Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987.
Utlönd n>v
Garret góði og vasatölvan
„Ég lagði fyrir mig stjómmálin af
tveimur ástæðum. Til þess að eiga
þátt í því að rétta efhahagslíf þessa
lands við. Og til þess að reyna að
koma á sáttum milli fólks móður
minnar og fólks föður míns,“ sagði dr.
Garret FitzGerald, annar aðalfram-
bjóðandinn í kosningunum í írska
lýðveldinu í gær.
Faðir hans var kaþólskur og móðir-
in mótmælandi en milli þessara
tveggja trúarflokka hefur verið hat-
rammur fjandskapur frá því á dögum
Cromwells og stöðug skálmöld síðan
1922 þegar Bretland klauf írland.
Hagfræöiprófessor, lögfræð-
ingur og framkvæmdastjóri
FitzGerald fæddist í Dublin 9. febrú-
ar 1926 og nam hagfræði og lögfræði.
Hann heíúr starfað sem hagfræðipró-
fessor, lögmaður, og framkvæmda-
stjóri hjá irska flugfélaginu Aer
Lingus. Talnaleikni hans er viðbrugð-
ið og sagt er að frska flugfélagið hafi
ekki þurft tölvu fyrr en hann hætti
hjá fyrirtækinu.
FitzGerald mótaðist mjög af föður
sínum. Desmond, sem barðist í írsku
uppreisninni 1916, var náinn vinur
skálda eins og Yeats og Eliot og
gegndi embætti utanríkisráðherra um
hríð.
Hann er kvæntur Joan O’Farrell
og eiga þau hjón þijú böm. Sagt er
að hún hafi mikil áhrif á hann.
Með vasatölvuna á lofh'
Hirrn tölfróði hagfræðingur varð í
augum margra landa sinna „prófess-
orinn viðutan" eftir að hann varð
eitthvert sinn uppvís að þvi að mæta
á kosningahátíð í ósamstæðum skóm.
Fékk harrn þá um leið, vegna góðlát-
legrar framkomu, viðumefhið Garret
„góði“. En þegar talið berst að hag-
skýrslum og tölum kemur skerpan í
ljós og í pólitískum stælum fer jafhan
um andstæðingana þegar prófessorinn
dregur upp vasatölvuna sína orðum
sínum til frekari áherslu.
Stutt við stjómvölinn í senn
FitzGerald fór inn á hinn pólitíska
vettvang sem þingmaður efri deildar
1965 og varð þingmaður Dublinar
1969. 1977 varð hann leiðtogi Fine
Gael, breikkaði grundvöli hans og nær
tvöfaldaði þingmannatölu flokksins á
innan við fimm árum. Fyrsta sam-
steypustjóm hans kom til valda 1982
en féll eftir aðeins sjö mánuði vegna
strangra efnahagsráðstafana sem hag-
fræðiprófessorinn vildi knýja í gegn
þvert ofan í ráðleggingar pólitískra
ráðgjafa.
Önnur samsteypustjóm hans féll í
síðasta mánuði, eða fjórum árum síð-
Dr. Garret FitzGerakf forsætisráðherra og leiðtogi Fine Gael að tala við kjó-
sanda í kjörbúð í Vestur-Dublin í miðjum kosningaslagnum.
ar, þegar fjórir ráðherrar Verka-
mannaflokksins gengu út úr ríkis-
stjóminni vegna sundurlyndis út af
niðurskurði á útgjöldum ríkissjóðs til
félags- og velferðarmála.
Síðari stjómin náði verðbólgunni
niður í 3% en atvinnuleysi, skattar
og erlendar skuldir fóm upp úr öllu
valdi og fólk flúði land.
Trúir á samstarf Evrópuríkja
FitzGerald trúir einlæglega á sam-
stöðu Evrópulanda í gegnum Efna-
hagsbandalagið og fór raunar í fótspor
föður síns 1973 þegar hann vaið utan-
ríkisráðherra í ríkisstjóm Liam
Cosgrove sem var forveri hans í for-
mannsstóh Fine Gael. Hann talar
frönsku reiprennandi.
Draumur hans er að sameina Irland
og hann náði 1985 samningum við
Thateherstjómina sem veitti Dublin-
stjóminni ráðgjafahlutverk í málefii-
um N-írlands. Þar hefur stjóm
FitzGeralds verið talsmaður kaþólska
minnihlutans á N-írlandi ('/> milljón
manna) svo að á vissan máta hefur
sá draumur hans ræst að hluta.
Á meðan hann hlaut alþjóðaviður-
kenningu fyrfr það framtak hefúr
hann heima fyrfr legið undir meiri
gagmýni fyrir það að stjóm hans hef-
ur ekki telrist að rétta við efhahagslíf-
ið.
Charies Haughey kallaður
Houdini írskra stjómmála
Cnarfes Haughey, leiðtogi Fianna Fail-flokksins, á kosningaferðalagi i fiskibænum Killybegs í Donegal-sýslu.
Charles Haughey. annar helstu oddvi-
tanna í kosningunum á írlandi í gær,
er stundum líkt við töframanninn
Houdini. Eins og kötturinn er sagður
hafa níu líf, þá hefúr Haughey verið
enn lífseigari í pólitíkinni. Það hefúr
reynst alveg sama hversu illa hefúr
sýnst komið f\TÍr honum. Alltaf hefúr
harrn risið upp úr öskunni aftur og
engin fúrða þótt Irum þyki það göld-
rum líkast.
Harrn var með yngstu ráðherrum
sem sæti hafa tekið í ríkisstjóm Irska
lýðveldisins þegar hann neyddist til
jiess að víkja úr ráðherrastólnum árið
1970 upp úr stórhneyksli þar sem hann
hafði verið orðaður við vopnasmygl
til Norður-írlands.
Það tók Haughey nær áratug að
rísa upp úr þeirri ösku og varð þá
formaður Fianna Fail-flokksins 1979.
Síðan hefúr harrn orðið að standa af
sér hvert hneykslisólagið af öðm og
hefúr mátt hafa sig allan við til þess
að halda formannsembættinu, svo
harða hríð sem keppinautar hans hafa
gert að honum.
Conor Cruise OBrien, pólitískur
andstæðingur hans, sagði eitt sinn að
þótt hann sæi Haughey stjakrekinn í
hjartastað á krossgötum um miðja
nótt mundi hann samt ekki þora að
sleppa hendi af Saltaranum.
Milljónamæringur með hygg-
indi bóndans
Haughey, sem er fyrrverandi bók-
ari, varð milljónamæringur og heldur
sig ríkmannlega. Hann býr á sinni
einkaeyju, á einkaþyrlu og veð-
hlaupahesta sem er ekki á færi neinna
fátæklinga. Þó kemur hann alþýðlega
fyrir og þykir hygginn eins og í þjóð-
sögunni, bóndinn sem sér við véla-
brögðum borgarbúans.
Faðir hans tók þátt í sjálfstæðis-
baráttu íra með írska lýðveldishem-
um (ERA) gamla. Haughey fæddist 16.
september 1925. Hann er kvæntur
dóttur Sean Lemass, fyrrum forsætis-
ráðherra, og eiga þau hjón eina dóttur
og þijá syni. Einn sonanna var í fram-
boði í Dublin fyrir Fianna Fail.
Haughey er harðsoðinn lýðveldis-
sinni eins og hann á kyn til og hann
var fljótur að fordæma samninginn
sem erkiandstæðingur hans, Garret
FitzGerald (hinn aðaloddvitinn í
kosningunum) forsætisráðherra gerði
1985 við Thatcherstjómina til þess að
Dublinstjómin fengi ráðgefandi hlut-
deild í málefhum Norður-írlands.
Síðan hefúr afstaða Haugheys mildast
til samningsins.
Bendlaður við vopnasmygl til
IRA
Norður-Irland hafði raunar nær
komið Haughey á kné 1970 þegar
hann var ákærður um hlutdeild í sam-
særi um vopnasmygl til írska lýðveld-
ishersins sem berst gegn yfirráðum
Breta á N-írlandi. Þá lá við borð að
borgarastyijöld væri á N-írlandi.
Þótt Haughey væri sýknaður af
ákærunni neyddist hann til þess að
segja af sér sem fjármálaráðherra og
nánast hvarf af stjómmálavettvangi
um hríð. En tímann nýtti hann til
þess að rífa sig úr launþegastéttinni
upp í flokk milljónamæringa. Árið
1979 hafði honum svo tekist að klóra
sig aftur upp hinn pólitíska stiga og
settist í forsætisráðherrastólinn þegar
Jack Lynch sagði af sér.
Fall og upprísa
Eftir mjög harða og tvísýna baráttu
innanflokks um leiðtogasætið í
Fianna Fail (flokkur „Örlagastríðs-
manna") við George Colley fyirmála-
ráðherra vann Haughey formannskjö-
rið með aðeins sex atkvæða mun.
Og ekki hafði hann setið við völd
nema í sautján mánuði þegar gæfú-
hjólið snerist á ný. Kjósendur höfhuðu
manni sem hafði mistekist að rétta
við efnahagslífið, lamað af óðaverð-
bólgu, hrikalegum skuldum við útlönd
og atvinnuleysi.
En Haughey leiddi Fianna Fail aftur
til sigurs í febrúar 1982 þegar tveggja
flokka stjóm (Fine Gael og Verka-
mannaflokkurinn) FitzGeralds féll
vegna óvinsælda skattbreytingaráætl-
unar sem fól í sér að leggja skatt á
bamaskó.
Hvert hneykslið rak annað
En innanflokks óx óánægjan þar
sem 20 brotthlaupsmenn reyndu að
velta honum tvívegis úr sessi. Síðan
rak hvert hneykslið annað.
Patrick Connolly dómsmálaráð-
herra neyddist til þess að segja af sér
þegar maður, sem lögreglan hafði
grunaðan um tvö morð, fannst í íbúð
ráðherrans. - Kosningastjóri Haug-
heys var sakaður um að hafa greitt
tvívegis atkvæði í sömu kosningun-
um.
I nóvember 1982 tapaði stjóm Haug-
heys í atkvæðagreiðslu um vantraust
í þinginu og FitzGerald kom aftur til
valda. Nýja stjómin sagði að hleraðir
hefðu verið símar tveggja blaðamanna
og segulband lögreglunnar hafði verið
notað til þess að hljóðrita (í heimildar-
leysi) samtal blaðamanns við brott-
hlaupsmann úr Fianna Fail-flokknum.
Rokksklofningur
1983 stóð Haughey af sér enn eina
atlögu að formannssetu hans og aftur
gustaði um hann 1985 þegar einn kep-
pinautanna innan flokksins, Desmond
O’Malley, klauf sig út úr flokknum
og stofnaði með öðrum brotthlaups-
mönnum nýjan flokk, Progressiv
Democrats (Framsóknar-krata).
En til þessara kosninga gekk hann
þó sem óumdeilanlega leiðtogi Fianna
Fail.
Umsjón: Guðmundur Pétursson