Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987.
15
Lesendur
Samræmið
kveðjurnar
V.P. skrifar:
Talsvert virð ist á reiki hvemig fólk
heilsar og kveður. Það væri þarft
verk að setja samræmdar regiur um
þessar'kveðjur. Það mun hafa verið
áður að þegar fólk kom í heimsókn
að því væri heilsað af húsráðendum
eða öðrum heimamönnum á þann
hátt að sagt væri eitthvað á þá leið:
komið þið sæþ komið þið blessuð og
sæl; verið velkominn. Gestimir
heilsuðu aftur á móti þannig að þeir
sögðu: sæl verið þið; sælt veri fólkið
og margar fleiri kveðjur og ávörp
voru notuð en hér áður fyrr mun
varla hafe heyrst að aðkomumaður-
inn segði: komið þið sæl. Það var
ofureinfoldlega af því að heimafólkið
var ekki að koma heldur gestimir
og það vom þeir sem áttu að koma
sælir og blessaðir á heimihð, sem
sagt vera velkomnir. Fögur og hlýleg
móttaka á gestum það.
Nú kveður oft við annan tón og
n'kisfjölmiðlamir virðast ekki leggja
kapp á að hafa þessa reglu í heiðri.
Þess í stað er sagt í útvarpi og sjón-
varpi: komið þið sæl, enda þótt
enginn sé kominn og flest fólk sitji
heima hjá sér og hlusti og horfi, en
í þessum tilfellum er það einmitt sá
sem þetta ávarp flytur sem kemur
fram og birtist þeim er heima sitja.
Ýmsir hefja mál sitt án nokkura
ávarpsorða. Það er e.tv. best. Þegar
dagskrá hefet er þó ósköp ánægju-
legt að boðinn sé góður dagur eða
gott kvöld, eftir atvikum, en vandséð
er hvort áriðandi sé að þéra lands-
menn í þessu eina ávarpi að morgni
dags eins og gert var til skamms
tíma, en þúa þá ella. Það kann að
virðast dálítið kauðalegt þegar er-
indi er flutt að morgni dags og hefet
á því að boðinn er góður dagur, en
er svo endurflutt að kvöldi dags og
þá hljómar þetta avarp: góðan dag-
inn.
Hjá veðurfræðingum i sjónvarpi
virðist ríkja eitthvert ósamræmi eða
ósamkomulag. Sumir segja gott
kvöld, aðrir ekki. Þú er og til að
sagt er: komið þið blessuð og sæl
(enda þótt enginn sé kominn) og enn
aðrir hafo ekkert ávarp fyrir máh
sínu. Það má mikið vera ef ekki er
hagstæðara fyrir landsmenn að veð-
urfræðingar leggi meiri rækt við
veðurspámar heldur en kveðjumar.
Það ætti að vera auðvelt að sam-
ræma öll þessi ávörp, ekki hvað síst
í fjölmiðlum, og væri slíkt til hins
betra fyrir alla aðila.
Víðvómn
- ekki
ruddaskapur
Mjög hneykslaður nemandi skrifer:
Sumir viiðast eiga erfitt með að
kyngja því að aldurinn fer alltaf lækk-
andi ú þeim er stunda kynlíf. Þá á ég
við hina hneyksluðu móður sem skrifeði
í DV fyrir nokkm um að nemendur
Fjölbrautaskólans í Breiðholti hegðuðu
sér mddalega með því að ítreka notkun
smokksins og festa hann á aðgöngumiða
skólaballs sem var haldið fyrir nokkm.
Staðreyndin er nú bara sú, og er eins
gott að gera sér grein fyrir því strax,
að unglingar em femir að stunda kyn-
líf óþarflega ungir, en svona er það nú
samt! Fólk veiður bara að bíta í það
súra eph og opna augun fyrir vandan-
um. Hér er um viðvörun að ræða en
ekki mddaskap. Einnig finnst mér þetta
góð hugmynd hjá starfefólki Broadway
og Hollywood fyrir góða auglýsingu á
smokknum gegn eyðni.
Böðullinn og skækjan:
Þráðlaus hörmung
S. Birgisdóttir skrifar::
Jæja, nú hefúr þjóðinni enn á ný
verið sýnt íslenskt verk úr heimi
kvikmyndanna og á ég þá að sjálf-
sögðu við Böðulinn og skækjuna er
Hrafh Gunnlaugsson leikstýrði.
Það er ekki laust við að maður
hafi að undanfömu verið í erfiðis-
vinnu við það eitt að hugsa um
íslenskan kvikmyndaiðnað og þá um
íslenska „listamenn“. Mikið held ég
að þeim hljóti að líða illa - líf til
einhvers! Þeir virðast ekki gera ann-
að en að velta sér upp úr lágkúm,
niðurlægingu og myrkustu skúma-
skotum mannkynssins, þegar best
lætur. Og til að svala nú þörf okkar
fyrir eitthvað „listrænt" og „menn-
ingarlegt", em herlegheitin fest á
filmu. Þar kemur til kasta margra
Hrafn er snillingur I sinu fagi, en
er það nóg? Verk Hrafns em bara
annar helmingurinn, hinn helming-
inn - efnið - vantar.
kvikmyndagerðarmanna að gera
„góða“ mynd. Hrafn Gunnlaugsson
er t.d. einn þeirra. Böðullin og
skækjan er mynd sem er listrænt séð
mjög vel gerð. Hrafh er snillingur í
sínu fagi, það dylst fáum. En er það
nóg?
Verk Hrafris em bara annar helm-
ingurinn, hinn helminginn - efiiið
vantar. Er ekki nóg af hörmungum
og viðbjóði í lífi okkar nútímafólks?
Á ekki listin að vera jákvæð, gefa
okkur gleði og vellíðan þegar við
njótum hennar. Listin ætti í mínum
huga einnig að draga fram ljósu hlið-
ar lífeins og það góða í manninum.
Allavega finnst manni ekki veita af
því eftir þennan „menningar- og
listaskammt" ríkissjónvarpsins að
undanfómu.
IÐNFYRIRTÆKI TIL SÚLU Á
STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU
Fyrirtæki í plastiðnaði til sölu, tilvalið fyrir 1 til 2 menn
til að skapa sér sjálfstæða atvinnu. Hafið samband
við auglýsingaþjónustu DV í síma 27022. H-4477.
Vinningstölurnar 14. febrúar 1987.
Heildarvinningsupphæð: 8.879.158,-
1. vinningur var kr. 5.602.213,- og skiptist hann á milli 7 vinnings-
hafa, kr. 800.316,- á mann.
2. vinningur var kr. 983.083,50 og skiptist hann á 558 vinnings-
hafa, kr. 1.761,- á mann.
3. vinningur var kr. 2.293.861,50 og skiptist á 14.387 vinningshafa,
sem fá 1 59 krónur hver.
Upplýsingasimi: 685111.
FLUGLEIDIR
AÐALFUNDUR
FLUGLEIÐA HF.
verður haldinn föstudaginn 20. mars 1987 í Kristalsal
Hótel Loftleiða og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins, tillaga um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, frá og
með 12. mars nk. frá kl. 09.00 til 17.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundardags.
Stjórn Flugleiða hf.
sími 28705
Aftur er komið að okkar
vinsælatilboði sem allir
þekkja, 24 timar á aðeins
1600 krónur.
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI