Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Reagan fór bak-
dyramegin inn
- ströng öryggisgæsla umhverfis bandaríska sendiráðið þegar försetinn kom þangað
„Er hann kominn inn?“, „Hvað er
að gerast?“, spurðu fjölmiðlamennim-
ir hver annan þar sem þeir biðu komu
forseta Bandaríkjanna, Ronalds Reag-
an, til Bandaríska sendiráðsins við
Laufásveg um áttaleytið í gærkvöldi.
Forsetinn notaði bakdyr sendiráðs-
ins þannig að það var lítið að sjá þar
íyrir utan, nema íslenska lögreglubíla
og -þjóna og svörtu límósínumar í
bílalest forsetans. Þeir sem stilltu sér
upp við Skothúsveginn sáu þó grilla
í forsetann í bíl í sínum og veifaði
hann til viðstaddra eins og forseta er
siður. Bíl hans var síðan rennt inn í
port sendiráðsins og þar fór forsetinn
inn um bakdymar eins og fyrr sagði.
Við náðum tali af einum öryggis-
verðinum og spurðum hann hvort
þetta væri ekki óþarflega mikil gæsla
í kringum forsetann hér uppi á Islandi
af öllum stöðum. „Þetta er ekki
óvenjulegt og svona viljum við hafa
þetta," sagði hann og bað okkur síðan
að drífa okkur af svæðinu.
Laufásvegurinn harðlokaður
Það var illmögulegt að átta sig á
hvað var að gerast fyrir utan sendiráð-
ið þegar bílalestin kom þar að, þar sem
íslenskir lögreglumenn og bandarískir
öryggisverðir gættu þess vandlega að
enginn óviðkomandi færi inn á „lok-
aða“ svæðið umhverfis sendiráðið.
Irígreglumennirmr drógu upp íbúa-
listann í hvert sinn sem einhver gerði
sig líklegan til að fara inn á svæðið
og þangað fékk enginn að fara nema
nafn hans væri á listanum. Reyndar
lentu þeir í smávandræðum þegar ung
kona kom þar að og sagðist vera á
leiðinni í Ijós. Hún fékk þó að fara
ferða sinna í lögreglufylgd. Ljósmynd-
ari DV gerði hins vegar dirfskufulla
tilraun til að laumast milli húsa and-
spænis dyrum sendiráðsins en öryggis-
verðimir voru fljótir að vísa honum á
brott af felustað sínum.
Allir víldu ná„skoti“
Tæpri klukkustund áður en forset-
inn var væntanlegur á Laufásveginn
voru þónokkrir fréttamenn mættir á
staðinn, því vitanlega vildu allir ná
„skoti" af forsetanum þegar hann
gengi inn í sendiráðið. Á meðan beðið
var komu forsetans prófuðu menn
tækin og íbúar götunnar sem stóðu
úti á tröppum voru vinsamlegast beðn-
ir um að halda sig sem næst húsunum.
„Viljið þið færa ykkur til hliðar því
sjónvarpsmennimir vilja ná góðu
skoti af forsetanum," kallaði einn
hjálpsamur íslendingur til íbúanna og
brá íslensku lögreglumönnunum held-
ur betur í brún við þessa beiðni en
þokuðust síðan til hliðar þegar þeir
sáu að enginn hættulegur var á svæð-
inu.
Bíll forsetans hvarf inn í portið við sendiráðið og þar fór forsetinn út og bak-
dyramegin inn í sendiráðið. Eins og sjá má var mikill fjöldi lögreglubila
umhverfis husið og þess var vandlega gætt að enginn óviðkomandi kæmist
þar nálægt. DV-mynd KAE
Svæðinu umhverfis sendiráðið verð-
ur lokað fram á sunnudag, þar til
forsetinn er farinn. í gær vom um 40
lögregluþjónar við gæslustörf og lík-
lega um 60 bandarískir öryggisverðir.
Forsetans er því vandlega gætt og
greinilegt að ekki er tekin nein óþarfa
áhætta hvað varðar öryggi hans. -SJ
Bílalest Bandaríkjaforseta í Fossvogsdalnum. Reagan veifaði út í myrkrið úr
upplýstri bifreið sinni. DV-mynd S
DV með Reagan á Bústaðabrúnni:
Eins og lárétt-
ur flugeldur
fyrir hom
Allir gluggar vom opnir, íbúar úti
á svölum og fólk flykktist úr húsum
sínum niður á Bústaðabrúna skömmu
fyrir klukkan átta í gærkvöldi þegar
von var á bílalest Bandaríkjaforseta
inn yfir landamörk Reykjavíkurborg-
ar. Þetta var eins og á gamlárskvöld
þegar fólk fer út til að horfa á flugelda.
„Þeir koma ekkert þessa leið,“ sagði
einn sem hallaði sér upp að brúar-
handriðinu eins og hann stæði í
vínstúku. „Lögreglan keyrir bara hér
á undan til að blekkja okkur. Forset-
inn fer aðra leið.“
Ekki hafði hann fyrr lokið setning-
unni en ægilangur ljósormur birtist á
Kópavogshálsinum og renndi sér í
léttri bugðu niður í Fossvogsdalinn.
Vegurinn var löngu mddur annarri
umferð þannig að leiðin var greið. 1
Fossvogsdalnum miðjum, þegar bíla-
lestin var loks orðin lárétt í heild
sinni, minnti hún helst á flugeld á
fleygiferð eftir jörðu. Enda fylgdust
áhorfendur með á sömu forsendum og
á gamlárskvöld.
Spennan óx eftir því sem bílalestin
færðist nær brúnni og þegar hún
sveigði af leið upp lykkjuna sem liggur
upp á Bústaðabrúna tóku viðstaddir
andköf. Allir mændu inn í fyrsta bílinn
enda var hann ekki nema í nokkurra
metra fjarlægð frá áhorfendum. Þar
sást enginn forseti enda var þetta ís-
lenskur lögreglubíll þéttsetinn reyk-
vískum lögregluþjónum. Bílalestin
beygði inn á Bústaðabrúna eins og
flugeldur fyrir hom og í íjórða bílnum
sá fólk loks það sem beðið hafði verið
eftir: Ronald Reagan í upplýstum Ca-
dillac og hann veifaði til viðstaddra.
Sumir • vom svo heppnir að mæta
augnaráði forsetans, aðrir sáu aðeins
hnakka Reagans. Svo var hann horf-
inn yfir í Skógarhlíðina.
Sviðið var autt. Ekkert eftir nema
koltvísýringur eftir bílalest sem skaust
yfir brúna eins og flugeldur með jörðu.
Lyktin í lygnu loftinu minnti á út-
brunninn flugeld á gamlárskvöldi.
Allir fóm heim; Reagan heim á Lauf-
ásveginn.
-EIR
Vigdís í þyrlu
Rétt um klukkan 18.30 í gærkvöldi
renndi forsetabifreið Vigdísar Finn-
bogadóttur í hlað á svæði Landhelgis-
gæslunnar við Nauthólsvík. Ströng
gæsla var við hlið og fengu ekki aðrir
inngöngu en þeir sem áttu þangað
erindi upp í þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar er flutti útvalda á fund Reagans
Bandaríkjaforseta á Keflavíkurflug-
velli.
Á undan Vigdísi höfðu fengið inn-
göngu Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, Ingvi Ingvason,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, Guðmundur Benediktsson, starfs-
bróðir hans úr forsætisráðuneytinu,
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð-
herra og loks Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra er kom akandi á
eigin bíl gagnstætt öðrum sem höfðu
bílstjóra.
Utan við flugskýli Gæslunnar stóðu
tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar,
báðar ferðbúnar, en inni í skýli var
bandarísk þyrla sem sérstaklega var
flutt hingað til lands vegna leiðtoga-
fúndarins. Er talið líklegt að Reagan
noti hana til að komast frá Reykjavík
til Keflavíkur þegar hann yfirgefur
landið á sunnudag.
Þyrlufarþegamir áttu stuttar við-
ræður sín á milli áður en stigið var
um borð og örfáum mínútum síðar var
þyrlan komin á loft og horfin inn í
rigningarsúldina yfir Kópavogi. Hún
komst klakklaust til Keflavíkur með
móttökuneftidina.
-EIR
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, kynnir þyrluahofn sina
fyrir forsetanum. Ráðherrar, ráðuneytisstjórar og forsetaritari fylgjast með.
Vigdís komin upp í þyrluna á leið á stefnumót við Reagan á Keflavíkurflugvelli.
DV-myndir S