Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
NÝ ÞJÓNUSTA Ryðvarnarskálans h/f, Sigtúni 5. ^ CAR RENTAL SERVICE lOl BILALEIGAN ^ RYÐVARNARSKÁLINN HF. NNR 9345-5177 — SIGTÚNI 5 — 105 REYKJAVÍK ® 19400 —
F fr b fc d st 9 §S FÓSTRUR óstru vantar að leikskólanum Barnabæ á Blönduósi á 15. nóvember næstkomandi. Leíkskólinn er vel úinn o'g starfsaðstaða góð. Fóstran þarf að geta leyst irstöðukonu af í að minnsta kosti 3 mánuði, frá 1. esember næstkomandi. Nánari upplýsingar veitirfor- öðukona í síma 95-4530 og undirritaður í síma 5-4181. Sveitarstjóri Blönduóshrepps.
AÐALBÓKARI
, Starf aðalbókara hjá Borgarneshreppi er laust til
umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmanna-
félags Borgarneshrepps.
Umsóknum, sem tilgreina menntun og fyrri störf,
skal skilað á skrifstofu Borgarneshrepps, Borgarbraut
11, Borgarnesi, fyrir 20. október nk.
Nánari upplýsingar gefa sveitarstjóri eða skrif-
stofustjóri í símum 93-7207 og 93-7224.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi.
Styrkir til
háskólanáms i Sviss
Svissnesk stjórnvöld bjóða fram í löndum sem aðild
eiga að Evrópuráðinu 15-19 styrki til háskólanáms í
Sviss háskólaárið 1987-88. Ekki er vitað fyrirfram
hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut Íslend-
inga. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms
við háskóla og eru veittir til 9 mánaða námsdvalar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi nægilega þekk-
ingu á frönsku eða þýsku og þurfa þeir að vera undir
það búnir að á það verði reynt með prófi. Umsækjend-
ur skulu eigi vera eldri en 35 ára og hafa lokið
háskólaprófi áður en styrktímabil hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1.
desember nk. á tilskildum eyðublöðum sem þar fást.
8. október 1986,
Menntamálaráðuneytið.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Álfalandi 5, þingl. eigendur Gunnar Jónasson og Inga Karls-
dóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 13. okt. 86 kl. 16.30. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Tómas Þorvaldsson hdl.,
Útvegsbanki íslands, Einar Ingólfsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og
Skarphéðinn Þórisson hrl.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Fálkagötu 30, ris, taldir eigendur Herjólfur
Jóhannsson og Dagný Másdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 13 okt.
86 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan i Reykjavík og Klemens
Eggertsson hdl.
______________________Borgarfógetaembaettið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Dalseli 33, jarðhæð, þingl. eigandi Unn-
steinn Guðni Jóhannsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 13. okt. 86 kl.
13.45. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Landsbanki ís-
lands, Guðjón Ármann Jónsson hdl., Gisli Kjartansson hdl. og Ólafur
Thoroddsen hdl.
_____________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Ólafur Arnarson, blaðamaður DV, ásamt Nicholas Daniloff, blaðamanni timaritsins US News and World Report, á leið-
inni til íslands um borð í Flugleiðavél í morgun.
Til Islands fyrst
og fremst sem
blaðamaður
„Ég fer til íslands sem blaðamaður
til að flytja fréttir en ekki til að aug-
lýsa sjálfan mig eða vera með lætí,“
sagði Nick Daniloff við blaðámann
DV sem var honum samferða frá New
York til íslands í morgun.
Það vildi svo til að með sömu vél
var Dubinin, sendiherra Sovétríkj-
anna í Washington, ásamt fylgdarliði
sínu.
Dubinin vildi ekkert láta hafa eftir
sér um fund leiðtoganna, en Daniloff
hafði meðal annars þetta að segja:
Nærveran engin áhrif
„Ég held að nærvera mín í Reykjavík
muni ekki koma til með að hafa nein
áhrif á fund Reagans og Gorbatsjovs
um helgina, enda kem ég-sem blaða-
maður en ekki til að auglýsa sjálfan
mig.
Sem sérfróður áhorfandi vil ég segja
að ég vil sjá stórveldin tvö bæta sam-
skipti sín á milli og ég hef því engan
hag af því að vera með uppsteit. Ég
vil óska þess að báðir aðilar beiti hug-
myndaflugi sínu og að stöðugleiki
komist á samskipti þeirra.
Ég held að Sovétmenn hafi mjög rík-
ar ástæður, þégar á heildina er litið,
til að reyna að ná samkomulagi við
Bandaríkin um afvopnunarmál og ber
þar kannski hæst hið slæma efnahags-
ástand sem þeir eiga við að stríða.
Ólafur Arnarson,
blaðamaður DV:
Einkaviðtal við
Nick Daniloff á
leiðinni til íslands
í morgun.
ítarlegt viðtal er
við Daniloff í laug-
ardagsblaði DV.
Mér sýnist að ef báðir aðilar eru að
leita eftir málamiðlunum þá sé þær
einna helst að finna á sviði tilrauna
með kjamorkuvopn. Þar ættu menn
að geta mæst á miðri leiðr
Ég reikna með að mannréttindamál
í Sovétríkjunum muni verða mikið
rædd á fundinum en samt held ég að
þau muni ekki verða til að hindra
árangur á sviði afvoþnunarmála. Það
er mjög ósennilegt að Reagan láti við-
ræður um afvopnyn stranda þótt
erfiðlega gangi að eiga við Sovétmenn
í mannréttindamálum.
Hvíld og vinnufriður
Ég þori ekki að spá um árangur af
fundinum en ég vona, eins og eflaust
allir aðrir, að samskipti stórveldanna
verði þíðari eftir fundinn en verið hef-
ur.“
Við komuna til Keflavíkur lýsti
Daniloff yfir ánægju sinni með að vera
kominn til íslands. Sagðist hann vona
að hann fengi vinnufrið um Jielgina
og að hann gæti hvílt sig, en það hefði
honum ekki tekist almennilega sfðan
hann var handtekinn í Moskvu þann
30. ágúst síðastliðinn.
ftarlegt einkaviðtal DV við Daniloff
verður birt í laugardagsblaðinu á
morgun og þar lýsir hann meðal ann-
ars vist sinni í dýflissum KGB í
Moskvu. ................- -------