Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 26
38
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Fié bandaríska sendiráðinu að Hófða:
Leigunámshúsin í nágrenni Höfða:
Leið Reagans
Ronald Reagan, forseti Bandaríkj-
anna, á að vera mættur á íyrsta fund
með Gorbatsjov kl. 10.30 í fyrramálið.
Hann yfirgefur því sendiráðið á Lauf-
ásvegi 21 nokkru fyrir þann tíma og
stígur upp í bifreið sína fyrir utan.
Þá mun bíll Reagans og bílalestin,
sem honum fylgir, aka sem leið liggur
eftir Laufásveginum og niður Skál-
holtsstíginn, beygja til hægri inn á
Fríkirkjuveg og aka eftir Lækjargötu
og Kalkofnsvegi. Þá beygir lestin inn
á Skúlagötu, ekur eftir henni endi-
langri að Skúlatorgi, beygir síðan inn
Borgartúnið og keyrir frá Borgartúni
og að Höfða.
Þessi leið Reagans verður lokuð allri
bílaumferð þann tíma sem hann keyr-
ir um og frá miðnætti í kvöld þar til
síðdegis á sunnudag verða allar bíla-
stöður bannaðar á þessari leið.
-KB
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti.
Allir sendir
burtfyrir
kl. 18 í dag
- leigunámsgreiðslur borgaðar
Allir, sem vinna eða búa í ná-
grenni við Höfða, verða að hafa sig
brott af svæðinu fyrir kl. 18 í dag.
Húsin hafa verið tekin leigunámi og
svæðinu verður lokað. Fjölskyldur
og einstaklingar sem búa á svæðinu
verða að koma sér fyrir annars stað-
ar um helgina. Fyrirtækin verða
alveg lokuð mannaferðum.
Ef fólk fer ekki með góðu verður
það fjarlægt af lögreglu. Samkvæmt
upplýsingum hjá lögreglunni hefúr
verið haft samband við öll fyrirtæki
og alla íbúa svæðisins og ekki er
búist við að fjarlægja þurfi fólk með
valdi.
Svæðið verður opnað aftur kl. 18
á sunnudag. \
Fólki, sem býr á þessu svæði, er
sagt að það fái einhveijar leigun-
ámsgreiðslur frá ríkinu, en hveru
mikið og hvenær hefur ekki fengist
upplýst. Fólki er sagt að það mál
verði metið eftir fúnd leiðtoganna.
Ekki er heldur vitað hversu mikið
fyrirtækin fá fyrir þennan leigun-
ámstíma.
-KB
i—-—i
II
[ □ !=□
C=3 c 1
1=1 —
l cTl r~\ i j i—cj r\v—
Dökka svæðið á kortinu sýnir leið Reagans frá Laufásvegi 21 að Höfða. Götur á Ijósa svæðinu verða lokaöar allri umferð
um helgina eða þar til síðdegis á sunnudag.
Haukur Matthíasson, tvífari Reagans.
Tvffarinn önnum kafinn
„Ég hef haft nóg að gera. Sjón-
varpsmennimir streyma til mín,“
sagði Haukur Matthíasson sem nú
gengur undir nafninu „tvífarinn í
Reykjavík" eftir að DV birti af hon-
um myndir á þriðjudaginn. Haukur
er sláandi líkur Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta eins og héims-
byggðin getur borið vitni um á næstu
dögum.
„Hér hafa verið sjónvarpsmenn frá
Lúxemborg, Kína og Japan. Þeir
hafa myndað mig í bak og fyrir og
innt mig álits á leiðtogafundinum.
Ég býst ekki við að ég treysti mér
til að taka á móti fleirum í dag. Það
verður víst nóg að gera á morgun,"
sagði Haukur Matthíasson er DV
ræddi við hann.
-EIR
Hemaðarástand við Laufásveg:
Opnir gluggar,
svalaferðir og
parta' óæskileg
Nú fer enginn inn á lokaða svæðið
í kringum bandaríska sendiráðið
öðruvísi en að gefa upp nafn og er-
indi. Allir íbúar svæðisins eru á skrá
hjá lögreglunni.
íbúamir hafa gefið lögreglunni upp-
lýsingar um nöfn allra þeirra sem
hugsanlega koma í heimsókn til hvers
og eins á meðan á lokuninni stendur.
Þannig er hver lögreglumaður á
svæðinu með alllangan nafhalista. Ef
einhver vill komast inn á svæðið sem
ekki er á nafnalistanum verður sá að
gefa upp nafn og erindi. Ef viðkom-
andi er að fara t.d. í heimsókn til íbúa
á svæðinu verður honum fylgt af lög-
reglu til íbúans og ef sá vill kannast
yið. gestinn verður honum leyft að
verða eftir. Ef talið er að viðkomandi
eigi ekki erindi inn á svæðið verður
honum vísað frá.
Lögreglan hefur hvatt íbúana þama
til að takmarka eins og unnt er allar
gestakomur. Gluggar eiga helst að
vera lokaðir, svalaferðir em óæskileg-
ar og allur gleðskapur. Lokuninni
verður aflétt síðdegis á sunnudag.
Lokað svæði við Laufásveg. Eins og kortið sýnir er Laufásvegur lokaður frá
Baldursgötu að Skálholtsstig, Hellusundið er lokað og Þingholtsstræti frá Hellu-
sundi að Skálholtsstíg. Skálholtstígur er lokaður frá Miðstræti að Fríkirkjuvegi
og Grundarstigur er lokaður frá Bjargarstíg að Hellusundi. Skothúsvegurinn
er lokaður frá Fríkirkjuvegi að Grundarstíg.