Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. Fréttir Leiðtogafundurinn: Mat- seðillinn var tilbúinn „Ég var búinn að semja matseðil- inn og tilbúinn að leggja hann fram hjá viðkomandi aðilum en svo allt í einu var hœtt við veisluhöld- in og það verður því ekkert úr því að ég eldi fyrir þá Reagan og Gor- batsjov en óneitanlega hefði það verið gaman.“ Þetta sagði sá frægi matreiðslu- meistari, Hilmar B. Jónsson, í samtali við DV en hann hafði ve- rið fenginn til að annast um matseldina fyrir þjóðarleiðtogana í veislu sem fyrirhuguð var en nú hefur verið hsett við. Hvað skyldi svo Hilmar hafa ætlað að bjóða stórmennunum? „Matseðillinn, sem ég hafði sa- mið, var þannig að í forrétt ætlaði ég að hafa melónu með hráu hangikjöti. Þá humarhala í saffr- ansósu, síðan rjúpukjötseyði og á eftir agúrkuískrap. Aðalrétturinn átti að vera lambamedalíur og í eftirrétt ætlaði ég að hafa rabar- baraeftirrétt. En svona fór þetta nú og ekkert við því að segja,“ sagði Hilmar B. Jónsson. S.dór Peningamarkaöur VEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar S-9 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb 6 mán. uppsögn 9,5-13,5 Vb 12 mán. uppsögn 11-14 Ab Sparnaður - Lánsréttur Sparað i 3-5 mán. 8-13 Ab Sp. Í6mán. ogm. 5-13 Ab Ávisanareikningar 3-7 Ab Hiaupareikningar 3-4 Lb.Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1 Allir 6 mán. uppsögn 2,5-3,5 Lb Innlán með sérkjörum 8-16 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-7 Ab Sterlingspund 8,75-10,5 Ab.Vb Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab Oanskar krónur 7-9 Ib lltlán óverðtryggð Almennir vixlarfforv.) 15,25 Allir Viöskiptavixlar(forv.)(1) kge Allir Almenn skuldabréf(2) 15,5 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 15.25 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf AÖ2.5 árum 4 Allir Til lengri tíma 5 Allir (Jtlán til framieiðslu isl. krónur 15 SDR 7,75 Bandarikjadalir 7.5 Sterlingspund 11,25 Vestur-þýsk mörk 6 Spariskirteíní 3ja ára 7 4ra ára 8,5 6ára 9 Með vaxtmiðum(4 ár) 8,16 Gengistryggö(5 ár) 8.5 Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 Dráttarvextir 27 VlSITÖLUR Lánskjaravísitala 1509 stig Byggingavísitala 281 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs: Almennar tryggingar 111 kr. Eimskip 216 kr. Flugleiðír 152 kr. Hampiðjan 131 kr. Iðnaðarbankinn 98 kr. Verslunarbankinn 97 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til upp- gjörs vanskilalána er 2% bæði á verð- tryggð og óverðtryggð lán. Skammstaf- anir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp=Sparisjóðimir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um. Frida Lemberg og Vanda Osnis með myndir af börnum sinum. Myndin var tekin fyrir framan fréttamiðstöðina í Hagaskóla í gær. DV-mynd Brynjar Gauti. Við erum fulltrúar tvö hundruð mæðra - sem bíða þess að fá böm sín ffá Sovétríkjunum „Við erum hingað komnar frá ísra- el sem fúlltrúar 200 mæðra þar í landi sem flust hafa frá Sovétríkjun- um en ekki fengið að taka böm sín með sér. Við erum að gera okkur vonir um að þessi fundur þeirra Re- agans og Gorbatsjovs verði til þess að við fáum bömin okkar og því erum við hér að minna á þetta mál,“ sögðu þær Frida Lemberg og Vanda Osnis þar sem þær stóðu fyrir framan fréttamiðstöðina í Hagaskóla í gær með mynd af sonum sínum. Frida Lemberg hafði orð fyrir þeim og sagði hún að þær 200 mæður, sem þær væm fulltrúar fyrir, væm á aldrinum 17 til 88 ára og væm sum- ar þessara mæðra búnar að bíða í 12-15 ár eftir því að fá bömin til sín. „Þessi leiðtogafundur er okkar eina von. Takist ekki að semja um þetta mál nú erum við svartsýnar á að það takist nokkum tímann," sagði Frida Lemberg og bætti við: „Viltu vera svo elskulegur að segja sem flestum frá þessu.“ S.dór Friðarhlaupiö: Kyndillinn kemur í dag Friðarhlaupið mikla, sem hófst 16. september sl. og stendur fram til 11. desember og fer um heimsálfumar allar, tekur nú smálykkju og kynd- illinn, sem er merki hlaupsins, kemur til íslands síðdegis í dag með Flugleiðavél frá London. Á morgun verður svo hlaupið með kyndilinn frá Keflavík til Reykjavík- ur og munu 40 íslenskir íþróttamenn hlaupa með hann þessa 40 km. Um kl. 12 á hádegi verður svo mikil at- höfn í Hljómskálagarðinum þar sem pau Vigdís Finnbogadóttir forseti og Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra taka á móti friðarkyndlin- um. Þess má geta að Friðarhlaupið er á vegum Bamahjálpar SÞ undir merkinu: Gefum börnunum tækifæri - bömin þarfnast friðar. Báðir þjóð- arleiðtogamir, Reagan og Gor- batsjov, hafa sent aðstandendum hlaupsins bréf þar sem þeir lýsa yfir velþóknun sinni á hlaupinu. S.dór Talað á tíu tungumálum Það er mjög svo alþjóðlegt and- rúmsloft í alþjóðlegu fréttamiðstöð- inni í Hagaskóla þessa dagana. Hvers konar skilaboð eru kölluð um hátalarakerfi hússins og munu ís- lenskir starfsmenn þar hafa tíu tungumál á takteinum. Einn starfsmaður hefur fullt vald á fjórum erlendum tungumálum. Það veitir svo sem ekki af þessu þar sem í fréttamiðstöðinni em frétta- menn frá öllum heimsálfum og mikið um uppköll til hinna ýmsu frétta- manna. S.dór Vitum af Helga „Starf lögreglunnar við setningu Alþingis í dag verður með hefð- bundnum hætti. Það verður staðinn heiðursvörður en ef til vill verða eitt- hvað fleiri lögregluþjónar viðstaddir en venjulega," sagði Bjcu-ki Elíasson yfirlögregluþjónn í samtali við DV þegar hann var spurður hvort meiri löggæsla yrði við Alþingishúsið en venjulega við þingsetningu. Oft hefur komið til mótmæla við setningu Alþingis og minnast menn þess eflaust enn þegar Helgi Hóseas- son trésmiður sletti skyrinu um árið. „Já, Helgi hefur stundum mótmælt við þetta tækifæri og við vitum af honum og erum viðbúnir," sagði Bjarki. En-ætlar Helgi að mótmæla í dag? „Ég sé enga ástæðu til að greina ykkur frá því fyrirfram," sagði Helgi og vildi ekki ræða það mál meira. Talið er víst að löggæslan verði meiri við þingsetninguna í dag, þótt lögreglan geri ekki mikið úr því, þó ekki væri nema vegna þess ástands sem ríkir í Reykjavík vegna leið- togafundarins. S.dór Klaufaskapur - segir Bnar Sigurðsson um riffilauglysinguna á Bylgjunni „Þetta var klaufaskapur hjá okk- ur, sem stafar af reynsluleysi, en við getum auðveldlega stoppað svona. I þessum þætti hefur einstaka sinnum hringt fólk sem hefur viljað kaupa eða selja hluti tengda gæsa- og ijúpnaskyttiríi. Við áttuðum okkur ekki á því fyrr en of seint að þama var grínari á línunni,“ sagði Einar Sigurðsson útvarpsstjóri í samtali við DV. í þættinum Á flóamarkaði um há- degisbilið í gær hringdi maður, sem kallaði sig Harald, og auglýsti eftir riffli. Hann átti að vera af stærðinni 234 eða stærri með langdrægum kíki, hljóðdeyfi og helst óskráður. Það fylgdi með að riffillinn yrði að fást fyrir helgi. Gaf Haraldur þessi upp símanúmer sem fólk, er ætti slíkan riffil, gæti hringt í. DV hringdi í númerið. Karlmaður svaraði en sagðist hvorki heita Har- aldur né hafa auglýst eftir riffli. Sagði hann reyndar að þegar hefðu nokkrir hringt til sín vegna þessa, en hann kannaðist ekki við neitt. „Þetta er í annað skiptið síðan Bylgjan hóf göngu sína sem svona gerist og við munum vera meira vakandi fjrir þessu í framtíðinni, “ sagði Einar Sigurðsson. -KÞ Steingrímur Helgi Ágústsson, starfsmaður utan- ríkisþjónustunnar, er höfuðpaurinn í fréttamiðstöðinni alþjóðlegu í Haga- skóla og hefúr vægast sagt í miklu að snúast. Allir þurfa að ná í Helga en hann er að sjálfsögðu mjög upptekinn. f gær gerðist það að erlendir frétta- í stað Helga menn þurftu nauðsynlega að ná tali af Helga en hann var þá svo upptekinn að hann gat ekki sinnt þeim á stund- inni. Fréttamönnunum var sagt þetta en þeim var jafnframt bent á að þeir gætu náð tali af Steingrími Hermanns- syni ef þeir vildu. S.dór Pósturtil Reagans og Gorbatsjovs Um miðjan dag í gær barst mikið magn af pósti til þeirra Reagans og Gorbatsjovs og var hann sendur í fréttamiðstöðina í Hagaskóla. Jón Hákon Magnússon, starfsmaður í fréttamiðstöðinni, tók við póstinum og sundurgreindi hann. Sum bréfin voru merkt þeim leiðtogunum saman en önnur hvorum um sig. Þessi póstur kom allur frá bömum á Norðurlöndum og sagði Jón Hákon að bréfunum yrði komið til fulltrúa leiðtoganna en taldi ótrúlegt að þeir fengju bréfin persónulega afhent. Þama mun vera um að ræða óskir frá bömunum um að þeir Reagan og Gor- batsjov semji um frið. Búist er við að bréf svipuð þessum berist mun víðar að úr veröldinni en sfðast þegar leiðtogamir hittust barst einmitt mikið af bréfum frá bömum og raunar fullorðnum lika þar sem beðið var um friðarsamninga. S.dór Jón Hákon Magnússon með póstinn til leiðtoga heimsveldanna. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.