Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Page 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Skúlaskeiði 40, 1. hæð, Hafnarfirði, tal. eign
Sigurgeirs Gíslasonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987
kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 45. og 51. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Hrauntungu 24, Hafnarfirði, þingl. eign Þórðar Karlssonar, fer fram eftir
kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar
1987 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Klausturhvammi 9, Hafnarfirði, þingl. eign Guð-
jóns Arnbjörnssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 54. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Sléttahrauni 27, 3. h.t.v., merkt E, Hafnarfirði, þingl. eign Agnesar Olgu
Jónsdóttur og Halldórs Olgeirssonar, fer fram eftir kröfu Kópavogskaupstað-
ar og Innheimtu sveitarfélaga á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987
kl. 16.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á eigninni Klettagötu 12, Hafnarfirði, tal. eign Guðjóns
Guðnasonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 70., 72. og 74. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Eiðistorgi 17, íbúð 301, Seltjarnarnesi, þingl. eign Jóhannesar Stefánsson-
ar og Guðnýjar Guðmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Valgarðs Sigurðssonar
hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Miðbraut 23, 2. hæð, norðurenda, Seltjarnar-
nesi, þingl. eign Jóns Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn
20. febrúar 1987 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Gimli v. Álftanesveg, Garðakaupstað, þingl. eign
Guðmundar Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar
1987 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 45. og 51. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Heimatúni 2, Bessastaðahreppi, þingl. eign Öldu Guðbjörnsdóttur pg
Vilhjálms Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka ís-
lands, Valgarðs Sigurðssonar hdl., Iðnlánasjóðs og Landsbanka íslands á
eigninni sjálfri föstudaginn 20. febrúar 1987 kl. 15.45.
_____________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Hverfisgötu 105, 2. hæð B, þingl. eigandi
Tryggvi Hannesson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febr. 1987
kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Gísli Baldur Garðarsson hrl., Ásgeir Thor-
oddsen hdl., Jón Ólafsson hrl. og Ólafur Axelsson hrl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Framnesvegi 61, 3. t.v„ þingl. eigandi Ástríð-
ur Þorsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febr. 1987 kl.
11.00. Uppboðsbeiðandi er Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Klapparstíg 18, risi, þingl. eigandi Trausti
Eiríksson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febrúar 1987 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðandi er Baldur Guðlaugsson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Skaftahlíð 15, risi, þingl. eigendur Jóhannes
Jóhannesson og Ólafía Daviósd., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn
19. febr. 1987 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka ís-
lands og Skúli J. Pálmason hrl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Snorrabraut 85, efri hæð, þingl. eigandi
Katrin Magnúsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. febrúar
1987 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Landsbanki íslands.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Grettisgötu 54, B, tal. eigendur Friðrik Björg-
vinsson og Eyvör Baldursd., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19.
febrúar 1987 kl. 14.00. Uppþoðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík,
Sigurður Sigurjónsson hdl„ Örn Clausen hrl„ Friðjón Örn Friðjónsson hdl.
og Landsbanki íslands.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Soul Train.
Sænskur
jass og blús
Svensk Jazzhistoria Vol 4: Beredskapss-
wing 1940-42
Caprice CAP 2018
Green Prints: Lennart áberg
Caprice CAP 1276
Harlem Jazz Cameis
Caprice/Reportage 3037
Jazz i Sverige - Soul Train
Caprice CAP 1335
Umboð á islandi: istónn
Svíar eiga sér bæði langa og
margslungna jasssögu, sem útgáfu-
fyrirtækið Caprice hefur verið
önnum kafið að skrá og gefa út á
undanförnum árum. Þessi saga byfy
ar strax á öðrum áratug þessarar
aldar og til þessa hefur fyrirtækið
gefið út fjögur tvöfóld albúm af
sænskum jass. Það eru jassgeggjar-
amir Jan Bruér og Bengt Nyquist
sem hafa umsjón útgáfunnar með
höndum, og hafa þeir tekið saman
alls kyns upplýsingar, viðtöl og úr-
klippur, og láta fylgja hverju albúmi.
Fjórða albúmið heitir „Bered-
skapsswing" eða viðbúnaðarswing,
og fjallar um sænskan jass á árunum
194CM2.
Þá vom Svíar viðbúnir því að
þurfa að taka þátt í heimsstyrjöld-
inni á hverri stundu, en dansböndin
reyndu að létta af fólki áhyggjunum
með glaðlegri swingtónlist. Þessi
tónlist gerði góða jassleikara úr spil-
urum eins og Gösta Theselius, Ake
Hasselgárd og Ame Domnéms.
Jass fyrir sanntrúaða
Þótt mikið bæri á stórsveitunum,
öðluðust ýmsar smærri grúppur
einnig miklar vinsældir. Þeirra vin-
sælust var tvímælalaust Svenska
Hotkvintetten, eins konar súper-
grúppa sem var mest í því að leika
inn á 78 snúninga plötur.
Aðalsprautan í þessum kvintett
var Sven Stiberg, fyrsti Svíi til að
spila jass á rafmagnsgítar, en söng-
konan var engin önnur en sjálf Alice
Babs, einhver vinsælasta söngkona
Svía fyrr og síðar.
A „Beredskapsswing" er að finna
mikinn fjölda af upptökum írá um-
ræddu tímabili eftir alla helstu
jassmenn Svía, þar á meðal fyrstu
upptökur Alice Babs sem eflaust
munu gleðja eyru allra sanntrúaðra
jassgeggjara.
í dag eru fáir sænskir jassmenn
þekktari en Lennart Aberg, sem spil-
smíðar undir austurlenskum og
afrískum merkjum, en hinum megin
er svo ekta vestrænn stórbandsjass
í anda George Russels og Gil Evans,
en Áberg hefur leikið með þeim báð-
um.
Eg verð að játa að ég er hrifnari
af tilraunum Ábergs með stef og
takta úr indverskri og balíneskri
tónlist heldur en stórbandsjassinum
hans. Kannski er það vegna þess að
meðspilarar hans virðast njóta sín
betur í þess konar tónlist. Allt um
það er hér blásið af fítonskrafti.
Þótt merkilegt megi virðast hafa
Svíar dálítið stundað það að gera
út á gamlan jass, sérstaklega Dixie-
land og New Orleans-afbrigðin, með
býsna góðum árangri.
Ein skemmtilegasta hljómsveitin á
þeirri línu er Harlem Jazz Camels
sem spilar svo yndislega að maður
er kominn til Preservation Hall í
New Orleans í huganum eins og
skot.
Á fyrstu hljómplötu sinni spilar
þessi 10 manna hljómsveit tólf út-
setningar eftir Cootie Williams,
Duke Ellington, Coleman Hawkins,
Horace Henderson, Jimmy van He-
usen, Gershwin bræður og fleiri
snillinga.
Það er til marks um hæfni hljóð-
færaleikaranna, að þessar upptökur,
sem eru lifandi að hluta, virka alls
ekki sem stælingar, heldur eins og
spánnýjar túlkanir.
Blönduð tónlist
Á hverju ári greiða jassgeggjarar
í Svíþjóð atkvæði um bestu jass-
hljómsveitina þar í landi, og Caprice
gefur síðan út plötu með hinum út-
völdu. í fyrra var hljómsveitin Soul
Train útnefnd til þess heiðurs en hún
spilar ekki ómengaðan jass heldur
blöndu af jassi, blús, saísa og nýmóð-
ins sáltónlist. Þetta hljómar kannski
ekki gæfulega, en gengur þó upp,
aðallega vegna þess að söngvari
sveitarinnar, Claes Jansson, hefur
mikla og þjála rödd.
Svo eru þarna þrautreyndir menn
eins og Gustavo Bergalli á trompet
og Tommy Koverhult á saxófón,
þannig að það má alveg hafa ánægju
af þessari plötu sænsku Sállestar-
innar.
-ai
ar á ijórar tegundir saxófóna (sópr-
anínó, sópran, altó og tenór), auk
flautu, en í aldarfjórðung hefur hann
leikið með fjöldamörgum sænskum
og bandarískum jassleikurum.
Áberg hefur líka spilað alls kyns
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
jass, stórsveitajass, framúrstefhujass
með smásveitum, rafurjass og ýmiss
konar bræðing með grúppum á borð
við Rena Rama og Oriental Wind.
Nýjasta hljómplata Ábergs er
„Green Prints", með frumsamdri
tónlist fyrir stórsveit.
í þessari stórsveit eru engir græn-
jaxlar, heldur hörkutól á borð við
Jan Kohlin, Leif Lindvall, Palle
Mikkelborg og átján aðra.
Tvískiptur
Það er dálítið einkennandi fyrir
Áberg, að hann skiptir þessari plötu
sinni í tvennt. Öðrum megin eru tón-
Lennart Áberg i stuði.