Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1987. 45' Sviðsljós Prinsessan Flugan Kvikmyndin Flugan er nú sýnd í einu bíóhúsanna í borginni og snýst að mestu um mann sem breytist í óhugnanlega flugu. Sá sem verður fyrir þeim ósköpum er vísindamaður nokkur sem gerir líffræðilegar tilraunir á sjálfum sér og verður fyrir því að hans eigin likamsfrumur blandast líkamsfrumum flugu nokkurrar og úr verður áður óþekkt fyrirbæri sem sér bíógestum fyrir hrolli og hryllingi. Astin ljómar af þeim í allar áttir, ættmennum prinsessunnar til mikillar skelfingar. baðar sig Fyrstu myndimar frá eynni Maurice eru þegar teknar að birtast í fjölmiðl- um og sýna þær Stefaníu af Mónakó með nýjasta kærastanum, Mario Oliver. Hún segist ætla að fara með hann hið allra fyrsta til Mónakó svo furstinn faðir hennar geti lagt blessun sína yfir sambandið. Kunningjarnir eru ekki jafnbjartsýnir, segja Stebbu blinda með öllu og þetta muni leiða til þess að Rainier grípi til einhverra örvæntingaraðgerða. í viðtali við franska blaðið Paris Match segist prinsessan aldrei fyrr á ævinni hafa verið ástfangin, þetta sé allt önnur tilfinning og hún líti á Mario sem eina manninn í lífi sínu. Hann segir hins vegar Steþbu sameina alla þá kosti sem kvenfólk má prýða þannig að k&ppinn er hæstánægður með sitt hlutskipti. Hins vegar telja þlaðamenn ferðina til Maurice vera flótta frá fjölmiðlum - og ættingjum að auki - þau hafi ekki lagt í allan hamaganginn á staðnum. Mario rekur einn þekktasta næturklúbbinn í Los Angeles sem heitir Le Vertigo. Þangað safnast helstu stjörnumar, svo sem Madonna, Liza Minn- elli, Clint Eastwood og Richard Gere. Þetta eru ekki einungis gestir hans á klúbbnum heldur einnig persónulegir vinir og í gegnum stjörnuliðið kynnt- ust þau Stefanía. Sumir segja sameiginlega kókaínneyslu tengja þau föstum böndum en víst er að Mario er ekki draumatengdasonurinn í litla furstadæm- inu Mónakó. Þau njóta lifsins saman á eynni Maurice - Stefanía af Mónakó og nætur- klúbbaeigandinn Mario Oliver. Mildir Indíánar Indíánarnir litskrúðugu á meðfylgjandi mynd em löngu heimsþekktir en þó kannski ekki fyrir neinn sérstakan vígamóð. Þetta em þau Alþert og Karó- lína í Mónakó og er myndin tekin þegar þau voru á leið á grímudansleik barna fyrir allmörgum árum. Karólína er orðin ráðsett tveggja barna móðir en Albert veldur landsmönnum stöðugum áhyggjum með því að þrjóskast við að ganga í hjónaband. Núna em uppi háværar raddir þess efnis að lík- lega taki Karólína við ríkinu í stað þróður síns en hún var ekki aðeins herskárri en hann, íklædd indíánabúningi, heldur er hún einnig mun ákveðn- ari í raunvemleikanum. Þeir eru ekki liklegir til árásar, þessir! Ólyginn sagði... Eðvarð prins slakar á núna og reynir að láta ekki skrif í fjölmiðlum hafa áhrif á ákvarðanir. Það er lítil hrifning í bresku höllinni vegna aðgerða hans varðandi brotthlaupið úr hernum og honum var haldið heima þegar bræðurnir tveir fóru með eiginkonurnar í skíða- ferðtil Klosters. Einhvern veginn verða hallarbúar þó að leysa málin og er búist við sáttum innan tíðar því Elísabet og Eð- varð hafa alltaf verið ákaflega náin. Reyndar var hann hér áður kallaður mömmudrengurinn en smám saman hefur löndum hans orðið Ijóst að þessi yngsti sonur í fjölskyldunni er jafnvel sjálfstæðari en systkini hans þrjú þótt lítið láti yfir sér hvers- daglega. Karólína af Mónakó er ein þeirra sem brugðu sér á skíði og átti hún fullt i fangi með að ráða við börnin tvö sem bæði vildu eiga athygli hennar alla. Stundum hefur Stefanía rétt hjálpandi hönd við uppeldi frændsystkinanna en hún er núna önnum kafin i vafasömu ástarævintýri á Suðurhafsey þannig að stóra systir hefur orð- ið að bjarga sér ein í þetta skiptið. Eitthvað sést eigin- manni Karólínu bregða fyrir öðru hverju en hann er að sögn fjölmiðla ótrúlega afskiptalítill uppalandi - enda af rómönskum karlrembum í ótalda ættliði. C Soffía Lóren heldur sig við þá smávöxnu hvað karlpeninginn snertir. Ekki aðeins hvað eiginmanninn ofur- litla - Carlo Ponti - áhrærir heldur heimsótti stjarnan Dis- neyland til þess eins að falla platónskt fyrir Mikka mús. Hún lét undrunaraugu nærstaddra ekkert á sig fá enda alvön slíku og faðmaði Mikka að sér i tíma og ótíma. Sagt er að Andrés önd hafi orðið óður af afbrýðisemi og því orðið að loka hann inni meðan Soffía var á staðnum. Jóakim frændi var fenginn til þess að gæta dyranna og sat hann á Drésa sem gullklumpur væri þar til yfir lauk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.