjanna með tilliti til Kefla- víkurstöðvarinnar „Aðaltilgangur okkar með að koma svona snemma til landsins er að hafa allt á hreinu þegar leiðtogamir loksins koma. Við vorum hræddir við smæð landsins og hnökra í undirbúningi en þetta hefur blessast," sagði Horrock. Að öðm leyti sagðist hann vera mik- ill skokkari og hefði eytt töluverðum tíma í að skokka umhverfis höfiiina auk þess sem þeir félagar hefðu átt nokkra huggulega kvöldverði á veit- ingahúsum hérlendis. „Ég hef borðað lax, lúðu og ýsu hér. Þar sem ég bý í Washington fæ ég stundum íslenskan fisk en hann er frosinn og miklu síðri vara. Hér fékk ég bækling með fiskréttauppskriftum sem ég ætla að gefa konunni minni er ég kem heim.“ -FRI Þrettán jarð- stöðvar leyfðar Póstur og sími hefúr veitt leyfi fyrir notkun 13 jarðstöðva á meðan á leið- togafúndinum stendur. Tíu þeirra eru á vegum sjónvarpsstöðva og er CBS með 4 stöðvar, eina stóra og þrjár litl- ar. NBC er með tvær stöðvar, ABC og CNN með eina hvor og EBU er með tvær stöðvar sem eru við Mela- skóla. Fréttamiðstöð Hvíta hússins og að- almiðstöð Hvíta hússins í gamla verslunarskólahúsinu við Grundarstíg eru með eina stöð hvor og loks hafa bandarísku útvarpsstöðvamar tekið eina jarðstöð sameiginlega til útvarps- sendinga. -SJ SJÁLFSTÆÐISMENN Veljum Guðmund H. Garðarsson í O sæti Kosningaskrifstofan er á jarðhæð Húss verslunarinnar, gengið inn Miklubraut- ar megin. Skrifstofan er opin frá 9.00-22.00 og simar eru 681841 og 681845. Stuðningsmenn. 22" Dicfivision 3476 HiFi stereo. Tölvustýring á myndlarhpa, HiFi tuner, 99 Canal og fl. og fl. Tæki með öllu. Verð aðeins kr. 49.920,-stgr. 22" 3425 með fjarstýringu. Av inngangur, 29 rás- ir og fl. og fl. Verð aðeins kr. 44.920,- stgr. VESTUR-ÞÝSK GÆÐAVARA 3906 mytpdbandstæki, hæð 9,5 cm, framhlaðið, 3 möguleikar á upptöku, 14 daga minni, 12 rás- ir, scart tengi. Vestur-þýsk - japönsk gæðavara. Verð aðeins kr. 39.990,- stgr. 14" 3106, 8 rásir, 3 vatta hátalari. Verð aðeins kr. 24.990,- stgr Umboðsmenn um land allt. Hjá Óla Keflavik Raleindavirkinn Grindavik Árvirkinn Selfossi Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli Neisti Vestmeyjum Hátiöni Höfn, Hornaf. Rafvirkinn Esklfirði Kaupl. Héraösbúa Egilsstöðum Kaupf. Þingeyinga Húsavik KEA Akureyri Radíóþjónustan Olafsfirði Kaupf. Skagfirðinga Sauöárkróki Oddur Sigurðsson Hvammstanga Póllinn hf. ísafirði Kaupf. Stykkishólms Stykkishólmi Verslunin Blómsturvellir Hellissandi Húsprýði Borgarnesi Skagavideó Akranesi JL-húsið Reykjavík Skipholti 7 - Simar 20080 og 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.