Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. 39 Fréttir Púlsinn óbreyttur hjá lögreglustjóranum - er fórsetaflugvélin tók stefnuna á Keflavík Þegar flugvél Bandaríkjaforseta, Air Force One, hóf sig á loft í Washington með stefnu á Islands sat Þorgeir Þor- steinsson, lögreglustjóri á Keflavíkur- flugvelli, og drakk kaffi í kafíistofu flugstöðvarbyggingarinnar á Vellin- um: „Hér er allt undir efti.liti. Púlsinn hefur ekkert hækkað hjá mér.“ 800 milljónir Á næsta borði sat Rúnar Gunnars- son, útsendingarstjóri hjá ríkissjón- varpinu, sem átti það verk fyrir höndum að velja myndfleti í beina sjónvarpsútsendingu í gegnum gervi- tungl um gervalla jarðarkringluna fyrir 800 milljónir áhorfenda. Honum virtist ekki brugðið frekar en lögreglu- stjóranum. Þeir voru með sama púls. Frosið logn Andrúmsloftið í flugstöðvarbygging- unni var hins vegar frosið. Það hefði mátt heyra saumnál detta. Þetta var lognið á undan storminum. Vélknúinn götusópari hringsólaði um flugvöllinn og sópaði rigningu af asfaltinu í allar áttir. Reyndar var von á tveimur áætl- Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli: - Allt undir eftirliti. DV-myndir GVA. Kindurnar burt Eini íbúinn við Keflavíkurveginn, Theódór Guðlaugsson íjárvörður, sem býr í kofa í nokkurra metra fjarlægð frá vegarkantinum á móts við Voga, hafði fengið fyrirskipanir um að reka allt fé frá veginum áður en bílalestin birtist: „Ég skil nú ekki hvaða gagn það á að gera. Mennimir ætla að aka héma fram hjá á 150 kílómetra hraða þannig að það tæki nú enginn eftir því þó ein kind eða tvær stæðu á veg- inum,“ sagði Theódór. Tvær amerískar Þær Jeanet Tracey og Chaterin Cor- bitt vom hins vegar hvorki að hugsa um kindur né hámarkshraða er DV hitti þær í innkaupaferð á Keflavíkur- flugvelli. Þær hlökkuðu báðar mikið til að fá að sjá forseta sinn augliti til auglitis þótt þær drægju í efa að þeim yrði að ósk sinni: „Hann stoppar vist ekkert héma á leið sinni til Reykjavíkur þannig að við verðum að vona að hann gefi sér tima til að heilsa upp á okkur á leið- inni heim. Það hefur eitthvað verið Runar Gunnarsson, ábyrgðarmaður á óbrenglaðri mynd til 800 milljóna áhorfenda. unarflugvélum fyrir klukkan 17 en eftir það átti að loka flugvellinum fyr- ir allri umferð. Þá mættu öryggisverð- ir Bandaríkjaforseta og fóm síðustu yfirferð fyrir lendingu Air Force One. Rauði dregillinn beið eftir að honum yrði rúllað út. rætt um að forsetinn ætli að hitta okkur í flugskýli héma fyrir ofan á sunnudaginn áður en hann heldur heim,“ sagði Jeanet Tracey sem búið hefur á Keflavíkurflugvelli frá því í vor. Með riffil í hrauninu Bílstjórar á leið um Keflavíkurveg- inn veittu athygli þyrlu er flaug meðfram endilangri vegarbrúninni. Þar um borð vom öryggisverðir að skima eftir hugsanlegum skyttum sem gætu leynst í hrauninu, liggjandi á maganum með riffil eins og refaskytt- ur á greni. f hrauninu var hins vegar enga hræðu að sjá nema hreinsunar- menn sem vom að tína rusl úr vegar- kantinum. Hraunið átti að vera hreint þegar bílalest Bandaríkjaforseta rynni þar í gegn. Okkar maður Chaterin Corbitt tók undir orð vin- konu sinnar og sagðist aldrei hafa séð Reagan í eigin persónu: „Ég sá Jimmy Carter hins vegar einu sinni á Hawaii og ég er búin að sjá allar kvikmyndim- ar sem Reagan hefur leikið í.“ Frú Tracey og frú Corbitt sögðust svo sannarlega ætla að standa við vegarbrúnina þegar Reagan æki hjá og veifa honum af lífs og sálar kröft- um. Forsetinn væri þeirra maður: „The president is our man.“ -EIR jeanet Tracey og Chaterin Corbitt, húsmæður á Keflavíkurflugvelli: - Forsetinn er okkar maður. .......... ........ — tilefnl Tölvusýningar í Borgarlelkhúsinu 8.-12. okt. verður 10% afsláttur frá auglýstu verðil Tllboðlð gildlr tll 15. okt. EIIM MEST SELDA HEIMIUS- TÖLtAN Á A/IARKAÐNUMI Það er engin tilviljun að AMSTRAD er ein vinsælasta tölvan í heiminum í dag. Síðastliðin tvö ár hafa yflr 1 mllljón AMSTRAD tölvur verið seldar. Með hverjum degi sem líður fá tölvukaupendur meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust í fremstu röð. AMSTRAD CPC 6128 og CPC 464 sameina frábæra hönnun, afl og hraða, einstaklega góða liti í skjá, gott hjjóð og geysispennandi notkunarmöguleika. - Tvær afburðatölvur sem færa þig nær framtíðinni. CPC 6128 • TÖLVA • DISKSTÖÐ • LflASKJÁR 128 K RAM örtölva Z80A 4MHz meö innbyggöu Basic, hátalara og tengjum fyrir prentara, segulband og aukadiskstöö. 640x200 teiknipunktar á skjá. 27 litir. 20. 40 eða 80 stafir í Ifnu, (slenskir stafir. CP/M PLUS stýrikerfi og DR.LOGO forritunarmál Verð aðeins 35.980,— kr. stgr. CPC 464 • TÖLVA • SEGULBAIMD • LÍTASKJÁR 64 K RAM örtölva Z80A MHz meö innbyggðu Basic. hátalara og tengjum fyrir prentara og diskstöö. 640x 200 teiknipunktar á skjá, 27 litir. 20, 40 eöa 80 stafir í línu, íslenskir stafir. Verð aðeins 26.980- kr. stgr. ÞUSUNDIR FORRITA! Urval af forritum, bókum og tímaritum fyrir AMSTRAD. Aukahlutir: Diskdrif - stýripinnar - teiknipenni - stereohátalarar - mús o.fl. o.fl. ,..25% utborqun eftirstöðvar allt*cið 6 mán.i (^[^Biraga v/Hlemm, símar 2931! & 62II22. Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabóöin Edda, Blðnduós: Kaupfélag Húnvetninga, OJúplvogur: Verslunin Djúpið, Grlndavfk: Bókabúð Grindavíkur, Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfiröinga, Húsavfk: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar. Isafjórður: Hljómborg, Keflavfk: Bókabúð Keflavlkur, Vestmannaeyjar: Vfdeóleiga G.S. Öil wsð miöuö viö gengi i. otó. 1966 og staögreiöslu TÖLVULAND HF., SÍMI 17850

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.