Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1986, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986.
9
Utlönd
Franskir nemendur bíða árangurslaust eftir lest við Gare du Nord i París.
Þær fáu lestir, sem verið hafa í umferð í verkfallinu, hafa ekki haft rými
fyrir alla þá sem þurft hafa að ferðast með þeim.
Verkfall járnbrautarstarfsmanna:
Franska stjómin
grípur í taumana
Franska stjómin hefur nú skipað
óháðan samningsaðila til að reyna að
binda enda á verkfall jámbrautar-
starfsmanna sem nú hefur staðið yfir
í þrettán daga.
Hefur hann starf sitt um leið og við-
ræður milli félaga járnbrautarstarfs-
manna og yfirvalda jámbrautarlesta
eiga sér stað á ný en þær hafa legið
niðri frá því á þriðjudag í síðustu viku.
Ákvörðunin um að útnefha samn-
ingsaðila var tekin eftir að Francois
Mitterrand, forseti Frakklands, hafði
tilkjmnt að stjómin yrði að grípa í
taumana. Jacques Chirac forsætisráð-
herra hafði áður haldið að sér höndum
og fullyrt að það væri aðeins á valdi
yfirvalda jámbrautarlestanna og fé-
laga jámbrautarstarfsmanna að binda
enda á verkfallið.
Nýjar ásakanir
á hendur Waldheim
Á alheimsráðstefnu gyðinga í New
York var fullyrt í gær að Kurt Wald-
heim, forseti Austurríkis, hefði í seinni
heimsstyijöldinni gefið fyrirskipanir
um flutning á breskum föngum.
Var því haldið fram að skjöl um
nasista, sem fundust í þjóðskjalasafni
Bandaríkjanna, sýndu að hinir ellefu
hermenn hefðu verið handteknir þann
17. október 1943 á grísku eyjunni Le-
vitu. Ekki var vitað um örlög þeirra.
í Vín sagði talsmaður Waldheims
þessar nýju staðhæfingar vera ósann-
ar með öllu.
Waldheim hefur haldið þvi fram að
hann hafi verið þýðandi og ekki tekið
þátt í neinum hemaðarlegum aðgerð-
um meðan hann var staðsettur í
Grikklandi og Júgóslavíu.
Áður hefur alheimsráðstefna gyð-
inga fullyrt að Waldheim hafi átt aðild
að fjöldamorði andstæðinga nasista í
Júgóslavíu og flutningi grískra gyð-
inga frá Salonika.
Gefið var í skyn í gær að Waldheims
væri getið í fleiri skjölum og væri ve-
rið að rannsaka þau.
Nýjar fullyrðingar um aðild Kurt Wald-
heims, forseta Austurríkis, að hernað-
arlegum aðgerðum nasista i seinni
heimsstyrjöldinni komu fram í gær.
Jólapóstur hlóðst upp
Kristján Bemburg, DV, Lokeien;
Vegna spamaðarráðstafana ríkis-
stjómarinnar var starfsfólki ekki
fjölgað yfir hátíðamar í aðaldreifi-
stöð póstsins í Brussel.
Þeir sjö hundruð starfemenn, sem
vinna við dreifistöðina, máttu vinna
dag og nótt en talið er að um sjö
milljónir bréfa og böggla hafi hlaðist
upp.
Hefur yfirmaður póstsins nú beðið
um hjálp og vonar að hérinn komi
og flokki bréfin.
HÓTEL ÖRK - HÓTEL ÖRK - HÓTEL ÖRK - HÓTEL ÖRK
NÝÁRSGLEÐI
1. JANÚAR 1987
AÐ
HÓTEL ÖRK
Fagnaðurinn hefst með fordrykk kl. 19.00 í Aldingarðinum. Glæsilegur fjór-
rétta hátíðarmatseðill ásamt drykkjarföngum. Veislustjóri verður Árni Johnsen.
Ómar Ragnarsson kemur og skemmtir veislugestum. Hljómsveitin OPERA leik-
ur fyrir dansi.
Gisting og miði á nýársfagnaðinn,
miðað við tvo í herbergi,
verð kr. 5700,- á mann.
Rútuferðir fyrir þá sem ekki gista er frá Umferðarmiðstöðinni kl. 17.30 og til
baka að loknum dansleik. Miðasala er í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti. Miðaverð kr. 4500,-. Einnig eru seldir miðar í gestamóttöku Hót-
el Arkar.
Hljómsveitin Loðmundur
kemur í heimsókn.
Gleðilegt
nýtt ár
S. 99-4700. S. 99-4700.
STÖ RK0STLEG KAUP
Videotæki frá TOSHIBA: Fullt af tæknilegum kostum. í tilefni stórauk-
innar sölu á Toshiba videotækjum fengum við eina sendingu á þessu
einstaklega lága verði.
Ekkert mál!
Hagstæð kjör.
e:
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995
TIMER,
CHA.NNEL
FRONTIOADING SYSTEM
VIDEO CASSETTE f?ECORDEi5 DÓR RO^EPTION
% pmm mmt
tmmm
ícn.m
^— O^ECK — œa
PROG OAY t40U«
TRACKINS
HQT«BE SEARCH
1 5HAHP
f: stttessweHM £»ck