Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
íþróttir
•Steinar Birgisson skoraði 8
mörk um helgina.
íslendinga-
slagur
í Noregi
Gauti Grélaissan, DV, Noiegi;
íslendingaliðin Stabæk og Krist-
iansand áttust við í norsku fyrstu
deildinni nú um helgina. Lauk
leiknum með sigri þeirra síðar-
nefndu, 26-23.
Steinar Birgisson lagði di'ögin
að sigri Kristiansandliðsins með
góðum leik. Hann skoraði 8 mörk,
þar af 2 úr vítum. Verður þessi
árangur Steinars að teljast ágætur
því Magnús Ingi Stefánsson stóð í
marki Stabæk og varði sem ber-
serkur allan tímann. -JÖG
12. tHill
Víkinga
I DV í gær var það haft eílir
Guðmundi Guðmundssyni, fyrir-
liða nýbakaðra íslandsmeistara
Víkings í handknattleik að titill-
inn sem félagið tryggði sér í
Laugardalshöll á sunnudagskvöld-
ið hefði verið 10. titill félagsins írá
1978. Samkvæmt upplýsingum
Halls Hallsonar, formanns hand-
knattleiksdeildar Víkings, hefúr
Víkingur unnið tólf titla á þessu
tímabili og sextán ef Reykjavíkur-
mót eru með talin. Víkingar hafa
sex sinnum orðið bikarmeistarar
frá 1978 og sex sinnum íslands-
meistarar. Þá má geta þess að
Víkingar hafa ekki tapað leik í
bikarkeppninni fiá því 1982 og er
það einstakur árangur. Víkingar
eiga að leika við KR í bikarkeppn-
inni á morgun.
ALSTIGAR
ALLAR GERÐIR
SÉRSMÍÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahrauni 7, S 651960
10 ASA ABYRGÐ
• Darraðardans i skemmtilegri afmælisviðureign ÍR-inga og úrvalsliðs Reykjavíkur. Liðin skyldu jöfn, 3-3.
DV-mynd Brynjar Gauti
Fjörugur afmælisleikur
- ÍR og Reykjavíkurúrval skyldu jöfn, 3-3
í tilefrii af 80 ára afmæli íþróttafé-
lags Reykjavíkur efndi knattspymu-
deild félagsins til viðureignar milli
meistaraflokks síns og úrvalsliðs
Reykjavíkur. Leikurinn, sem fór fram
á gervigrasvellinum á sunnudag,
gladdi augað enda léku bæði lið ákaft
til sigurs. Sótt var á báða bóga og
skópust því ófá færi.
Reykjavíkurúrvalið, sem var raunar
öllu skæðara í leiknum, tók forystuna
í fyrri hálfleik með marki Ingvars
Guðmundssonar. Sæbjöm Guðmunds-
son jók síðan við í upphafi síðari
hálfleiks með ágætu skoti.
Þótt IR-ingar ættu á brattann að
sækja þegar þar var komið við sögu
vom þeir ekki á því að lúta í lægra
haldi. Minnkaði Finnur Siguijónsson
því bilið að hætti Maradona, - með
„hendi guðs.“ Knútur Bjamason jafii-
aði síðan metin, beint úr aukaspymu,
2-2.
Ekki var lokið baráttu Breiðhylt-
inga þótt þeir stæðu jafnir úrvalspilt-
unum. Páll Rafnsson kom þeim
nefhilega yfir með afar glæsilegu lang-
skoti.
Willum Þórsson jafhaði hins vegar
skömmu síðar og því lauk leiknum
með jafhtefli - hvort lið gerði þrjú
mörk.
-JÖG
Miklir möguleikar hjá Þór
- á að tryggja sér sæti í 1. deild í handbolta
Reynir,S...16 5 5 6 363-410 15 Grótta.15 5 2 8 327-374 12
Fylkir.16 6 1 9 330-359 13 ÍA.16 1 1 14 319-442 3
ÍBK..16 5 2 9 349-354 12 -SK
14 íslandsmet
hjá öldungum
- Oldungamót hjá FRÍ um helgina
Handknattleikslið Þórs frá Akur-
eyri hefur nú mjög mikla möguleika á
að endurheimta sæti sitt í 1. deildinni
í handbolta en langur tími er síðan
liðið lék í 1. deild síðast. Þórsarar
hafa staðið sig frábærlega vel í 2. deild-
inni í vetur og em sem stendur í öðm
sæti.
ÍR-ingar hafa þegar tryggt sér sigur
í 2. deildinni og 1. deildar sæti næsta
keppnistímabil og em með 26 stig.
Þórsarar em með 22 stig, Afturelding
er með 19 og ÍBV með 18. Þórsarar
eiga eftir að léika gegn Keflavík og
IR hér syðra um næstu helgi og nægir
liðinu að vinna IBK og gera jafntefli
við ÍR til að tryggja sér 1. deildar
sætið. Síðasti leikur Þórs verður á
Akureyri gegn ÍBV þannig að ljóst
má vera að möguleikar Þórsara em
umtalsverðir. Fæstir áttu von á því
fyrir keppnistímabilið að Þór myndi
blanda sér í baráttuna um sæti í 1.
deild og þeir vom margir sem spáðu
liðinu falli í 3. deild. Ekki er lengra
síðan en í fyrra að minnstu munaði
að handknattleiksdeildin yrði lögð
niður vegna þess að enginn fékkst til
að starfa fyrir deildina. Málum var
bjargað, Smári Garðarsson tók við
stjómartaumunum sem formaður
deildarinnar og Erlendur Hermanns-
son tók við þjálfun liðsins. Hann er
einn af mörgum lærisveinum Bogdans
landsliðsþjálfara og hefur Erlendur
náð undraverðum ámgri með lið Þórs
í vetur.
• Þórsarar léku um síðustu helgi tvo
leiki gegn Akumesingum á Akureyri.
Þórsarar unnu báða leikina ömgg-
lega, þann fyrri 29-19 og 33-19 í síðari
leiknum. Einn annar leikur fór fram
um helgina, Fylkir tapgði fyrir HK,
22-27. Staðan í 2. deild er þannig fyrir
lokaátökin:
ÍR........15 12 2 1 389-295 26
Þór, Ak... ...15 10 2 3 356-310 22
UMFA... ...16 8 3 5 382-347 19
IBV ...15 9 0 6 352-323 18
HK ...16 8 0 8 399-353 16
Helgina 14. og 15. mars fór fram inn-
anhússmót fyrir öldunga í fijálsum
íþróttum í Baldurshaga og íþróttahúsi
KR.
Keppt var í öllum aldursflokkum
karla (35 ára og eldri), elsti flokkur
60 ára. Einn kvennaflokkur keppti,
45-49 ára. Hver flokkur spannar yfir
fimm ára bil. Margir landskunnir
fijálsíþróttamenn hér fyrr á árum,
fyrrverandi methafar og Islandsmeist-
arar, mættu til leiks og sýndu gamla
takta.
„Ég er ánægður með minn hlut. Mér
tókst að vinna 7 greinar og setja fjög-
ur íslandsmet í 50 ára flokki. .1,51 m
er árangur á heimsmælikvarða í há-
stökki án atrennu, jafiivel heimsmet.
50 m grindahlaupið hljóp ég á 7,5 sek.
Ég ætla að keppa af krafti í sumar og
væntanlega á Norðurlandameistara-
móti öldunga í Bjömeborg í Finnlandi
ásamt 6 félögum mínurn," sagði Val-
bjöm Þorláksson, KR, eftir mótið.
Þess skal getið að Valbjöm Þorláks-
son á heimsmet í 110 m grindahlaupi
í 45 ára flokki, 14,7 sek. Friðleifúr Stef-
ánsson, KR, sigraði í þrístökki í 50 ára
flokki og stökk 7,67 m sem er íslands-
met. Fyrir 32 árum átti hann um skeið
Islandsmetið, 9,82 m.
Marteinn Guðjónsson, ÍR, 63 ára,
elsti keppandi mótsins, setti tvö ís-
landsmet í stökkum í 60 ára flokki.
Ólafúr Þórðarson, ÍA, setti Islandsmet
i 55 ára flokki í kúluvarpi, 12,10 m. I
45 ára flokki sigraði Jón Þ. Ólafsson,
ÍR, í tveimur greinum, hástökki, 1,60
m, og langstökki án atrennu, 2,74 m.
Ólafur Unnsteinsson, HSK, sigraði
í kúluvarpi, 11,50 m, 7,2 kg.
140 ára flokki sigraði Trausti Svein-
bjömsson, FH, í fimm greinum og setti
íslandsmet í langstökki án atrennu,
2,92 m, og þrístökki án atrennu, 8,34 m.
Jón Ö. Þormóðsson, ÍR, sigraði í
hástökki án atrennu, 1,48 m.
I 35 ára flokki sigraði Elías Sveins-
son, KR, í fjórum greinum. Elías hefúr
ekkikeppt innanhúss í fjögur ár vegna
meiðsla. Elías stökk 1,48 m í hástökki
án atrennu. Hreinn Jónasson, UBK,
sigraði í langstökki, 5,20 m, og 50 m,
6,8 sek. Ragnheiður Pálsdóttir, HSK,
var eini kvenkeppandinn og varpaði
8,62 m í kúluvarpi, 45 ára fl.
Keppendur vom frá 8 félögum. Öld-
ungaráð FRÍ og ÍR sáu um fram-
kvæmd mótsins. Mótsstjóri var Ólafúr
Unnsteinsson, formaður öldungaráðs
FRl.
-ÓM
DV
• Don Pooley með kúluna góðu.
20 milljón
króna högg
Don Pooley frá Bandaríkjunum vann sér
inn góðan skilding um helgina á miklu golf-
móti. Pooley vann það einstæða afrek að fara
holu í höggi á 17. braut golfvallar í Orlando
um helgina síðustu og fyrir það fékk hann
milljón dollara í verðlaun, um 40 milljónir
króna. Pooley fær þó ekki alla „summuna"
því helmingurinn rennur til Amold Palmer
bamasjúkrahússins. Pooley hafði þó tuttugu
milljónir króna upp úr krafsinu. Pooley þessi
sló draumahöggið á Bay Hill Classic golf-
mótinu. Payne Stewart sigraði á mótinu og
lék 72 holumar á 2264 höggum. David Frost
varð annar á 267 höggum og Dan Pohl þriðji
á 275 höggum. Stewart fékk um 4 milljónir
króna fyrir sigurinn. Á myndinni sést Don
Pooley með golfkúluna sem rúllaði beint í
holuna á 17. brautinni. Símamynd Reuter
• Jón Birgir Gunnarsson, sem hér er í miðj-
unni, sigraði á billiardmóti i Kópavogi um
helgina. Gunnar Öm Hreiðarsson (t.v.) varð
i 2. sæti og Jón Thorarensen (t.h.) varð þriðji.
Góður sigur
hjá Jón Biigi
Nú um helgina fór fram snooker mót hjá
„Billiardborgurum" í Kópavogi en það er fé-
lag í tengslum við Billiardborg í Kópavogi.
Mót þetta gaf stig til keppni um nafnbótina
borgarmeistari 1987 hjá Billiardborgurum en
þá nafiibót fær sá er hlýtur flest stig út iúr
mótum 1987.
Nú um helgina sigraði bráðefriilegur snook-
erleikmaður, Jón Birgir Gunnarsson og hlaut
hann 20 stig. Umspil þurfti til að fá úrslit um
2. og 3. sæti og að lokum hafnaði Jón Thorar-
ensen í 2. sæti en Gunnar öm Hreiðarsson í
3. sæti. Næsta mót í þessari' keppni verður í
lok aprfl.
ÓskarogMagnús
hættír við
Knattspymumennimir, Óskar Óskarsson
og Magnús Magnússon, sem léku með Aftur-
eldingu og Breiðabliki í fyrra, em hættir við
að fara til Akureyrar og leika með Þór í 1.
deildinni i sumar. Ekki hefur ústæðan verið
kunngjörð. Magnús mun ætla að leika áfram
með Breiðabliki en óvíst er hvað Óskar ætlar
að gera, en hann varð markakóngur í 4. deild-
^nni í fyrra. -Sl^j
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
17
íþróttir
Tottenham
og Watford
- drógust saman í bikamum
Það verður ekki af úrslitaleik milli
Tottenham og Watford í ensku bikar-
keppninni eins og margir vom að
vonast eftir. I gær var dregið í undan-
úrslit keppninnar og þá lentu þessi lið
saman. I hinum leiknum í undanúrslit-
um leika Coventry og Leeds. Leikimir
verða háðir laugardaginn 11. apríl.
Tottenham hefur sjö sinnum sigrað í
bikarkeppninni, Leeds einu sinni, Co-
ventry og Watford aldrei. Tottenham
hefur oftast sigrað í keppninni ásamt
Aston Villa. Bæði félög sjö sinnum.
• I gærkvöldi var ákveðið hvar leik-
irnir fara fram. Leikur Tottenham og
Watford verður háður á Villa Park í
Birmingham og leikur Leeds United
og Coventry fer fram á Hillsborough
í Sheffield. Það kom mjög á óvart að
þessir leikvellir skyldu verða fyrir val-
inu.
-hsím
Stjaman áfram
í bikamum
- lagði Reyni að velli, 36-24
Stjaman sigraði Reyni í Sandgerði
í gærkvöldi með 36 mörkum gegn 24.
Reynir er því úr leik í bikarkeppni
HSÍ en Stjaman mun leika í 8. liða
úrslitum.
Þótt töluverður munur hafi verið á
liðum þegar upp var staðið léku Reyn-
ismenn engu að síður vel lengst af og
mjög kröftuglega í upphafi. Voru þeir
enda hvattir dyggilega af fjölmörgum
áhorfendum. Ætlaði þakið til að
mynda af húsinu er heimamenn skor-
uðu sirkusmark, með miklum glæsi-
brag og stórmerkjum. Var ekki laust
við að færi um þá Stjömupilta er þeir
litu þessi undur andstæðinga sinna.
Reynir leikur nefnilega i annarri deild
en Stjaman í þeirri fyrstu.
En þótt Suðumesjamenn hafi brydd-
að upp á ýmsu laglegu, og jafnvel
leikið Garðbæinga grátt í einstaka til-
fellum, sagði munurinn til sín er líða
tók á viðureignina. Lokatölumar em
ólygnar og segja þær sína sögu.
Þessir leikmenn skomðu mörkin:
•Reynir: Stefán 10, Willum 5, Elvar
4, Sigurður 2, Hólmþór 2, Daníel 1.
•Stjaman: Gylfi 9, Skúli 5, Hannes
5, Einar 5, Siguijón 5, Hilmar 2, Haf-
steinn 2, Ragnar 2, Magnús 1. -JÖG
• í gærkvöldi hittust þeir Maradona og Pele við afhendingu óskarsverðlauna
íþróttanna.
Símamynd/Reuter
Maradona verður
áfram hjá Napolí
- Hugo Maradona
Miklar sögusagnir hafa verið uppi
um það að undanfömu að besti knatt-
spjmumaður heims, Diego Armando
Maradona, væri á förum frá Napolí.
Nú mun kappinn hins vegar hafa feng-
ið mjög heillandi tilboð frá liðinu ef
hann framlengir samning sinn til 1993.
Þeir hjá Napolí vilja auðvitað ólmir
halda í kappann enda er hann að verða
búinn að tryggja félaginu sinn fyrsta
meistaratitil í áraraðir. Það em engir
smáaurar sem Maradona fær en ekki
hefur verið gefið upp hver upphæðin
er nákvæmlega.
leikur með Napolí
„Eitt af skilyrðum mínum fyrir því
að vera áfram hjá Napolí er að liðið
geri samning við Hugo bróður minn.
Og nú lítur út fyrir að við bræðumir
leikum saman hjá Napólí á næsta
keppnistímabili. Ég er mjög ánægður
með það,“ sagði Maradona í viðtali
við Gazzetta Dello Sport um helgina.
Maradona hefur verið orðaður við
mörg lið að undanfömu, meðal annars
vegna þess hve slæma umfjöllun
einkalíf hans hefur fengið í ítölskum
fjölmiðlum.
-SMJ
Mazda 323 1300 árg. '82,
53.000, grænsans. Verð 240.000.
Toyota Hi Ace bensín árg. '84, ekinn
72.000, hvítur. Verð 500.000.
Ford Granada árg. '80, ekinn 83.000,
hvitur. Verð 350.000.
Toyota Hi-Lux yfirbyggður árg. '82,
disil, ekinn 58.000, grár. Verð
660.000.
Toyota Carina DX árg. '83, ekinn
45.000, blásans. Verð 350.000.
Ford Bronco árg. 78, ekinn 96.000,
grár. Verð 480.000. Skipti á ódýr-
ari/skuldabréf.
Toyota Carina liftback árg. '86, ek-
inn 8.000, blásans. Verð 530.000.
Mazda 929 LTD árg. ’85, ekinn
13.000, grásans, bill með öllu. Verð
570.000.
MMC Colt árg. ’83, ekinn 43.000,
beige. Verð 250.000.
Toyota Corolla Twin Cam árg. ’85.
Verð 495.000.
Toyota Hi-Lux pickup árg. '84. Verð
650.000.
Toyota Hi-Lux pickup árg. '80 Verð
330.000.
Toyota Cressida árg. ’80, sjálfsk.
Verð 220.000.
Toyota Corolla station árg. ’81. Verð
195.000.
Toyota Tercel árg. ’81. Verð
215.000.
Toyota Tercel árg. ’81, sjálfsk. Verð
220.000.
Toyota Tercel árg. ’80. Verð
180.000.
Mazda 626 árg. ’82, 2000. Verð
250.000.
Mazda 626 árg. 79. Verð 150.000.
Nissan Sunny árg. '84, coupé. Verð
320.000.
Peugeot 305 árg. ’82. Verð 260.000.
Volvo 244 GL árg. ’82, ekinn 74.000,
blásans. Verð 400.000.
Toyota Tercel árg. '83, ekinn 73.000,
gullsans. Verð 280.000.
Toyota Cressida STW árg. '82, ek-
inn 77.000, blár. Verð 350.000.
Mazda 626 árg. ’84 GLX, sjáltsk.,
ekinn 37.000, grár. Verð 480.000.
Toyota Camry DX, 5 gíra, árg. ’85,
“kinn 48.000, rauður. Verð 450.000.
Toyota Cressida GLI árg. '83, 6 cyl.,
sjálfskiptur, ekinn 77.000, brúnn.
Verð 450.000.
M. Benz 230E, 5 gira, árg. ’84, ekinn
44.000, grár. Verð 1 miiljón (ABS-
bremsur, sóllúga, centrallæsingar,
álfelgur.)
Toyota Carina station árg. '83, ekinn
50.000, Ijósblár. Verð 350.000.
MMC Sapporo 1600 GLX árg. '82,
ekinn 71.000, rauður. Verð 290.000.
MMC Galant árg. '82, ekinn 66.000,
hvitur. Verð 270.000.
Toyota Land Cruiser li árg. ’85, dís-
il, ekinn 55.000, brúnsans. Verö
760.000.
Toyota Land Cruiser STW árg. ’86,
ekinn 9.000, grásans. Verð
1.250.000.
Toyota Camry GL liftback árg. '83,
ekinn 44.000, hvítur. Verð 430.000.
Suzuki Alto árg. '83, ekinn 23.000,
rauður. Verð 210.000.
Toyota Corolla liftback árg. '84, ek-
inn 37.000, gullsans, sjálfskiptur.
Verð 380.000.
Toyota Tercel 4x4 árg. ’83-’87. Verð
irá 390.000-595.000.
Toyota Camry GL árg. ’83, ekinn
41.000, rauður. Verð 390.000.
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18.
Höfum ýmsar tegundir bifreiöa á söluskrá
1
á S<eTFAf£
,is
JI
HA6CMP
----'fé)
& /V\/KXA&£ACiT
V
m
BÍLASALAN
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SlMI (91) 687120