Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Blaðsíða 32
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987. Nýja loðnuverðið: Útgerðarmenn og sjómenn ~eru óánægðir Verð á loðnu til frystingar. sem frvstihúsin í Vestmannaeyjum ákváðu í gæi'. hefur vakið óánægju hjá selj- endum loðnunnar. útgerðarmönnum og sjómönnum. Verðið er 10.50 krónur fyrir kílóið af minni loðnunni en 13.50 krónur fvrir þá stærri. Kristján Ragn- arsson. formaður útvegsmanna. sagði að hann væri óánægður með þetta verð sem væri það sama og í fvrra. Þá greiddu kaupendur 8.75 krónur fyrir kílóið en sjóðakerfið var þá í gangi þannig að verðlagning var með öðrum hætti. Guðmundur Sveinbjörnsson. skip- •^gtjóri á Sighvati Bjamasyni. var á leið til Vestmannaeyja í morgun með 300 lestir af loðnu til fiystingar. Hann sagði að verðið ylli sér vonbrigðum. hann og sennilega allir loðnuveiðisjó- menn hefðu búist við hærra verði eftir þá 29 prósenta verðhækkun í -Japan sem sölusamtökin fengu í nýgerðum sölusamningum. Hann sagði að enda þótt verðið væri nú hið sama og í fyrra fengju sjómenn heldur meira í sinn hluta vegna breytinga á sjóðakerfinu en þeir hefðu vænst rneira. ^ Annar loðnuveiðisjómaður sem DV ræddi við kallaði verðlagninguna hneyksli í ljósi nýgerðra sölusamn- inga. Benti hann á að eftir að Síldar- verksmiðjur ríkisins á Siglufirði og verksmiðjan í Krossanesi væm famar að bjóða 2.400 krónur fyrir tonnið til bræðslu gæti borgað sig fyrir skipin að sigla þangað með fullfermi í stað þess að veiða slatta til frvstingar. Skipin geta varla komið með meira en 300 lestir að landi ef fiysta á loðn- una vegna ferskleikakröfu. Frystihúsaeigendur benda á að auknar kröfur Japana um gæðaflokka og ferskleika loðnunnar valdi miklum kostnaðarauka og því geti þau ekki borgað hærra verð. Þá er þess loks að geta að loðnuverð er frjálst en svo -*-*’-irðist sem frystihúsin ætli öll að greiða verðið sem ákveðið var í Vest- mannaeyjunt. -S.dór - sjá einnig bls. 2 Blóm við öll tækifæri Opið frá kl. 10-19 alla daga vikunnar. GARÐSHORNÍÍ Suðurhlíð 35 sími 40500 >» við Fossvogskirkjugarðinn. LOKI Það geta ekki allir gengið á vatni! Þrír menn í gæsluvarðhald fyrir víxlamisferli: Upphseðin skiptir milljónum króna Rannsókníirlögregla ríkisins hef- Amar Guðmundsson. deildarstjóri víxlanna, hafa allir verið teknir til tókst að koma í umferð,“ sagði Am- ur að undanfómu unnið að rann- hjá RLR. sagði í samtali við DV að gjaldþrotaskipta áður. ar. sókn á umfangsmiklu víxlamisferli. rannsókn málsins hefði beinst að því Víxlar þeir sem komust í umferð Er hér um milljónir króna að ræða að kanna hvort nota hefði átt víxl- „Við náðum að leggja hald á bróð- voru aðallega notaðir til kaupa á og voru þrír menn settir í gæsluvarð- ana í viðskiptum með ólöglegum urpart þeirra víxla sem mennirnir bilum og vinnuvélum og hefur rann- halri í tæpa viku vegna málsins en hætti og hefði svo reynst vera. höfðu útbúið áður en þeir komust í sóknarlögreglan unnið að því að em nú lausir úr haldi. Mennirnir þrír. sem stóðu að útgáfu umferð en einhverjum fjölda þeirra rekja slóð þeirra. -FRI Þannig leit bifreiðin út þegar búið var að klippa þakið af. Slökkviliðsmennirnir eru að ganga frá tækjum sinum en í baksýn má sjá hina bifreiðina sem lenti í árekstrinum. DV-mynd S Yfirmenn sömdu eftir 40 tíma lotu í nótt náðust samningar í kjaradeilu yfirmanna á kaupskipaflotanum og skipafélaganna. Að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins, er þó ekki endanlega búið að ganga frá samningum, nokkur atriði á eftir að slípa til og verður unnið að því í dag. I þeim drögum sem fyrir liggja er um viðamikla og flókna samninga að ræða, þar eð samningum um vinnufyr- irkomulag er gerbreytt og hafði mikil vinna verið lögð í þá samninga liðnar tvær vikur. Samkvæmt heimilduni DV munu grunnlaun hækka sem nemur um 15%. „Þarna eru í burðarliðnum samning- ar, eins og við hefðum viljað gera við Sjómannafélag Reykjavíkur í far- mannasamningunum á dögunum," sagði Þórarinn V. Þórarinsson í morg- un. Svo miklar eru breytingarnar á samningum yfirmanna að nýi samn- ingurinn er 20 síður, að sögn Þórarins. Skrifað var undir í nótt með fyrirvara og verður gengið frá samningum í dag og þeir síðan bomir undir fundi hjá deiluaðilum. -S.dór Harður árekstur: Klipptu þakið af bifreiðinni Harður árekstur varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Hamra- hlíðar skömmu eftir hádegið í gær er þar skullu saman tvær fólks- bifreiðir. Við áreksturinn fór önnur bifreiðin á hliðina og komst ökumaður hennar ekki úr henni af sjálfsdáðum. Slökkviliðið var kallað á vettvang með klippur sem notaðar vom til að klippa þakið af bílnum og ná manninum þannig út en hann var töluvert slasaður. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar slasaðist einnig í árekstrinum en meiðsli hans voru minniháttar. Ökumennimir voru einir í bifi'eið- um sínum. -FRI Veðrið á morgun: Suðlæg og suðaust- læg átt Á miðvikudaginn verður hæg suð- læg og suðaustlæg átt og hiti 0-6 stig. Skýjað og víða dálítil súld eða rigning um vestan- og sunnanvert landið. Olafsfjoröur: Snjótroðari fór í vatnið Jón G. Haukssan, DV, Akureyri; Skíðamaðurinn Björn Þór Ólafsson, Ólafsfirði, og Ingimundur Sigurðsson sluppu ómeiddir þegar nýi snjótroðar- inn á Ólafsfirði fór niður um ísinn á Ólafsfjarðarvatni sl. sunnudag. Reynt verður að ná troðaranum upp í dag þar sem hann marar nú i hálfu kafi í Ólafsíjarðarvatni. „Menn héldu að ísinn væri traustari en hann reyndist vera og því fór sem fór,“ sagði Valtýr Sigurbjamarson, bæjarstjóri á Ólafsfirði, við DV í morg- un.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.