Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Síða 2
48
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
Breid
síðan
Konungsfjölskyldan á vorum dögum.
Fyrirfólk á sýningu
Domingo
sektaður
Stórsöngvarinn Placido Domingo
hefur fallist á að greiða skaðabætur
vegna þess að hann skrópaði á tón-
leikum sem hann átti að halda á
Wembley leikvanginum í Lundúnum
í jólamánuðinum.
Domingo lýsti því yfir daginn fyrir
tónleikana að hann ætlaði ekki að
mæta og gerir það brot hans síst létt-
vægara. Stórsöngvarinn hefur átt í
stappi vegna þessa máls undanfarið
en hefur nú séð að staðan er von-
laus. Hann ætlar því að greiða
skaðabætur og sleppur þá við dóms-
mál.
Engin fjölskylda í veröldinni á
jafnmargar ljósmyndir í safni sínu
og breska konungsfjölskyldan. Talið
er að í safni hennar séu um 50 þús-
und myndir, þær elstu frá því að
Viktoría drottning var og hét.
Nýverið var efht til sýningar á 240
myndum frá valdatíma Viktoríu á
síðustu öld í drottningarsalnum í
Buckinghamhöll. Þeir sem séð hafa
sýninguna segja að myndirnar vitni
um að konungsfjölskyldan sé ósköp
venjuleg fjölskylda.
Fúasprek úr
garði Presleys
Nú stendur yfir útsala á 15 sentí-
metra löngum viðarbútum úr girð-
ingunni sem umlykur Graceland sem
eitt sinn var bústaður rokkarans
Elvis Presley í Memphis. Hver bútur
úr girðingunni kostar 30 dali sem
jafngildir 1171.80 krónum á núver-
andi gengi.
Á útsölunni er einnig boðið upp á
helmingi lengri búta úr girðingunni
og fást þeir með nokkrum afslætti.
Til útsölunnar er efnt vegna þess að
óhjákvæmilegt hefur reynst að
skipta um nokkurn híuta af girðing-
unni vegna fúa. Þessar framkvæmdir
hafa leitt til þess að til hefur fallið
efniviður í um 1600 minjagripi. Ein-
hverjir hafa þó orðið til að efast um
gæði viðarins sem þarna er boðinn
til sölu.
Allar tekjur af sölu girðingarinnar
renna til rannsóknarstofnunar sem
hefur barnasjúkdóma að viðfangs-
efni.
Presley enn til sölu.
Rambo
í endurskoðun
Brugðið hefur verið á það ráð að
semja að nýju handritið að þriðju
myndinni um hinn harðskeytta
Rambo. Fyrri útgáfan að handritinu
var tilbúin áður en stórmyndin
Platoon var frumsýnd. Sú mynd ger-
ist á hetjuslóðum Rambos í Víetnam
og hefur hlotið lof fyrir raunsæi enda
útnefnd til fjölda óskarsverðlauna.
Sylvester Stallone, faðir Rambos,
vill sem minnst gera úr þessum breyt-
ingum og segir að Rambo hafi aldrei
átt verðugan keppinaut og svo sé
enn. Aðstoðarmenn Stallone hafa
hins vegar viðurkennt í votta viður-
vist að óhjákvæmilegt hafi reynst að
lappa upp á Rambo vegna þess að
með Platoon hafi ímynd Víetnam-
hermanna breyst.
Stallone segir að Rambo verði
áfram eins og hann var skapaður -
illskeyttur, fámáll og ákaflega þjóð-
hollur. Tökur á myndinni hefjast
eftir nokkrar vikur.
HiHary ver
tmdirrn sinn
Sir Edmund Hillary, sá sem fyrstur
manna kleif hæsta tind Everest, hef-
ur lýst þeirri skoðum sinni að fjallið
sé það hæsta í veröldinni þrátt fyrir
efasemdir landfræðinga um það.
Bandarískir vísindamenn hafa
undanfarið verið að búa heims-
byggðina undir að afskrifa Everest
sem hæsta tindinn því nærliggjandi
tindur, sem auðkenndur er K-2, er
talinn hærri. Við mælingarnar er
notuð nýjasta tækni þar sem gervi-
tungl koma m.a. við sögu.
Samkvæmt nýju mælingunum er
K-2 nokkrum metrum hærri en Ever-
est. Á hitt ber þó að líta að Everst
hefur ekki verið mældur með sömu
aðferð þannig að ekki verður endan-
lega úr málinu skorið fyrr en það
hefur verið gert.
Sir Edmund Hlllary.
VIKAN
HANN ER SAGÐUR 0FSALEGA LJUFUR STRAKUR
og frábærlega góður pabbi. Samt lítur hann eiginlega hálfgrallaralega út „töff og kúl" næstum eins og hann gefi
skít í allt. ímynd hans sem fríkaða rokkarans í hljómsveitinni Grafík er þó óralangt frá túlkun hans á hlutverki Danna
í leikritinu Þar sem Djöflaeyjan rísen þar er hann viðkvæmur og einrænn. Helgi hefursýnt að hann erfjöl-
hæfur listamaður og hann er alls ekki töff heldur einlægur, tilfinningaríkur og það sem meira er-ófeiminn að
viðurkenna „mjúku" hliðarnar...
Helgi Björnsson, leikari og tónlistarmaður, í Vikuviðtalinu
*
AKUREYRI - Útivera - Skemmtanir - Hvíld
Akureyri hefur breyst mikið á undanfömum árum þó svo margt af því sem áður undir-
strikaði sérstöðu bæjarins sé enn í fullu gildi.
Vikan á Akureyri
*
Listin á alls staðar heima segir myndlistarkonan Sigþrúður Pálsdóttir - Sissú -
í viðtali í Vikunni
*
Nafn Vikunnar: Ágústa Þorkelsdóttir frá Refstað
Þótt sólin fari. Smásaga eftir Magnús Einarsson
Ljúffengur unghænuréttur í Viku-eldhúsinu
Litla hryllingsbúöin í kvikmyndaþættinum
Skíðaferðir
Vikan - ný og fersk í hvem viku