Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
15
Rýmið í húsi föður míns
„1 húsi fbður míns er rúm fyrir
alla, alla,“ sagði Jóhann Hafstein
um Sjálfstæðisflokkinn á sínum
tíma. Þessi stóru orð úr ritningunni
fengu þama nýja merkingu hjá sjálf-
stæðisfólki: Umburðarlyndi. Sjálf-
stæðisflokkurinn á að rúma fólk úr
öllum áttum og með skoðanir af öllu
tagi.
Fólk í flokka
Sjálfstæðisfólk greinir sjálfsagt á
um allt milli himins og jarðar ef að
líkum lætur. Skoðanir eru liklega
jafnfjölbreyttar og fólkið sjálft á bak
við þær. En það er trúin á einstakl-
inginn sem bindur fólkið saman í
flokk: Fólkið eigi atvinnutækin en
ekki ríkið - einkaframtak.
Allt frá dögum Jóns Þorlákssonar
hafa menn úr einkarekstri sett svip
sinn á Sjálfstæðisflokkinn. Ólafúr
l'hors er frægasti einkaframtaks-
maður flokksins úr fremstu víglínu.
En hin síðari ár hefur sigið heldur
á ógæfúhliðina og bilið breikkað á
milli flokks og fólks i einkaframtaki
- á milli flokksins og fólksins,
þetta bil þarf að brúa.
Fjöldinn er breiddin
Sjálfetæðismenn mega aldrei missa
sjónar á helsta takmarki sínu:
hreinn meirihluti á Alþingi íslend-
inga. Vígorðið, eflum einn flokk til
ábyrgðar, er i fúllu gildi í dag. En
þvi aðeins næst meirihluti á þingi
að meirihluti náist hjá fólkinu. Fólk-
ið velur fulltrúana. Og fólkið þarf
að sætta sig við framboðslista
flokksins. Þar ræður breiddin úrslit-
um. En breiddin fæst aðeins með
fólki úr öllum áttum, fólki með skoð-
KjaUarinn
Stefán
Benediktsson
8. þingmaður Reykvikinga
anir af öllu tagi, þvi í húsi fóður
míns er rúm fyrir alla.
Á kynningarfundi með frambjóð-
endum i prófkjöri sjálfstæðismanna
á þriðjudagskvöldið lagði Friðrik
Sophusson, varaformaður flokksins,
höfúðáherslu á velgengni flokksins
í kosningum. Hann sagði eitthvað á
þessa leið: Á framboðslista sjálfstseð-
isflokksins þarf fólk sem dregur
langt út i þjóðlífið, fólk sem er lík-
legt til að vinna flokknum nýtt fylgi.
Það er höfuðmálið.
Á aðalfundi fulltrúarráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík í vetur
sagði Davíð Oddsson orðrétt:
„... framboðslistinn sé skipaður full-
trúum sem flestra sjónarmiða og
viðhorfa, stétta og kynja“. Betur
verður ekki að orði komist.
„En hin síðari ár hefur sigið heldur á
ógæfuhliðina og bilið breikkað milli flokks
og fólks í einkaframtaki - á milli flokksins
og fólksins, þetta bil þarf að brúa.“
Fólkið velur fulltrúana
Sjálfetæðisflokkurinn er enginn
venjulegur flokkur. Hann er íjölda-
hreyfing og á engan sinn líka í
nágrannalöndum okkar. Trúin á
einstaklinginn bindur þar saman
fólk í flokk í húsi föður míns. En
fjöldmn umhverfis flokkinn er sjálf-
stætt fólk með eigin skoðanir. Og
fjöldinn velur sér fulltrúa á þing.
Vilji flokkurinn ná til fjöldans þarf
fjöldinn að eiga fulltrúa á lista
flokksins. Þennan sannleika sjá for-
ystumenn Sjálfstæðisflokksins.
Þennan sannleika sjá kjósendur
hans. Og þessi sannleikur liggur á
borðinu hjá okkur flokksmönnum í
prófkjörinu þann 18. október næst-
komandi.
Ásgeir Hannes Eiríksson.
„A aðalfundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik í vetur sagði Davið Oddsson orðrétt: „...framboðs
listinn sé skipaður fulltrúum sem flestra sjónarmiða og viðhorfa, stétta og kynja.“ Betur verður ekki að orði komist.'
Stjórnkerfisbylting
„Á flokksþingi Alþýðuflokksins helgina 3.-5. október var samþykkt að flokk-
urinn tæki upp nýtt baráttumál sem er þriðja stjómsýslustigið."
Á flokksþingi Alþýðuflokksins
helgina 3.-5. október var samþykkt
að flokkurinn tæki upp nýtt baráttu-
mál sem er þriðja stjómsýslustigið.
í áratugi hafa menn reynt að
stemma stigu við síaukinni miðstýr-
ingu ríkisvaldsins. Orsök þessarar
miðstýringar er síaukið samkrull
löggjafar- og framkvæmdavalds sem
afleiðing af þröngri hagsmunavörslu
stjómmálaflokkanna. Með þriðja
stjómsýslustiginu er verið að breyta
stjórnkerfinu og taka stóran hluta
framkvæmdavaldsins frá ríkinu og
færa það út í héruð landsins, færa
völd og ábyrgð til þess fólks sem
valdið og ábyrgðin snertir.
Bandalag jafnaðarmanna ákvað á
landsfundi 1983 að taka upp baráttu
fyrir þessu máli en Alþýðuflokkur-
inn er sá eini af gömlu flokkunum
sem tekið hefur upp baráttu fyrir
þriðja stjómsýslustiginu.
Hvers vegna?
Allir vita að sveitarfélög á íslandi
em rótgrónar félagseiningar en van-
máttugur hluti af stjómkerfum.
Sífellt fleiri verkefni hafa verið flutt
frá sveitarfélögum til ríkis þrátt fyr-
ir áratugabaráttu fyrir auknu sjálf-
stæði sveitarfélaga og þrátt fyrir
sífelld loforð stjórnmálaflokka um
valddreifingu. Nú er svo komið að
sjálfsforræði sveitarfélaganna, hvort
sem er á Langanesi eða í Reykjavík,
snertir ekki orðið nema litið brot af
umsvifum þeirra. Öllu er stjórnað
úr stjómarráðinu
Hvers vegna þessi leið?
f áratugi hafa menn barist fyrir
KjaUaiinn
Ásgeir Hannes
Eiríksson
verslunarmaður
auknu sjálfstæði sveitarfélaga. Sú
barátta hefur strandað á mörgu.
Fyrst ber að telja lítinn áhuga
stjómmálamanna sem hafa meiri
áhuga á völdum en lagagerð.
Menn hafa þó reynt ýmsar leiðir,
eins og sameiningu sveitarfélaga, en
hún virðist aðallega stranda á and-
stöðu fólks við að gefa þá félagsein-
ingu upp á bátinn sem það telur sína
eign. Á þetta sérstaklega við um fólk
í fámennum sveitarfélögum. Samein-
ing sveitarfélaga með valdboði er því
mannréttindaskerðing. Samvinna
sveitarfélaga er stunj^j^ og hefúr
víða gefið góða raun en hún er þó
andlýðræðisleg þar sem aðeins einn
fúlltrúi hverrar sveitarstjómar ræð-
ur ferðinni í þeim málum , sem
samstarf er um. Fjárhagsleg ábyrgð
í samvinnunni er mest hjá stærsta
sveitarfélaginu en vald þess jafnt
valdi þess minnsta.
Þriðja stjórnsýslustigið
Með nýju lýðræðislega kjörnu
stjómsýslustigi milli ríkis og sveitar-
félaga er hægt að auka völd og áhrif
allra landsmanna óháð búsetu
þeirra. Ósjálfstæði sveitarfélaga
þýðir réttindaleysi einstaklinga til
umráða yfir eigin aflafé og ákvarð-
ana um eigin mál. Þriðja stjóm-
sýslustigið gefur fólki lýðræðisleg
réttindi til að taka völd og ábyrgð á
eigin fé og umsvifum í sínar hendur.
Aukin lýðréttindi þýða aukið frum-
kvæði og framtak í eigin þágu.
Nálægð valdsins þýðir sterkt aðhald
að lýðræðislega kjömum fulltrúum.
Þriðja stjómsýslustigið þýðir afnám
miðstýringar á bankakerfi og frjálsa
gjaldeyrisverslun þar sem hémðin
og fólkið sem þau byggir fengi sjálf-
krafa völd til að ákveða verð á eigin
framleiðslu.
Fegurra mannlif
íslendingar em meðal ríkustu
þjóða heims og þeirra tekjuhæstu.
Meirihluti íslendinga finnur þó
ekki mikið fyrir þessu ríkidæmi í
rekstri eigin heimilis. Orsakir þess
eru pólitískt arðrán ríkisstjóma
undanfarinna áratuga, hroðaleg
fjárfestingarslys í pólitískum gælu-
verkefnum og rússnesk miðstýring á
framleiðslu, verðlagi og nýtingu
auðlinda okkar. Þessu er hægt að
breyta og verður að breyta. Allir
Islendingar eiga rétt á að njóta
þeirra auðæfa sem við eigum. Þriðja
stjómsýslustigið er fyrsta skrefið til
að taka það vald sem stjómvöld
hafa ekki kunnað að fara með, færa
það til fólksins og leggja þannig
gmnn að fegurra mannlífi á íslandi.
lsland fyrir alla.
Stefán Benediktksson
„Ósjálfstæði sveitarfélaga þýðir réttinda-
leysi einstaklinga til umráða yfir eigin
aflafé og ákvarðana um eigin mál.“