Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Síða 29
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1987.
Dægradvöl
41
Fyrirsæta
á faraldsfæti
Texti: Dröfn Hreiðarsdóttir
I stuttu samtali sagði Snæfríður að myndimar
hefðu verið teknar í Miinchen í Vestur-Þýskalandi
í byrjun desember síðastliðinn og var hún þar yfir
eina helgi en gafst lítið tóm til að skoða sig um í
borginni en þó vildi svo skemmtilega til að hún
bjó á hóteli við sömu götu og hún hafði búið við
fyrir tíu árum með foreldrum sínum.
Á þessum tíma hafði hún þó fast aðsetur í París
og bjó hún þar í þrjá mánuði og vann sem ljós-
myndafyrirsæta. París er aðalmiðstöð tískuheims-
ins í Evrópu og þykir tískuheimurinn yfirleitt vera
mjög harður og þar gildir það eitt að koma sér
áfram.
Það er viðurkenndur gæðastimpill að hafa unnið
að fyrirsætustörfum í París og gott veganesti í
myndamöppuna sem allar fyrirsætur saína í. Mapp-
an er númer eitt, segir Snæfríður, því það er farið
eftir henni þegar valið er í myndatökur.
Fyrirsætustarfíð er því ekki bara dans á rósum
heldur vinna eins svo margt annað, þó svo að starf-
ið sé heillandi og bjóði upp á ferðalög og tækifæri
til að kynnast nýju fólki og nýjum siðum.
Erlend tímarit njóta ótrúlega mikilla vinsælda
hérlendis og hverfa bókstaflega úr hillum bóka-
verslana fljótlega eftir að þau koma til landsins svo
maður verður að hafa sig allan við til að tryggja
sér eintak.
Tímaritin eru yfirleitt ekki mjög langlíf en fólk
les þau sér til dægradvalar, skemmtunar og fræðslu.
Tískutímaritin eiga sér stóran áhugamannahóp
sem fylgist grannt með nýjustu sveiflum í tísku-
heiminum. Tíska er þó ekki eingöngu litir, efni og
snið fatnaðar heldur nær hún líka til margra þeirra
hluta sem við höfum í kringum okkar á hverjum
tíma. Þess vegna innihalda mörg tískutímaritanna
greinar um ýmsar nýjungar og breyttar stefnur
hveiju sinni ásamt sívinsælum greinum um þekkt
fólk.
Stöku sinnum hafa íslenskar fyrirsætur náð þeim
eftirsóknarverða árangri að komast á síður heims-
frægra tískutímarita. Svo var einmitt í janúarhefti
þýska tískutímaritsins Freundin að kunnuglegt
andlit birtist á einum sex heilum síðum í blaðinu
og var þar Snæfríður Baldvinsdóttir á ferð að boða
brot af komandi vor- og sumartísku.
Hér getur að lita nokkrar af þeim myndum sem birtust i tískutimaritinu.
PERMANENT FYRIRALLA
VERIÐ VELKOMIN.
VALHÖLLá "bsuwa
ÓÐIfíSQÖTU 2, REYKJAm ■ SIMU22138 ■
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstra eða þroskaþjálfi óskast til stuðnings börnum
með sérþarfir á leikskólann Hálsakot, Hálsaseli 29.
Upplýsingar gefur Guðrún Einarsdóttir sálfræðingur á
skrifstofu Dagvistar barna í símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur eða annað starfsfólk með aðra uppeldislega
menntun óskast til starfa á leikskólann/skóladag-
heimilið Hálsakot, Hálsaseli 29, og Hraunborg,
Hraunbergi 10.
Upplýsingargefur umsjónarfóstra á skrifstofu Dagvist-
ar barna í síma 27277 og 22360 og forstöðumaður
viðkomandi heimilis.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
fH HUNDAHALD
^ í REYKJAVÍK
GJALDDAGILEYFISGJALDS FELLUR Í GJALDDAGA1. MARS NK.
Gjaldið, sem er kr. 5.400,00 fyrir hvern hund, greiðist
fyrirfram og óskipt fyrir allt tímabilið eigi síðar en á
eindaga, 1. apríl 1987.
Verði það eigi greitt á tilskildum tíma fellur leyfið úr
gildi.
Um leið og gjaldið er greitt skal framvísa:
1. Leyfisskírteini.
2. Hundahreinsunarvottorði, eigi eldra en frá 1. sept-
ember 1986.
Gjaldið greiðist hjá heilbrigðiseftirlitinu, Drápuhlíð 14.
Skrifstofan er opin kl. 8.20-16.15.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis.