Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1987. 1 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I [ [ I [ I I I I I [ [ I I I I I I I I I I I I I I J 17 - I Iþróttir „Ljóshærði risinn - er einn besti handknattieiksmaður heims, segir Worid Handbalí Magazine um Kristján Arason I nýlegri grein í hinu virta tímariti World Handball Magazine ber þýski blaðamaðurinn Hans-Jurgen Kroggel mikið lof á Kristján Arason og jafn- framt á íslenska handknattleikslands- liðið í heild: „íslendingamir skópu sér vinsældir með leikstíl sínum á heims- meistaramótinu í Sviss," segir hann í greininni, „bestur á meðal þeirra var þó Kristján Arason." Kristján Arason er nú án efa einn þekktasti handknattleiksmaður heims. Hann var einn af burðarásum íslenska landsliðsins á ólympíuleikun- um í Los Angeles og vakti þá þegar heimsathygli. Afrek Kristjáns þar reyndust þó aðeins forspil að stóbrot- inni frammistöðu hans á HM í Sviss. í áðumefndu hefti hins heimskunna tímarits, World Handball Magazine, fléttar greinarhöfundur viðtali við Kristján saman við eigin álitsgerð á íslenskum handknattleik og á afrekum Kristjáns á þessum stórmótum. „Kristján Arason var ein af stjömum heimsmeistaramótsins í Sviss, segir Kroggel í greininni. „Hann lék að visu vel á ólympíuleikunum í Los Angeles en í Sviss fór hann svo sannarlega á kostum. Sérkenni Kristjáns em lang- skot eftir uppstökk sem riða af við allflestar aðstæður, jafnvel úr að- þrengdri stöðu. Kristján er ljóshærður risi sem leitar sinna eigin leiða til sig- urs.“ Kroggel leggur mikla áherslu á manngæsku Kristjáns í þessari grein og jaínframt á sigurviljann sem eitt hans beittasta eðli. Hann segir Kristj- án hafa gengið til liðs við VFL Hameln til þess eins að vinna liðinu sæti í Bundesligunni. Jafiiframt segir hann atvinnumennsku Kristjáns þátt í þeirri ætlun hans að koma íslenska landsliðinu að sem mestum notum, bæði vegna tíðari æfinga og aukinnar reynslu. Kroggel segir nú draum Kristjáns að sigra í Bundesligunni og standa sig vel með íslenska liðinu á ólympíuleik- unum í Seoul. Hann segir slíkt vel mögulegt því styrkleiki Kristjáns sé fólginn „í þeim eiginleika að lesa vel leiki og taka áhættu. - Skot hans eru jafnframt föst,“ segir Kroggel, „og því er Kristján án efa einn besti leikmað- urinn í íþrótt sinni." Þessari fullyrðingu sinni til stuðn- ings lætur Kroggel fylgja álit Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfara á „Ijósa risanum“ sem hefur gert veg íslenska handboltans mikinn á síðustu misser- um: „Kristján fer að öllum mínum ráð- um. Hann hefur mikið keppnisskap og gerir andstæðingnum marga skrá- veifu með sérstæðum langskotum. Kristján hangir nefnilega lengi vel í loftinu áður en hann lætur skotið ríða af.“ Kroggel bendir réttilega á marg- þættan vanda íslenska liðsins í tengsl- um við þá leikmenn er leika með erlendum félagsliðum. Hann styrkir í þessu sambandi mál sitt með orðum Kristjáns: „Við höfum átt í hinum mesta vanda,“ hefur Kroggel eftir honum, „við að leysa leikmenn undan skyldum frá félögum sínum og fá þá þannig heim í landsleiki eða á mót.“ Það er bersýnilega trú Kroggel að þessi vandi standi hvorki Kristjáni né íslenskum handknattleik fyrir þrifum. Hvort sú trú Krogger sé rökvís kemur í ljós í Seoul en fram að viðburðinum mikla þar á bæ verða handknattleiks- unnendur hérlendir að styðja við landslið sitt og vona það besta. JÖG M£H'S A VVOKíö CHAAíf’fONSHK íH SWÍT281AM0 KRISTIAN ARASON Kri&tjxm wm &*ve «rf íh» sh*r* «rf ífeí? WarU CfawitftÍMuhiiM ín Swrtí- Me-hri tíiayttd t&a~ Oiyw»pi* iahrtvam&tti í« Lw A«r®wíies, thb i‘m.e fee xetMy tume * e iha Mwe. Hu 41 jrf « w»c««rf hi ytrfrtíert úxih pittce fw nwtöírf eúíima&h f«w tíwnexi Öfymiwo ín 194®. v NAHS-rismm Kmxnm. hþm&tbwa. ivíik'li in- irtw 'r&fítas mw tWfi »h<xr Ut-nStr prtA»Wi Íhí icrhMíöm ; iwwtt frtíwSs vrisb ibúi tíví J* stuutmf <*S tfa* ihe VVwStf OwiHpÓMWftRí.V iÞwrfwjí S««MRC.VI tfemaivSu-swjiu .\nvt& fkti'j LOND GIANT lAfillfC wim • Kristján Arason, Ijósi risinn, lofaður í hástert í hinu virta timariti World Handball Magazine. • Per Skárup í landsleik gegn Norðmönnum sem Danir unnu, 20-18. Skárup og Morten Stig Christensen gegna lykilhlutverki í dönsku vörninni. „Er kominn heim“ - Stefán Arnarsson aftur til KR „Já, það má eiginlega segja að ég sé komin heim með því að skipta vfir í KR.“ sagði Stefán Arnarsson markvörður í samtali við DV í gær- kvöldi. Stefán hefur leikið með Val á undanförnum árum en er uppalinn KR-ingur eins og flestum er kunn- ugt. Hann ákvað fvrir stuttu að skipta um félag og í gær varð ljóst að það yrðu KR-ingar sem hrepptu piltinn. Hann mun því keppa við félaga sinn og nafna. Stefán Jóhann- esson. imi markvarðarstöðuna hjá þeim röndóttu í sumar. „Þetta er búið að vera nokkum tíma í bígerð. ég hef aðeins verið að bíða eftir réttum tima til að ganga frá þessu. Mér líst vel á hlutina hjá KR. Ég hef að vísu aldrei æft undir stjórn Gordon Lee en mér skilst að það sé látið vel af honum. Mig minnir að það hafi verið Hólmbert sem þjálfaði hjá KR síðast þegar ég var þar." -SMJ •Stefán Arnarsson. • Michel Plalini. Platini í bílslysi Franski landsiiðsfyrirliöinn í knattspyrnunni. Michel Plátini. slapp ómeiddur úr árekstri á laug- arclagskvöld - bíll hans rann til ó hálku og lenti á híl serh var kyrr- stæður. Fjölskvlda Platini vur í hi) hans. Eiginkona hans. Christel, og dóttirin. Marine. meiddust lítil- lega. Michel og sonur hans ungi. Laurent. sluppu báðir ómeiddir. Platini og gþlskylda hans voru á heimleið í Torino eftir að hafa snætt á yeitingahúsi fym um kvöldið. -hsím 5 milljónir til barna með krabbamein Atli Hflinaxsacax, DV, Þýskalandi: Michael Riunmenigge skoraði sigunnarkið fvrir Bayern Mun- chén gegn Werder Bremen í ¥ ágóðaleik liðanna hér í Vestiu- Þýskalandi um helgina. Allur ágóði af sölu aðgöngumiða rann tií bama sem þjást af krabbameini og boi-guðu 11 þúsund áhorfendtu- sig inn á leikinn. Heildarupph.eð- in. sem rann til bamanna. nam um 5 milljónum íslenskra króna. Þess má geta að leikmenn áttu tvö stangarskot í leikntim. -SK. Skárup er bjartsýnn fyrir B-keppnina - og telur að Dönum gangi vel á Ítalíu í dag hefst B-keppni heimsmeistara- mótsins í handknattleik á Ítalíu. Þar em meðal keppenda frændur okkar Danir. Þeir mæta ekki bjartsýnir til leiks því gengi landsliðs þeirra hefur verið ákaflega dapurt að undanfómu. Þó fannst Dönum rofa til í svartnætt- inu þegar tókst að vinna sigur á Svíum og Norðmönnum í síðustu leikjum íyr- ir B-keppnina nú i síðustu viku. Bjartsýnismenn vildu taka það sem dæmi um að danska liðið yrði ef til vill í formi á réttum tíma en Leif Mikk- elsen hefur verið einstaklega lagin við að ná_því besta úr liði sínu á réttum tíma. í Danmörku hafa þó fjölmiðlar keppst við að vara fólk við því að búast við neinu af liðinu. Einn er þó sá maður sem vill leyfa sér að vera bjartsýnn og það er Per Skárup. „Verðum ekki í B-riðlinum áfram“ „Ég er bjartsýnn á að við náum sam- an á.ítalíu. Ég vil ekki trúa því að jafnsjóaður mannskapur og nú leikur í danska liðinu geti ekki unnið sig upp úr B-riðlinum. Miklivægast er að auka breiddina í sóknarleiknum - í nútíma- handknattleik verða allir að vera með. Við verðum að spila ágengan hand- knattleik og þá smellur þetta saman," sagði Skárup sem er ætlað lykilhlut- verk í varnarleiknum. -SMJ Lánu EKKI STRFITI1 STYTTA Að ná tökum á streitu á átta dögum Námskeið sem stuðlar að betra og heilbrigðara lífi. Þetta námskeið mun: • Hjálpa þér til þess að uppgötva streitu- gjafa i lifi þinu. • Veita þér aðstoð við að ná tökum á steitu i daglegu lifi þinu. • Kynna þér aðferðir til að fást við orsakir streitunnar. • Lýsa fyrir þér lifsstil sem leiðir til heil- brigðs lifs. Timi: þriðjudags- og fimmtudagskvöld 17. febr.-12. mars kl. 20.00-22.00. Staður: Ingólfsstræti 19. Þátttökugjald og efnisgjald: kr. 2.000,00 innritun og nánari upplýsingar í síma: 13899 á skrifstofutima, 75738 á kvöldin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.