Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 13
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Reiknið með einni bringu með
áföstum væng íyrir hvem. Takið
beinið úr og fletjið kjötið út eftir
megni með hendinni og kryddið með
salti og pipar. Ofan á hverjabringu
er látinn biti af kryddsmjöri, sem er
gegnumkælt, jaínvel frosið, og kjöt-
inu vafið þétt saman utan um
smjörið. Áríðandi er að hvergi sé
opið inn í smjörið. Rúllunni er svo
dýft í þeytt egg og síðan í rasp. Gott
að gera það tvisvar til þess að loka
rúllunni sem allra best. Kjúklinga-
rúllumar em svo djúpsteiktar í
heitri feiti í 4-5 mínútur eða þar til
þær em ljósbrúnar á lit.
Nauðsynlegt er að geyma rúllurn-
ar í góðum kæliskáp þar til hægt er
að steikja þær svo smjörið linist
ekki eða renni út við steikinguna.
Rúllumar em bornar fram með
soðnum kartöflum.
Rússnesku ábætisréttirnir
Rússnesku ábætisreitimir em
margbreytilegir og bera sannarlega
keim af því hve landið er víðlent.
Úrval af ávöxtum og hnetum er not-
að með rjóma og alls konar kökum.
ís er einnig vinsæll með Rússum allt
árið umkring. Margir ábætisréttir
em tengdir fomum kirkjulegum há-
tíðum eins og t.d. paskha og kulich.
Þessir tveir réttir em alltaf bornir
fram saman.
Paskha
500 g
4 msk.
1 þeytt
3
100 g
150 g
50 g
50 g blandaðir sykraðir ávextir
50 g afhýddar saxaðar möndlur
1/8 tsk. salt
Nuddið rjómaostinum í gegnum
fínt sigti, bætið út í salti, rúsínum
og sykmðu ávöxtunum. Blandið vel
saman. Hrærið smjörið og sykurinn,
bætið eggjarauðunum út í og hrærið
vel. Bætið saman við ostablönduna,
bætið hrærða egginu út í, hrærið í
deiginu og síðast er þeytta rjóman-
um blandað varlega saman við.
Nú er deigið látið í efri hlutann á
tvöföldum potti, eða skálin látin í
pott með vatni. Látið hitna þangað
til deigið er farið að þykkna og
bullsýður í neðri pottinum, en hrær-
ið stanslaust í deiginu á meðan þessu
fer fram.
I Rússlandi em notuð sérstök þrí-
hymingslöguð form fyrir paskha ,
en þau em með gati í botninum. Ef
slíkt er ekki fyrir hendi er tilvalið
að nota uppháan leirblómapott.
Klæðið formið að innan með ein-
földu bleiugasi, uppundnu úr köldu
vatni. Hellið svo deiginu í pottinn
og hnýtið bleiugasið fyrir og látið
farg ofan á formið. Athugið að
óþarfa vökvi úr deiginu á að leka
út um gatið á pottinum. Kælið svo
yfir nótt. Takið þá úr forminu, takið
bleiugasið utan af og berið fram vel
kalt.
rjómaostur
þeyttur rjómi
egg
eggjarauður
ósaltað smjör
vanillusykur
rúsínur
13
Neytendur
Paskha og kulich er jafnan borið fram saman og þá sem sérstakur páskaréttur.
Ef eitthvað verður eftir að máltíð-
inni lokinni látið það þá aftur í
bleiugasið og geymið í forminu á
köldum stað.
Kulich
Og með paskha er alltaf borin
páskakakan kulich. Hún er bökuð í
ílöngu, uppháu formi. Rússar hafa
sérstök kökuform fyrir þessa hátíða-
köku.
Oftast em kulich bakaðar fyrir
hvern og einn í fjölskyldunni. Litlu
börnin fá þá kökur bakaðar úr litlum
formum. Mikið er lagt upp úr því á
rússneskum heimilum að jafnan séu
til kulich til þess að bjóða öllurn
páskagestunum sem að garði koma.
Ótal atriði fara í þessa uppskrift sem
er mjög stór, eftir því sem segir í
matreiðslubókinni.
50 g rúsínur, 100 g sultan rúsínur,
60 g sykraður appelsínubörkur,
smátt skorinn, 60 g afhýddar, smátt
saxaðar möndlur, 250 g ósaltað
smjör, 4 egg, 1 eggjarauða, þvnnt
með 2 tsk. vatni, 30 g ger, 2,5 dl yl-
volg mjólk, 0,6 dl ylvolgt vatn, 2
msk. vodka, 1 kg hveiti, 250 g van-
illusvkur, 3-4 greinar saffron, salt á
hnífsoddi, 1 msk. fín brauðmylsna.
Kremið.
60 g flórsykui-, 'A tsk. sítrónusafi, 1
msk. vatn, hundrað þúsund sykur-
rósir til skrauts.
Hrærið gerið út með volga vatn-
inu. Leggið rúsínurnar í bleyti. Látið
saffrongreinarnar í bleyti í lítið vod-
ka í litlu glasi. Þegar greinamar
hafa sogið í sig allt vodkað er það
orðið fagurrautt á litinn.
Blandið saman í stóra skál mjólk
og einum þriðja af hveitinu, 1 msk.
af sykri og saltinu. Blandið gerinu
saman við. Breiðið hreint stykki yfir
og látið lyfta sér á hlýjum stað þar
til deigið hefur stækkað um helming.
Mýkið smjörið. Bætið afganginum
af sykrinum í og eggjunum og hrær-
ið vel. Blandið þessu saman við
gerblönduna.
Látið renna af rúsínunum og látið
þær út í deigið. Setjið vodkað í deig-
ið en veiðið saffronið upp úr áður,
Bætið síðan möndlum, sultan rúsín-
unurn, appelsínuberkinum og af-
ganginum af hveitinu út í. Blandið
vel.
Látið deigið á hveitistráða plötu
og hnoðið vel þar til það er orðið
gljáandi. Þetta getur tekið allt upp
í 20 mínútur. Látið nú deigið í stóra
skál og látið lyfta sér aftur þar til
deigið hefur tvöfaldað stærð sína.
Látið ekki á ykkur fá þótt deigið
virðist vera hart, það lyftir sér mjög
hægt en bakast afar vel.
Smyrjið nú form eða formin, látið
kringlótt smurt smjörpappírsblað í
botninn á forminu. Látið nú deigið
í formin, fyllið þau aðeins til hálfs.
Aftur er deigið látið hefast á hlýjurn
stað þar til formin eru orðin nærri
því full. Þá er yfirborðið penslað með
útbleyttu eggjarauðunni, brauð-
mylsnu stráð yfir og kökurnar
bakaðar í 200 gráða heitum ofni í
15 mín. Þá er hitinn lækkaður í 180
gráður og bakað áfram í 35-40 mín.
Þegar kakan er bökuð er hún tek-
in varlega úr forminu og látin kólna
undir hreinu stykki. Þá er búin til
sykurbráðin og henni smurt ofan á
kökuna og blómunum (hundrað þús-
und) er stráð ofan á.
Þegar kakan er borin fram er efsti
parturinn skorinn ofan af og síðan
sneitt af kökunni eftir þörfum. Þá
er „lokið“, með skreytingunni, lagt
ofan á aftur. Með kökunni er borið
fram paskha.
-A.BJ.
Non-stop
Island - Inna.
Svona auglýsa þeir islenska lambið i dönsku blöðunum.
cr triii McniHg soo tarumcSaMdetfw,
t.\iber.e( ÍÆmincfojllc, . IjfK'.mebóv
ni'tvu og L?.rm'.ví}',3is étfbest. Hv» Ds bcstiiíier dct,
teoi De ogsát kobc « hck iioiv; itm.
Def sr ojjskrim pí pakntegKne. ú Lxicr <a
iHTfrt at gí. ói. Og sdvfolgeHg ha'r vi <}c
n«lvwdig« kf>xk}«i«r inden for
rackkfA'idvic.
\feite>ínn»t:r. i Imw.
Nogít afwrdcns bc-dite kntnekfjd kormiwr fja
IsSind Dct kwmvcr nu mol fty fra Rtyfciavik
ó! Irnia udvn pú fívispmikt« hcvx' mciioikn-
> ec In-scr. Det betjdcr, at díf; godc- smag, som
ísfcr kerA'ícgncr isundsk \m, tt bevsm.
At bnuKcne har gpá éc «sjk- sktxam
bertydcr,« dc ikk- bxrz: «a enesfö gran'. rrx'erfícviii^T
fodí. Fðkfisk cr dw kun 150 ksiorier i 100 gram
ianunekðti. Dcrtii kommcr nghoidigc m*r.gder af
vitambw, iink og Jcm. Si Umltt mcd á<
vsírxic kiidcr gi'r o* \ wndhcd msrv crtd cd sajsa fctet.
Def íaiandsk: tammekallís ifim mfekaning-
Gott verð fýrir
úrbeinaða lamba-
lærið í Danmörku
íslenska lambakjötið er meðal þess
besta sem fyrirfinnst í heiminum segir
m.a. í auglýsingu frá dönsku verslana-
keðjunni Irmu sem þessa dagana
birtist í dönskum dagblöðum.
Kjötið er flutt ófryst með flugi frá
Reykjavik sem þýðir að hið góða bragð
sem einkennir íslenska lambakjötið
er óskert, segir einnig i auglýsingunni.
Síðan er sagt frá þvi að vegna þess
að þessi lömb hafi dvalið í bröttum
fjallshlíðunum sé ekki eitt einasta fitu-
gramm fram yfir það sem nauðsynlegt
getur talist á þessu kjöti. t 100 g sé
að finna 150 hitaeiningar og einnig
mikið af B-12 vítamínum, sinki og
jámi. Þannig gefur landið með heitu
hverunum okkur ýmislegt fleira en
sögumar, segir í auglýsingunni.
Af auglýsingunni er einnig ljóst að
hægt er að fá íslenska lambakjötið
skorið á fjölbreytten hátt en áður og
ef viðskiptavinimir óska eftir því má
fá lambið í heilum eða hálfum skrokk-
um.
Hálft kg af úrbeinuðu lambalæri
kostar 49,75 d. kr. hjá Irmu og er kíló-
verðið 99,50 d. kr. Það er samkvæmt
gengi 8.10. 532,32 ísl. kr.
Það er dýrara en við þurfum að
greiða fyrir lambið hér á landi. Úr-
beinað lambalæri kostaði 453 kr. (í
Miklagarði í gær) og óúrbeinað kost-
aði lærið 255 kr. kg.
-A.BJ.