Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 3
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
3
av___________________.____________________________________Fréttir
Blaðamannafundur Sovétmanna um svæðisbundin átök í heiminum:
Ekki mikilvægur málaflokkur á fundinum
Fulltrúar úr sovésku sendinefnd-
inni, sem hér er stödd vegna leið-
togafundarins, hélt sinn annan
blaðamannafund á Hótel Sögu í gær-
dag. Umræðuefni íúndarins var
svæðisbundin átök í heiminum (Afg-
anistan, Nicaragua o.fl.) og sátu
íúlltrúamir Bovin, Shishlin og Prim-
akov fyrir svörum.
I máli þeirra kom fram að Sovét-
menn teldu þennan málaflokk ekki
mikilvægan á leiðtogafundinum, að-
almálið að þeirra dómi væri viðræð-
ur um afvopnun og mál tengd
vanþróuðu ríkjunum.
Sovésku fulltrúamir þóttu fara
mjúkum orðum um Bandaríkin og
Bandaríkjastjóm á fú"dinum og
hafði einn bandarísku blaðamann-
anna orð á þessu, sagði að hann hefði
aldrei heyrt svo sæt orð í garð
Bandaríkjanna. Primakov svaraði
honum og sagði að ef einhverjir vildu
fá harða gagnrýni á Bandaríkin frá
þeim skyldu þeir gjaman veita þeim
sömu einkaviðtöl.
Komið var víða við í spumingum
blaðamanna. Sovétmenn vom m.a.
Dagblöð flutt
inn á neyðar-
leyfum
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
hefur samþykkt að nokkur erlend dag-
blöð verði flutt til landsins á svoköll-
uðum neyðarleyfum, sem felur það í
sér að unnt er að hraða afgreiðslu
þeirra til muna. Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar mun hafa farið fram á
skjótari afgreiðslu blaðanna til að geta
selt þau hér samdægurs.
„Þetta er aðeins gert út af ástandinu
sem hér ríkir og heimildin gildir að-
eins í fjögur skipti. Venjulega em
neyðarle)din notuð vegna hluta sem
gætu skemmst í geymslu og ef um er
að ræða varahluti sem mikið liggur
á,“ sagði Friðrik Guðmundsson, deild-
arstjóri tollgæslunnar á Keflavíkur-
flugvelli.
-SJ
Heimsmeistaraeinvígið:
Jafntefli í síð-
ustu skákinni
Anatoly Karpov og Garrí Kasparov
sömdu um jafntefli í gær í 24. ein-
vígisskákinni, án þess að tefla bið-
skákina áfram. Einvíginu lauk þvi
með sigri Kasparovs, 12'/> -11 Vi.
Karpov þráaðist lengi við áður en
hann sættist á jafntefli en er skákin
fór í bið var augljóst að einungis æðri
máttarvöld gætu breytt úrslitunum.
„Ég hef haft trú á sjálfúm mér frá
því einvígið hófst og sjálfstraustið
brást ekki þrátt fyrir erfiðleikatíma-
bil, er ég tapaði þremur skákum í
röð,“ sagði heimsmeistarinn Kasparov
i viðtali við TASS fréttastofuna so-
vésku í gær. „Ég er ekki sérlega
ánægður með úrslitin en frá listrænu
sjónarmiði er ég ánægður með tafl-
mennskuna," sagði hann ennfremur.
Karpov teflir við Sokolov í byrjun
næsta árs um réttinn til þess að skora
aftur á heimsmeistarann. Karpov er
talinn sigurstranglegri, en fari svo að
hann vinni Sokolov teflir hann aftur
við Kasparov næsta haust. Þeir hafa
nú teflt 96 skákir í einvígjum og stað-
an er sú að Kasparov hefúr unnið 13
skákir, Karpov 12 en 69 skákum hefur
lokið með jafntefli.
Karpov og Kasparov eru báðir
skráðir í sovéska landsliðshópinn fyrir
ólympíuskákmótið í Dubai, sem hefst
14. nóvember. Aðrir í hópnum eru
Sokolov, Jusupov, Tseshkovsky, Vag-
anjan, Beljavsky og Polugajevsky.
Endanlegt lið hefur ekki enn verið
ákveðið en Kasparov hefur látið í það
skína að hann muni ekki tefla í Dubai
ef Karpov verður með.
-JLÁ
spurðir af hverju systir gyðingsins
Mikhail Shermans fengi ekki að yfir-
gefa Sovétríkin en bróðir hennar
þjáist af hvítblæði og þarf nauðsyn-
lega beinmerg úr henni til að halda
lífi. Svarið var að systirin hefði alla
möguleika á að yfirgefa Sovétríkin
en eiginmaður hennar gæti hins veg-
ar ekki farið vegna vandamála í
sambandi við föður hans. Þetta
vandamál var ekki skýrt nánar.
Ein spumingin var hvort upplýs-
ingar um óhróðursherferð Banda-
ríkjastjómar á hendur leiðtoga
Líbýu gæti stefnt samskiptum stór-
veldanna í hættu. Svarið var að hvað
þennan fund varðaði væri gildi hans
svo mikið fyrir báða aðila að ekkert
þessu líkt gæti haft áhrif á hann.
-FRI
MYNDBANDSBYLTINGIN:
JVC HR-D170
HAGÆÐA VHS
11 • n n u
t L U U U
***«!» AM NO- .........—
OPERATE EÆCr
WMíM-l í I^ISIÉÍ
— REC PAUSe/STU.L R£W FF
TÆKIÐ SEM SETUR STAÐALINN FYRIR
NÝJA KYNSLÓÐ MYNDBANDSTÆKJA
JVC myndbandstækin eru send inn í draumkennda
tækniveröld framtíðarinnar áður en þau koma aftur til
fortíðarinnar, til okkar. Reynslan sem þau öðlast þar
gerir þeim kleift að standast auðveldlega tímans tönn.
■ HQ Myndgæði. Hágæða VHS mynd með nýhönnuðum myndbætir-
ásum sem skýra útlínur í mynd (WCL rás) og auka skerpuna (DE rás).
■ Mjóslegið, aðeins 9,5 cm á hæð og framhlaðið.
■ Þráðlaus, fislétt fjarstýring, með mörgum möguleikum.
■ Örtölvustýrður PLL móttakari með breiðu bandi fyrir 112 sjón-
varps- og kapalstöðvar (VHF, UHF, CATV) aukyfirtíðnibands
(Hyperband) til að taka við fleiri rásum í framtíðinni. A Ijósaborði er
sérstakur sýnir fyrir útsendingarásirnar 112.
■ Móttakarinn ersjálfleitandi og með 32stöðva minni.
■ Nýtt gangverk. Gangverkið í HR-D170 er byltingarkennt í einfald-
leika sínum. Færri og nákvæmari vélarhlutir og færri og fullkomnari
rafrásir tryggja aukið öryggi og nær hljóðlausan gang. Grindin er ný
og úráli.
■ 14 daga/4 liða upptökuminni og endurtekning á sama tíma dag-
lega eða vikulega.
Leiðtogi VHS býður þér að fjárfesta núna í þessum
gæðum framtíðarinnar. Ótrúlegir eiginleikar HR-D170
eru annaðhvort ókomnir eða að finna í dýrustu mynd-
bandstækjum. Lítumáeiginleika HR-D170, liðfyrirlið.
■ Alsjálfvirk afspilun. Sjálfvirk gangsetning við innsetningu spólu..
Sjálfvirk afspilun spólu sem öryggisflipi hefurveriðtekinn af. Sjálfvirk
afspilun frá byrjun og núllpunkti eftir hraðspólun. Úttaka spólu mögu-
leg úr ógangsettu tæki.
■ Mjög vönduð kyrrmynd og myndfærsla.
■ 9föld skutluleitun og hraðspólun fram og aftur.
■ Fínklipping og myndskerpustillir.
■ Skyndiupptakaogsjálfvirkslokknun.
■ Stafrænn teljari og teljaraminni fyrir núllpunkt.
■ Skeiðklukka, snertitakkar og sjálfvirk spólun til baka.
■ VPS Möguleiki. Sérstök merki frá sjónvarpsstöð setja upptöku í
gang um leið og dagskrárliður hefst. Eiginleiki sem er enn ónýttur á
Islandi.
■ Beindrifsmótor með stafrænni stýringu.
Þessa frábæru eiginleika tengir JVC saman í fullkomna heild.
Sendiboði framtíðarinnar, HR-D170 HQ, er kominn.
Verð Kr. 40.800,- stgr.
Munið að enginn þekkir VHS betur en hönnuðurinn, JVC.
HQ myndbætirásirnar eru nýjasta tækniafrek leiðtogans.
Fjárfestið í gæðum JVC, leiðtoga VHS.
JVC
VIDEO
Myndbandstækni i 30 ár.
/Oára
qfrnœli
í gamla góda midbxnum
ms\
FACO
100 milljón myndbandstæki seid.
LAUGAVEGI 89
® 91-13008
Umboðsmenn. Akureyri: Hljómdeild KEA, Hljómver. Húsavik: KF. Þingeyinga. Ólafsfjörður: Valberg. Borgarnes: KF. Borgfirðinga. Sauðárkrókur: Radiólínan, Hegri.
Akranes: Skagaradló. Keflavík: Littinn hjá Óla, Hljómval. Hella: Videoleigan Hellu Hvolsvöllur: KF. Rangæinga. Neskaupstaður: Nesvideo.