Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. Ungfirú Skandinavía: Norskur sigur ]ón G. Haukssan, DV, Akureyii; Gígja Birgisdóttir, fegurðardrottn- ing íslands, komst ekki á blað þegar ungfrú Skandinavia var kjörin í bæn- um Seinojoki í Finnlandi í gærkvöldi. Norska stúlkan Hege Rasmunssen sigraði. Hún er 21 árs og varð í fjórða .sæti í keppninni um ungfrú Noreg á sínum tíma. Finnsk stúlka var í öðru sæti og dönsk í því þriðja. Keppendur voru tíu. Gígja var kjörin Miss Press, eða vinsælasta stúlkan kjörin af blaða- mönnum. Önnur íslensk stúlka, ' Kolrún Jenný Gunnarsdóttir frá ^ Keflavík, tók einnig þátt í keppninni í Finnlandi í gærkvöldi. Kolbnin varð j íjóðra sæti í keppninni um ungírú ísland síðastliðið vor. -KB 1 Óvíst um fréttir Stöðvar 2 í kvöld „Við erum ekki búin að leysa þetta vandamál. Við erum með herskara af fólki sem er að vinna í þessu. Öll okk- ar innlenda dagskrá verður að bíða meðan þetta er óleyst. Það er óljóst hvort fréttir verða sendar út í kvöld," sagði Jón Óttar Ragnarsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar tvö, í morgun. Fréttir, þar á meðal bein útsending frá komu Reagans, féllu niður á fyrsta útsendingardegi Stöðvar tvö í gær. „Við komumst ekki inn í stúdíó með hljóðið. Það var alveg sama hvað við "reyndum. Við erum með splunkuný tæki og það er mjög erfitt að með- höndla þau,“ sagði Jón Óttar. Stöð tvö byijar útsendingu á erlendu efni klukkan 17.30 í dag. -KMU TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF., IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK. SÍMAR: 92-4700-92-3320. LOKI Vinsælasta lagið á Stöð 2 mun vera: „Er ekki tími til kominn að tengja“! Gorbatsjov-hjónin lenda í Keflavík um hádegisbilið Vigdís og Steingrímur ekki í móttökunefndinni Mikhail Gorbatsjov og frú Raisa koma til Islands nú um hádegisbilið. Vél þeirra lendir á Keflavíkurflug- velli klukkan 13.10. Vigdís Finn- bogadóttir. forseti íslands, og Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra verða ekki í móttökunefnd- inni vegna þingsetningarinnar sem hefet klukkan 13.30. En í íslensku móttökunefridinni verða Edda Guðmundsdóttir, eigin- kona Steingríms, Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra og kona hans, Sigi-ún Mathiesen, Guð- mundur Benediktsson, ráðuneytis- stjóri í forsætisráðuneytinu, Ingvi Ingvarsson, ráðuneytisstjóri í utan- ríkisráðuneytinu, Þórður Einarsson, prótókollstjóri, utanríkisráðuneyt- inu, og Halldór Reynisson forsetarit- Þegar Gorbatsjov og frú hafa heilsað móttökunefiidinni fara þau upp í bíl sinn, sem mun standa við hlið vélarinnar. Fylgdarlið þeirra fer einnig upp í bíla, sem þarna verða, en lítið er vitað hverjir verða í fylgd- arliðinu fyrir utan Sévardnadse utanríkisráðherra. Bílalestin mun síðan aka í lög- reglufylgd til Reykjavíkur að Hótel Sögu þar sem Gorbatsjov og frú munu búa. Líklegt er að Gorbatsjov heimsæki Bessastaði og ræði við Vigdísi og Steingrím um klukkan 17.30 í dag eftir að Reagan Banda- ríkjaforseti hefur verið þar. Dagskrá Raisu hefst svo klukkan 10 í fyrra- málið, eins og fram kemur á öðrum stað hér í blaðinu. Fundahöld leiðtoganna hefiast síð- an í fyrramálið. Verður fyrsti fundurinn klukkan 10.30, annar klukkan 15 og sá þriðji á sunnudags- morgun klukkan 10.30. Gorbatsjov- hjónin halda svo heintleiðis síðdegis á sunnudag. -KÞ Allt er nú að verða klappað og klárt í Höfða, fundarstað þjóðarleiðtoga stórveldanna. Fyrsti fundur þeirra Ronalds Reagans, Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs, leiðtoga Sovét- ríkjanna hefst í fyrramálið. Myndin var tekin síðdegis í gær er borin voru húsgögn inn í Höfða. DV-mynd Brynjar Gauti Gorbatsjov blotnar líka Veðurguðimir virðast ákveðnir í því að láta rigna á báða leiðtogana meðan Islandsdvölin stendur yfir. Það verður stanslaus rigning í allan dag á suðvesturhorninu - suðvestan- átt og síðan sunnan með áíram- haldandi úrkomu. í nótt snýst hann í suðvestan skúr- ir og heldur sig þannig á morgun. Hins vegar er sæmilega gott veður um austanvert landið. Á sunnudaginn er spáð suðvestan- átt og skúrum. Veður fer kólnandi og gæti því orðið kaldi eða stinn- ingskaldi. -baj Þéttsetin [J dagskrá Raisu Dagskrá Raisu GorbaLsjov verður mjög þéttsetin í heimsókn hennar á Islandi. Hún hefst klukkan 10 á laug- ardag með skoðunarferð um Reykja- vík og síðan heimsókn í Stofnun Árna Magnúsar og Þjóðminjasafnsið. I fylgdarliði Raisu verða auk Eddu Guðmundsdóttur, Sigrún Mathiesen, Kristín Claessen, Hólmfriður Jóns- dóttir, Þórður Einarsson, frú Kos- areva, Helga Jónsdóttir og Hildur Hafstað. í hádeginu á laugardag verður borð að í Ráðherrabústaðnum. Síðan verður Alþingi heimsótt, Æfingadeild Kennarháskóla Islands, listasafn Ein- ars Jónssonar, Leifur Breiðfjörð gler- listamaður og deginum lýkur svo með kvöldverði að heimili forsætisráð- herrahjónanna. Á sunnudag verður farið til Þingvalla klukkan 10 um morguninn og snæddur hádegisverður þar. Síðan verður farið að Búrfelli i Grímsnesi, dmkkið síð- degiskaffi í Hótel Örk og síðan haldið heim á leið. -KÞ I i i í : i Alþingi sett í dag Forseti Islands, Vigdís Finnboga- dóttir, setur Alþingi íslendinga í dag. Þingsetningin hefst klukkan 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Klukk- an 14 gengur þingheimur til Alþingis- hússins. Vegna þingsetningarinnar taka hvorki Vigdís né Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra á móti Gorbatsjov Sovétleiðtoga, sem koma á til Keflavíkur klukkan 13.10. Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra tekur á móti leiðtoganum fyrir hönd ríkis- stjómarinnar. -KMU : Magnus i framboð „Ég tilkynnti stjóm Alþýðuflokks- félagsins í Vestmannaeyjum og kjör- dæmaráði flokksins það í gærkvöldi að ég myndi gefa kost á mér,“ sagði Magnús H. Magnússon, fyrrverandi ráðherra, í morgun. Prófkjör Alþýðuflokksins í Suður- landskjördæmi verður 8. og 9. nóvemb- er næstkomandi. Kosið verður um íjögur efstu sæti listans. -KMU i Friðarfundur | á Lækjartorgi í I kvöld kl. 21 hefst á Lækjartorgi friðarfúndur sem Samstarfsnefnd ís- lenskra friðarhreyfinga stendur að. Á fundinum mun biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, flytja ræðu. Helga Bachmann leikari flytur ávarp og þau Guðrún Ásmundsdóttir og Valdimar Flygenring leikarar lesa upp & ljóð. Það em níu friðarsamtök sem að W samstarfsnefridinni standa, Samtök lækna gegn kjamorkuvá, Samtök eðl- É isfræðinga gegn kjamorkuvá, Islenska 1 friðarhreyfingin, Samtök urn kjarn- ' orkuvopnalaust Island, Samtök her- stöðvaandstæðinga, Friðarhópur ú íslenskra kvenna, Friðarhópur fóstra, I Friðarsamtök iistamanna og Menn- “ ingar- og Iriðarsamtök íslenskra kvenna. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem 1 þessi samtök gangast sameiginlega “ fyrir friðarfundi sem þessum. , -S.dór I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.