Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1987, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 1987.
Sviðsljós
Læknissonurinn
úr Svartaskógi
undirbýr sig fyrir Hollywood
Sascha Hehn heitir sá sem lék son
Dr. Brinkmanns í þýsku sjónvarps-
þáttaröðinni um Sjúkrahúsið í
Svartaskógi sem sýnd var nýlega í
sjónvarpinu.
Hann þykir kynþokkafullur í meira
lagi og hefur nú verið fenginn til að
leika á móti Farrah Fawcett í kvik-
mynd sem tekin verður upp í
Hollywood. Sascha leikur þar tennis-
stjömu og er sagður passa flott í
hlutverkið þar sem hann er íþrótta-
mannslega vaxinn og mjög góður í
tennis.
Hann lætur það þó ekki gott heita
heldur æfir tennis af kappi, stundar
líkamsrækt og enskunám því hann
er ákveðinn í því að taka Hollywood
með trompi.
Daðrað í Svartaskógi: Sascha Hehn og mótteikarinn, Anja Kruse.
Læknissonurinn úr þáttunum Sjúkrahúsinu í Svartaskógi undirbýr af kappi
för sína til Hollywood.
Kaffi og kökur en eigi rús og reykur.
Café reyklausar endur
- Nei, elsku besti væni minn, við reykjum ekki hér, segir hin franska Catherine við viðskiptavin sem geng-
ur inn í kaffihúsið hennar sem hún nefnir Tvær endur. Catherine er orðin áttatiu og sex ára gömul og
hefur hún þá sérstöðu að reka eina reyklausa kaffihúsið í París.
Helmingi minna eidsneyti án þess að það komi niður á hraöanum.
Flugvél framtíðarinnar
Meðfylgjandi Reuters-mynd sýnir nýja gerð af flugvél í sínu fyrsta reynsluflugi. Samkvæmt tíma-
ritinu Popular Science þá er einkennandi fyrir þessa nýju gerð að gamla skrúfan er aftur tekin
í notkun ásamt því að tveir venjulegir þotuhreyflar eru hafðir með. Flugvélin notar helmingi
minna eldsneyti en flýgur samt sem áður á sama hraða og þoturnar sem fara um háloftin.
Tom Hulce kynntist frægðinni allsnarlega eftir leik sinn í myndinni Amadeus
en sviösljósið hefur látið á sér standa siðan.
Leikari
ellegar bakari
Tom Hulce, sá sem lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Amadeus hér um árið,
sem fékk mjög góðar viðtökur, er hræddur um að hann hafi nú þegar náð
hápunktinum á ferh sínum sem leikari. Hann er þó ekki búinn að leggja upp
laupana og hefur nú tekið til við sönginn og gefið út plötu. Söngurinn er
samt eingöngu sem áhugamál hjá honum en það er leikhstin sem á hug hans
allan.
Það er haft eftir honum að gangi dæmið ekki upp sem leikari þá banki
hann bara upp á hjá næsta bakara og biðji um að komast í læri.