Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987.
• Bjarni
órsigur
hjá Wanne
Eickel
Afli HilnvTrssari, DV. Þýskalandi:
Bjarni Guðmundsson átti nijög
góðan leik með liði sínu. Wanne
Eickei. í 2. deild handboltans um
síðustu helgi. Wanne Eickel vann
þa Langerich auðveldlega, 23-15,
eftir að staðan haföi verið 6-0 eftir
tuttugu mínútur og 10-3 i leikhléi.
Bjami skoraði þrjú mörk í leiknum
og- var með bestu mðnnum í liði
Eickel.
„ -SK.
Ravn Jensen
er dýrastur
DýTasti daaski leikmaðurinn
sem leikur í V-Þýskalandi er Hen-
rik Ravn Jensen en hann er tiltölu-
lega óþekktur hér á landi. Það er
líklega ekki nema von því Henrik
er aðeins 21 árs og eru aðeins um
íjórir mánuðir síðan hann hóf at-
vinnumennsku. Hann lék með
Vejle Boldkluhb þegar útsendarar
Fortuna Diisseldorf komu auga á
Henrik sem leikur í sókninni. Það
er ekki hægt áð segjtt annað en
að Dússeldorf hafi lagt í góða fiár-
festingu. Þeir greiddu rúmá millj-
ón króna fyrir piitinn sem er nú
metinn á 15 milijónir króna.
í umsögn Kickers um Henrik
fyrir stuttu var honum spáð mikl-
um ft-ama og að hann væri örugg-
lega landsliðsmaður framtíðarinn-
ar hjá Dönum. Henrik er Hpur
sóknarmaður með mikla tækni og
næmt auga fyrir marktækifærum.
Nú leika fimm danskir leiknienn
í Bundesligunni en við íslendingar
eigum eins og kunnugt er þrjá ieik-
menn þar. Þeir eru auk Henrik:
Morten Olsen lijú Köin. Lars
I-undc iijá Bayern Múnchén. Elvar
Jörgensen hjá Mannheim og Ole
Möller Níelsen hjá Bochum.
-SMJ
Mót hjá IK
Firma-og félagahópakeppni ÍK í
innanhússknattspymu verður
haldin í íþróttahúsinu í Digranesi
í Kópavogi. Hefst keppnin sunnu-
daginn 25. febrúar. Keppt verðui’ í
riðlum þann dag og að auki mið-
vikudaginn 25. febrúar og sunnu-
daginn 1. mars. Leikið verður til
úrslita miðvikudaginn 4. mars.
Fjórir til átta leikir á hvert lið,
Þátttökugjald er 4000 krónur og
aðeins 25 lið komast í keppnina.
Því er mikilvægt að grípa sem fyrst
til símans og tUkynna þátttöku
fyrir þá sem að henni hyggja.
Þeir sem svara þátttökutilkynn-
ingum eru: Víðir (68 13 33 eða 7
52 09), Reinhardt (4 40 04 eða 2 93
68), og Ragnar Bogi (8 32 33 eða 4
22 72).
Þátttöku ber að tilkynna fyrir
18. febrúar.
Þorbjöm vrtakóngur
- skoraði 5 úr vítum. Bvynjar með 10 mörk
Gunnlaugur A Jánssan, DV, Svíþjóð:
Ekki var leikið í úrvalsdeild þeirra
Svía um helgina vegna landsieikja við
Spánverja. Á hinn bóginn fóru fram
leikir í syðri riðli fyrstu deildar og
áttu íslendingar sem þar leika ágætan
dag.
Olympia vann botnliðið Wasa Itema
með 28 mörkum gegn 19. Brynjar
Harðarson átti stórleik. skoraði 10
mörk og átti auk þess ófáar línusend-
ingar.
IFK Malmö lék aftui' á móti við
Sávehof á útivelli og tapaði. 26-33.
Gunnar Gunnarsson þótti besti maður
vallarins þrátt fyrir tapið og skoraði
6 af mörkum þeirra Málmevinga. Þor-
bjöm Jensson skoraði hins vegar 7.
• Brynjar Harðarson.
þar af 5 úr vítum. Hann er nú víta-
skytta Málmeyjariiðsins og hefur
frammistaða hans á þeim vettvangi
vakið umtalsverða athygli í Svíþjóð.
Gunulaugur A Jónsson, DV, Sviþjóð:
Svíþjóð mætti Spánverjum í tveimur
landsleikjum í handknattleik í vik-
unni sem leið. F>ttí leikurinn fór fram
í Stokkhólmi og lauk honum með sigri
heimamanna, 21-20. Jilsen bræðumir,
þeir Björn og Pár, lögðu grunninn að
sigrinum. Skomðu hvor um sig 6
mörk. Melo skoraði flest mörk Spán-
verja eða 4.
í seinni leiknum, sem fór fram í
Rörebro, tókst Spánverjum hins vegar
að hefna ófaranna í fyrri leiknum.
Þeir sigmðu þá gestgjafa sína með 20
Sávehof er nú nú efst í syðri riðli en
IFK Malmö hefúr hins vegar lútið
undan síga í baráttunni um sæti í
Allsvenskan. -JÖG.
mörkum gegn 19.
Björn Jilsen var markahæstur Svía
með 7 mörk en Melo skoraði fiest
mörk Spánverja eða 6.
Markvörður Svía, Mats Olsson, átti
afar góðan dag í Rörebro. Stórbrotin
markvarsla hans dugði þó ekki
sænska liðinu til sigurs eins og gegn
Islendingum á Eystrasaltsmótinu.
Svíar eru mjög sáttir við árangur
sinna manna þrátt fyrir tapið gegn
Spánverjum. Þeir hafa leikið 21 lands-
leik á yfirstandandi keppnismisseri,
sigrað í 12, tapað í 6 en gert 3 jafnteíli.
-JÖG.
Blak:
Dregið í bikamum
í gærkvöldi var dregið í undanúr-
slitum bikarkeppninnai- í blaki. í
karlaflokki leiða saman hesta sína
KA og Þróttur annars vegar og ÍS
og Fram hins vegar.
í kvennaflokki drógust saman
UBK-KA og ÍS-Þróttur. Má búast
við hörkuviðureignum í öllum þess-
um leikjum.
Tap og sigur hjá
Svíum gegn
Spánverjum
Svissneskur undramaður
- ógnar veldi A-Þjóðverja í kúluvarpi
Besti kúluvarpari í heimi nú þessa
dagana er 25 ára gamall Svisslending-
ur. Wemer Gúntör kom gífurlega á
óvart þegar hann bar sigurorð af a-
þýsku kúluvörpurunum Uif Timmer-
man og Udo Bayer á Evrópumeistara-
mótinu í Stuttgart síðasta haust. í
byrjun mánaðarins sýndi hann að
þessi árangur hans var engin tilviljun
því þá setti hann nýtt heimsmet innan-
húss.
Það er ekki oft sem kúluvarparar
ná að kasta yfir 22 m á mótum innan-
húss. Á síðasta vetri kastaði Gúntör
21,80 m en hann setti persónulegt met
á Evrópumeistaramótinu með því að
kasta 22,22 m.
Hefur góða tækni
Mikil rigning og blautur hringur var
öðru fremur talið stuðla að sigri
Gúntörs á EM. Bayer, sem hafði rétt
fyrir EM sett nýtt heimsmet heima í
A-Berlín, og Timmerman áttu í erfið-
leikum í blautum kúluvarpshringnum.
Þeir þurfa á þurru og traustu undir-
lagi að halda til að geta nýtt sér til
fullnustu sinn grófa og kraftmikla stíl.
Það þurfti hins vegar Gúntör ekki.
Hann er ekki eins kraftalegur eins og
a-þýsku risamir en mjög tekniskur.
Tækni hans gerði honum kleift að
nýta allan hringinn fyrir atrennu. A-
Þjóðveijarnir voru hins vegar með
hefðbundnari stíl og töpuðu því. Þjóð-
verjamir tveir hafa verið nánast
ósigrandi á undanfömum árum en nú
er ljóst að þeir hafa fengið verðugan
keppinaut.
11 kúluvarparar hafa kastað yfir 22
metra en aðeins hefur fiórum sinnum
verið kastað yfir 22 metra innanhúss.
Sama dag og Gúntör setti heimsmet
sitt, 22,26 m, kastaði Timmermann 22
m slétta á móti í Senftenberg en þar
hafði hann sett heimsmet innanhúss
tveim árum áður, 22,15 m.
Nú em skráð 35 köst yfir 22 m en
aðeins er skráð lengsta kast hvers
keppanda í hverri keppni fyrir sig.
Eftirfarandi kastarar hafa kastað yfir
22 m en kast Brian Oldfield er ekki
viðurkennt sem heimsmet því hann
var atvinnumaður þegar hann náði
að kasta kúlunni þessa ótrúlegu vega-
lengd, x merkir innanhúss:
22,86 Brian Oldfield (USA).......’75
22,64 Udo Bayer (A-Þýskal.)......’86
22,62 Timmerman (A-Þýskal.)......’85
22,26 Wemer Gúntör x (Sviss).....’87
22,24 Sergej Smimov (USSR).......’86
22,10 Sergej Gavrjusjin (USSR)...’86
22,09 Sergej Kasnauskas (USSR)...’84
22,06 Alessandro Andrei (Italía).’86
22,02 George Woods x (USA).......’72
22,02 David Laut (USA)...........’82
22,00 A. Barysjnikov (USSR)......’76
-SMJ
• Werner Giintör þykir hafa mjög
góðan stíl í kúluvarpinu og fyrir stuttu
setti þessi 25 ára gamli Svisslending-
ur nýtt heimsmet í kúluvarpi innan-
húss, kastaði 22,26 metra.
• Wortington gifti sig fyrir stuttu ungri stúlku
sem heitir Carol Dwyer og hér.sést hann
fagna því ásamt Ron Atkinson og Les
Chapman. Nú þarf Wortington eins og Atk-
inson að leita sér að nýrri vinnu.
Worthington
var rekinn
Þá hefúr Frank Worthington verið látimi
taka pokann sinn en nú um helgina var
hann rekinn frá 4. deildar liðinu Tranmere.
Þar hefur Worthington verið framkvæmdá-
stjóri i vetur auk þess sem hann liefur leikið
með liðinu. Worthington er einn litríkasti
knattspyrnumaður Englands og hafa ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur fengið að sjá
dæmigert „Worthingtonmark” á liverjum
laugardegi í markasyrpunni á undan ensku
knattspymunni.
Undanfarin sumur hefur Worthington
leikið í Svíþjóð við miklar vinsældir. Tran-
mere skuldaði um 25 milljónir króna og því
var kappinn látinn fara.
-SMJ
Fimmta umferðin á laugardag
Fimmta umferð ensku bikarkeppninnar
verður á laugardag, 21. febrúar. Þú ieika
Arsenai-Bamsley, Leeds QPR, Shéff.
Wed, West Ham, Stoke-Coventry, Totten-
ham -Newcastle, Walsall-Watford og
Wigan-Hull. Á sunnudag leika Wimbledon
og Everton. Þeim leik verður sjónvarpað
beint á Englandi en Everton er ásamt Lund-
únaliðunum Arsenal og Tottenham taiið
sigurstranglegast í bikarkeppninni.
Nokkrir ieikir verða í 1. deild á laugar-
dag. Aston Villa Liverpooi, Charlton
Oxford, Chelsea Man. Utd, Leicester-
Noi-wich og Man. City-Luton.
-hsím
Mathy þoldi
ekki álagið
Alli Mlrnaissan, DV, Þýskalandi:
Roinhold Mathy, leikmaður með Bayem
Múnchen í knattspyrnu, hefúr lýst því yfir
að hann sé hættur að leika knattspyrnu.
Ástæðuna segir hann vera mikla andlega
þreytu samfara æfingum og keppni. Mathy
segist vera orðinn óskaplega tæpur á taug-
inni og hann sé í marga klukkutíma að jafna
sig eftir mikil átök á knattspymuvellinum.