Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987. 55 oftast óbeint frekar en beint, var að allir í Kolombíu nytu góðs af kókaín- sölunni. Kom þetta fram bæði á vegum flokksins og í málgagni Lehd- er. Telja má að þessi áróður hafi meðal annars leitt til þess að fjögur ár liðu án þess að ákvæðum fram- salssamningsins væri beitt. Framtak nýja dómsmálaráð- herrans Árið 1983 var skipaður nýr dóms- málaráðherra, Rodrigo Lara Bonilla. Hann fyrirskipaði hertar aðgerðir gegn eiturlyfjasölunum, þar á meðal handtökur. I apríl 1984, nokkru eftir að kólombískir og bandarískir lög- reglumenn gerðu árás á kókaín- verksmiðju í frumskóginum og náðu um þrettán smálestum af hreinu kókaíni, sem metið var á um fjörutíu og' átta milljarða íslenskra króna, var Lará skotinn til bana af manni á mótorhjóli. Ráðherrann var þá á leið heim til sín að kvöldlagi. I þetta sinn brást almenningur við með því að sýna reiði sína. Betanco- ur forseti notfærði sér þessa reiði almennings til þess að þoða „stríð án vopnahlés" á hendur barónunum og undirritaði framsalstilskipun. Á henni stóð nafn Lehders. Það liðu þó nær þrjú ár þar til hann var hand- tekinn og sendur til Bandaríkjanna. Árið 1985, árið eftir morðið á Lada, undirritaði Betancour og nýskipaður dómsmálaráðherra, Enrique Parejo, framsalstilskipun sem leiddi til þess að tólf Kólombíumenn og einn Þjóð- verji voru sendir til Bandaríkjanna. Samtímis voru þrír Bandaríkjamenn og einn Kólombíumaður framseldir til Kólombíu. Og hæstiréttur beygði sig 14. desember í fyrra kvað hæstirétt- Fabian Ochoa. ur Kólombíu upp þann úrskurð að framsalssamningurinn við Banda- ríkin væri ólýðræðislegur og tækni- lega gallaður. Var hann þar með felldur úr gildi en Barco forseti lét gilda hann á ný. Þremur dögum síðar var Guillermo Cano, ritstjóri og út- gefandi, skotinn til bana. Það var svo tilræðið við Parejo, sendiherra í Ungverjalandi, sem varð til þess að yfirvöld ákváðu að hérða baráttuna gegn samtökunum. Hún náði svo nýju hámarki með handtöku Lehders. Völd barónanna þó nær óskert Þrátt fyrir Lehdermálið eru menn þó sammála um að völd kókaín- barónanna séu að mestu óskert. Dómarar þora enn ekki að beita sér og lifa í ótta hafi þeir ekki gengið samtökunum á hönd og sama er að segja um blaðamenn. „I fyrsta sinn á ævinni ek ég um í skotheldu vesti,“ segir Hernando Santos, útgefandi E1 Tiempo, stærsta dagblaðs í Kólombíu. „Ég geri mér þó grein fyrir að slíkar varúðarráð- stafanir eru ekki til mikils.“ Það sem mestar vonir eru bundnar við að gefi árangur í baráttunni við samtökin er aukið fylgi meðal al- mennings við hugmyndina um að reyna að skerða völd barónanna og koma á eðlilegu réttarfari á ný. Þeim fer fjölgandi sem eru þeirrar skoðun- ar að eiturlyfjasamtökin hafi náð undirtökunum í þjóðfélaginu og sé nú svo komið að landið sé í gíslingu hjá þeim. Þá beinast augu margra að Bandaríkjunum þvi það er fyrst og fremst eftirspurnin þar sem hefur gert „fjölskyldunum" kleift að safna jafnótrúlegum auði og raun ber vitni. Jafnframt gerir þetta fólk kröfur til Bandaríkjanna um að þau leggi meira fé fram og mannafla til þess að vinna á samtökunum. Hafa þvi ýmsir hom í síðu Reagans forseta því stjórn hans skerti nýverið fjár- framlög til baráttunnar gegn eitur- lyfjafarganinu. Hvert er hlutverk Bandaríkj- anna? Ýmsir valdamanna í Kólombíu og margir menntamenn taka núorðið með varúð yfirlýsingunum um að það séu kókaínbarónarnir einir sem þeri ábyrgð á því að verið sé að „eitra“ fyrir Bandaríkjamönnum með fram- leiðslu, smygli og sölu kókaíns sem kemur frá Kólombíu. Telur þetta fólk að Bandaríkjamenn verði að grípa til nýrra og haldbetri ráða til þess að sigrast á vandanum heima fyrir. Augljóst er að þeir sem þessu halda Jorge Louis Ochoa. fram hafa mikið til síns máls en á meðan ekki næst meiri árangur í Kólombíu og Bandaríkjunum verður- haldið áfram að berjast um auð og völd í Kólombíu. Sú barátta á vafa- laust eftir að krefjast lífa fleiri kólombískra stjómmálamanna, lög- gæslumanna og blaðamanna og sé litið til Bandaríkjanna er augljóst hver áhrif eiturlyfjaneyslan hefur þar í landi. Þau ná ekki aðeins til þeirra sem ánetjast kókaíni heldur hafa þau náð til fólks í þjónustu jafn- gamals og virðulegs fyrirtækis og Pan Americanflugfélagsins eins og fram kom fyrir nokkrum dögum er uppvíst varð að hópur fyrrverandi og núverandi starfsmanna þess og tollvarða á Kennedyflugvelli hafði um árabil staðið að stórfelldu smygli á kókaíni til landsins. Þýð. ÁSG. Juan David Ochoa. Carlos Rivar Lehder (fyrir miðju í tvílitri peysu) skömmu eftir handtökuna. UPP MEÐ SAUMAVÉLINA f tilefni af saumadögum 23,-31. mars bjóðum við 10% afslótt af öllum vörum í verslunum okkar. Einnig býðst viðskiptavinum SNÍÐAAÐSTOÐ í verslun okkar Þarabakka 3 í Mjóddinni. Þar verður leiðbeint um snið og sníðar eftir kl.3 daglega 23.-31.mars. Notfœrið ykkur 10% afsláttinn saumadagana og kaupið sumar- efnin nýkomnu. Mjög mikið úrval bœði í fatadeild og gardínu- og heimilisdeild. búðimar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.