Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1987, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1987.
2fH
Sviðsljós
Kærastan íturvaxna
Tennisstjarnan Vitas Gerulaitis er ekki einungis lipur tennisleikari heldur
hefur karl sæmilegt auga fyrir kvenmannsbúkum. Þetta er kærastan - Janet
Jones - en hún er forsíðustúlkan á marshefti Playboytímaritsins. Janet er
leikkona, hefur komið fram í myndum eins og The Flamingo Kid. A Chorus
Line og American Anthem en er þó einkum nafntoguð fyrir að vera búkgóð
kvensa með afbrigðum.
Bókmennta-
þjóðin vestra
íslendingar eru ekki eina bókmenntaþjóð veraldar. Hasarmyndablöð eru í
miklum metum hjá nágrönnum okkar í vestri og seljast nú sem aldrei fyrr.
Maðurinn á meðfylgjandi Reutermynd er einn æðstuprestanna í bransanum
og segir karl að selt sé fyrir í kringum þrjú hundruð milljónir dollara. Eng-
ir smápeningar skoppandi í þeim herbúðum!
Slaufuburður Díönu
Kalli prins er varla kominn úr hvalahálsbindinu ægilega þegar
Díana, eiginkona hans, setur allt á annan endann með hálstau-
inu líka. í opinberri heimsókn hjúanna til Portúgal mætti Di
á ballettsýningu í Lisbons Gulbenkian Centre með myndar-
slaufu á berum hálsinum. Viðstaddir menn og kettir ráku
upp stór augu og nú lætur enginn sjá sig slaufulausan utan
dyra á næstunni.
Pappírskóróna
á prinsessuna
Díönu prinsessu af Wales var gefin pappírskóróna þegar hún
heimsótti Sintra Palace í Portúgal. Gefendur voru börnin í
bænum og á meðfvlgjandi Reutersmynd sést prinsessan teygia
sig eftir gripnum.
Ólyginn
sagði...
Sylvester
Stallone
keypti nýtt hús fyrir sína dönsku
tengdaforeldra svo hann hefði
eitthvert svigrúm á staðnum
þegar hann heimsækir Dan-
mörku með eiginkonunni Gitte
Nielsen. Villan er við Helsingor
og heil álma er þar ætluð gest-
um allan ársins hring. Þegar
foreldrar Gitte koma svo til
Hollivúdd búa þau hjá Rambó-
hjónunum sem eru að sögn
hreint alveg að springa af ham-
ingju.
Friðrik
krónprins
Dana er. grútspældur núna.
Þegar hann berst um á hæl og
hnakka i herskóla situr Jóakim
litli bróðir og sólar sig i Ástraliu.
Til þess að þita svo höfuðið af
skömminni eru foreldrarnir al-
sælir með Jóakim þvi hann
blómstrar meðal andfætling-
anna - orðinn kaffibrúnn og
sælleguraf dvölinni. Friðrik situr
hins vegar náfölur inni yfir
skólabókum alla daga og i verk-
legum æfingum er honum velt
upp úr leðju og skit. Krónprins-
inn er ekki öfundsverður af
hlutskipti sinu þessa dagana.
Madonna
er af trygglyndu gerðinni og það
angrar eiginmanninn Sean
Penn verulega. Það er allt i lagi
á meðan hún heldur sig við
hans höfðinglegu persónu á
hverju sem gengur en þegar
fyrrum elskhugar koma inn i ’ r
dæmið ætlar allt vitlaust að
verða. Einnfyrrverandi hjá kven-
sunni er illa haldinn af eyðni og
Madonna styður hann ótrauð í
veikindastríðinu. Allir himinháir
læknareikningar eru skráðir á
Madonnu sem síðan þorgar
summuna umyrðalaust.