Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1986, Page 7
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986.
7
VILDARK/ÖR
VISA
gniBYCBINGflVÖBBBl
■______________'
• Fullur staögreiösluafsláttur.
• Afsláttur við helmingsútborgun, en
raðgreióslur í 2-12 mánuöi.
• Þægilegur og ódýr greióslumáti.
Robert Redford
leikstýrir
nýrri mynd
Mynd Redfords fjallar um fátæka þorpsbúa sem lenda i útistöðum við auðugan fjármálamann vegna vatnsréttinda.
Það eru sex ár síðan Robert Red-
ford ruddist fram á sjónarsviðið á
eftiminnilegan hátt sem leiksstjóri
með myndinni Ordinery People.
Myndin sópaði að sér verðlaunum,
var valin besta mynd ársins og Red-
ford fékk titilinn besti leikstjóri
ársins. Og nú ætlar hann að reyna
ciftur með myndinni The Milagro
Beanfield War.
Bókin er byggð á samnefndri sögu
eftir rithöfund frá Nýju Mexíkó,
John Nichols að nafni. Þetta er ekki
dæmigerð Hollywoodsaga. Bók Nic-
hols, sem er að sumu leyti tilbúning-
ur, að sumu leyti þjóðsaga og að
sumu leyti pólitisk dæmisaga, fjallar
um íbúa í litlu, fátæku mexíkönsku
þorpi sem lendir í útistöðum við auð-
ugan fjármálamann þegar einn
þorpsbúa ákveður að vökva bauna-
akur sinn með vatni sem hann hefur
ekki rétt til að nota.
Að kvikmynd sem þessi skuli verða
að veruleika er fremur að þakka bók
Ekki aðeins er efni myndarinnar
óvenjulegt, gerð hennar hefur einnig
skapað óvenjumörg vandamál. Það
tók nokkur ár og nokkra höfunda
að umbreyta sex hundruð og þrjátíu
síðna bók Nichols í kvikmyndahand-
rit upp á hundrað og tuttugu síður.
Kvikmyndatakan hófst í ágúst á
þessu ári og átti að ljúka í október,
en ýmsir örðugleikar urðu til að
koma í veg fyrir það. Myndin er tek-
in í Nýju Mexíkó og veðurfarið lék
ekki beinlínis við kvikmyndatöku-
mennina. Stöðugt fannfergi síðan í
september varð til að tefja gerð
myndarinnar svo að henni lauk fyrr
en í byrjun desember og var kostnað-
urinn þá kominn töluvert fram yfir
þær tíu milljónir sem upphaflega átti
að verja í myndina.
En Redford er engu að síður á-
nægður. „Ég leikstýri aðeins
myndum sem mig langar til að leik-
stýra.“ Redford segist fyrst hafa
Turbo-teppin frá JL-byggingavörum kosta
aðeins 585 krónur fermetrinn, t.d. kostar að-
eins 20.478 krónur að leggja teppi á 35
fermetra gólf,
Við erum útverðir húsbyggjenda vestast og
austast í höfuðborginni
JL-teppadeild: Hringbraut, simi 28600.
OPIÐ KL. 8 - 18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
Munið laugardagsmarkaðinn á Stórhöfða.
Robert Redford ræðir við einn leikaranna í nýju myndinni, The Milagro
Beanfield War.
Ekki dæmigerð Hollywood-
mynd
„Myndina skortir flest það sem
kvikmyndaver leita eftir og flestir
eru að fást við,“ segir David S. Ward,
sem skrifaði handritið að myndinni
en hann skrifaði meðal annars hand-
ritið að myndinni Sting, sem Robert
Redford og Paul Newman léku í.
„Þetta er ekki músíkmynd. Flestir
leikararnir eru mexíkanskir. Þetta
er ekki spennumynd í venjulegum
skilningi þess orðs. I henni er ekki
mikið um ungar stjörnur. Það er
ekki mikið um kynlífssenur í henni.
En þegar menn minnast Ordinery
People sjá þeir að það var ekki mik-
ið af þessum þáttum í þeirri mynd
heldur. Robert fer mikið eftir sínum
eigin áttavita. Og menn verða að
hafa trú á því að ef mynd er góð þá
muni hún finna sína áhorfendur.“
Nichols, höfundur bókarinnar, sem
nýtur mikillar virðingar í Nýju Mex-
íkó og meðal rithöfunda en er ekki
mjög þekktur annars staðar, segist
dást að hugrekki Redfords.
„Ég er ekki viss um að ég hefði
valið þessa sögu sem annað verkefni
mitt sem leikstjóri. Það er eins og
það sé partur af ánægju hans með
myndina að vera að taka áhættuna
á að falla á andlitið með hana.“
fengið áhuga á sögu Nichols þegar
hann las hana fyrir mörgum árum á
meðan á gerð All The President’s
Men stóð. Hann segist hafa hugleitt
að gera hana að fyrsta verkefni sínu
sem leikstjóri en síðan hafi Ordinery
People orðið fyrir valinu. Hann hafi
siðan verið í ýmsum verkefnum áður
en hann sneri sér aftur að The Mila-
gro Beanfield War. Samverkamaður
og aðstoðarleikstjóri myndarinnar
er Moctesuma Esparza, sem er
þekktur leiksstjóri, en hann keypti
kvikmyndaréttinn að bók Nichols
árið 1979.
Það er minna mál að teppaleggja
ibúðina en þig grunaz
Tilkynning frá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
Að gefnu tilefni skal bent á að allmargir heimilislæknar geta nú bætt við sig
nýjum samlagsmönnum í Reykjavík.
Sjúkrasamlagið vill hvetja fólk til að velja sér og hafa skráðan heimilislækni
svo það eigi sem greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustunni.
Þeim sem vilja skipta um heimilislækni er bent á að gera það nú í desember.
Vinsamlegast komið í afgreiðslu Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Tryggvagötu 28,
og hafið samlagsskírteinin meðferðis.