Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987. 67 Fisher hafði áður orðið fyrir því að vera rændur og því hafði hann gert vissar varúðarráðstafanir. Hann lét þó í fyrstu ekki á neinu bera, opnaði kassann og sagði Horst að taka það sem í honum var. Horst brá hins vegar mikið er hann sá að í peningakassanum voru aðeins 250 frankar. Hann spurði hvað orðið hefði um alla hina peningana því hann þóttist viss um að selt hefði verið fyrir meira um daginn. Þá sagði Fisher honum að nokkru áður hefði aðstoðarstúlka hans farið með allt sem þá hefði verið komið í kassann inn i bæ til að leggja það í nætur- hólf bankans. t Horst Grindle trylltist Um stund horfði Horst á Carl Fis- her en svo trylltist hann, skar hann á háls og skildi hann eftir deyjandi á gólfinu. Hann gaf sér þó tíma til að stinga 250 frönkunum í vasann áður en hann hljóp á dyr. Á nær Gosbrunnurinn í Riquewihr. Sérstæð sakamál að sjá á bak „jólagjöfinni" þá fannst honum þó rétt að fara á fund lögregl- unnar og segja henni frá því að hann hefði fundið hníf af svipaðri gerð og talið var að beitt hefði verið gegn Carl Fisher og leit stóð nú yfir að. Leitað að fingraförum Strax eftir að Peter hafði gefið sig fram var tekið að leita að fingraför- um á hnífnum og þótt hann hefði legið í vatni, Peter hefði haft hann með höndum dögum saman og félag- ar hans hefðu handfjatlað hann fundust samt á honum fingraför Horst Grindle. Var nú tekin fram ljósmynd af Horst en 'síðan gerði lögrglan boð fyrir aðstoðarstúlkuna í bensínstöð- inni, Suzy Farben. Gat hún staðfest að maðurinn á myndinni væri sá sem hún hafði séð standa yfir Carl Fisher deyjandi og stinga um leið á sig pen- ingum úr peningakassa hensínstöðv- arinnar. Carl Fisher. Suzy Farben. sama augnabliki og Horst var að því bar að aðstoðarstúlku Fishers, Suzy Farben, og gafst henni tækifæri til að virða Horst fyrir sér. Sá hún þeg- ar hann setti peningana í vasann. Á meðan Suzy hringdi á lögregluna stal Horst bíl í nágrenninu og ók til Riquewihr. Hann kom til þessa gamla bæjar, sem er frá miðöldum, um miðnæturleytið. Þar kastaði hann morðvopninu í brunninn á að- altorginu. Hann vonaði að hann fyndist ekki. Einkennileg tilviljun Sennilega hefði Horst orðið að ósk sinni - að minnsta kosti fram til vors - hefði ekki verið á ferðinni í bænum ungur maður sem var að reyna að afla fjár til þess að kaupa veiðihníf- inn sem hann langaði svo mjög í í jólagjöf. Það var Peter Schmidt. Hann var með sterkan segul í bandi og gekk nú frá gosbrunni til gos- brunns í þeirri von að geta náð í smápeninga sem ferðamenn kasta í þá Á jóladagsmorgun kom hann að gosbrunninum á aðaltorginu. Þá hafði honum þegar tekist að „veiða“ upp úr gosbrunnunum um 75 franka en þegar hann lét segulinn síga í þennan brunn fann hann að eitthvað óvenjulega þungt festist í honum. Það gat ekki verið peningur. Peter dró segulinn varlega upp. Er hann kom upp úr vatninu sá hann að fast- ur við hann var stór veiðihnífur. Það var sá sami sem Horst Grindle hafði notað til þess að myrða Carl Fisher en það vissi Peter að sjálfsögðu ekk- ert um. Peter sá nú ekki ástæðu til þess að halda lengur áfram að ganga um í kuldanum til þess að „veiða“ pen- inga úr gosbrunnum. Hann var kominn með i hendur jólagjöfma sem hann hafði óskað sér og lagt svo mikið á sig til að eignast. Þessi níu ára gamli og munaðar- lausi drengur hélt nú aftur til Colmar. Þangað kom hann svo snemma á jóladag eftir að hafa geng- ið þessa átta kílómetra löngu leið. Sýndi félögum sinum hnífinn Er jólahátíðin var liðin hjá fór Peter út með hnífinn til þess að sýna félögum sínum hann. Þeim fannst mikið til hans koma eins og honum en svo leið ekki á löngu þar til Peter heyrði um morðið á Carl Fisher. Áf einhverjum ástæðum fékk hann grun um að hnífurinn, sem hann hafði fundið á jóladagsmorgun í gos- brunninum í aðaltorginu í Riqu- ewihr, kynni að tengjast glæpnum. Þótt hann vildi í rauninni ekki þurfa Leitin hefst Þótti nú ljóst að það hefði verið Horst Grindle sem stal bílnum á að- fangadag skammt frá bensínstöðinni. Er slóðin hafði verið rakin um Riqu- ewihr tókst að finna hvert Horst hafði farið og ekki leið á löngu þar til hann hafði verið handtekinn. Yfirheyrslan yfir honum stóð ekki íengi. Hann játaði von bráðar á sig morðið og ránið og þótt enn hafi ekki verið kveðinn upp endanlegur dómur í máli hans þykir ljóst að hann muni verða mjög þungur. Síðbúin jólagjöf Horst Grindle brást sjálfum sér og öðrum nýfrjáls á jólunum og þykir sumum hann eiga skilið allt að lífs- tíðarfangelsi af því hann sé óforbetr- anlegur. Fátæki munaðarleysinginn Peter Scmidt, sem vildi heldur missa hníf- inn sinn en hjálpa ekki lögreglunni við að finna manninn sem myrt hafði Carl Fisher á aðfangadag, fékk óvænta gjöf í staðinn fyrir hann. Lögreglan var honum svo þakklát fyrir að hafa lagt henni í hendur sönnunargagnið í málinu að hún hélt veislu fyrir hann og þegar hún stóð sem hæst fékk hann að gjöf spánnýtt og fallegt reiðhjól. jll FÉLAGSRÁÐGJAFAR Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar óskar eftir félags- ráðgjafa til starfa, um heilsdagsstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til 10. apríl 1987. Upplýsingar um stöðuna veitir félagsmálastjóri Keflavíkurbæjar að Hafnargötu 32, 3. hæð, og í síma 92-1555. Félagsmálastjóri. ÍBR KRR REYKJAVÍKURMÚT MEISTARAFLOKKUR Sunnudag kl. 20.30. KR - LEIKNIR Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL rm cwx*; Atvinna Laus er til umsóknar staða bæjarritara hjá Ólafsfjarðar- kaupstaó. Nánari upplýsingar gefa form. bæjarráðs, Óskar Þór Sigurbjörnsson, í síma 62134, og bæjarstjóri, í síma 62214. Frestur til að skila inn umsóknum á bæjarskrifstofuna í Ólafsfirði rennur út 15/4 1987. AÐALFUNDUR IÐJU Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks verður haldinn á Hótel Esju, 2. hæð, fimmtudaginn 2. apríl 1987 kl. 5 síðdegis. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breyting á reglugerð orlofssjóðs. 3. Breyting á reglugerð vinnudeilusjóðs. 4. Önnur mál. Kaffiveitingar. Reikningar félagsins fyrir árið 1986 liggja frammi á skrifstofu Iðju, Skólavörðustíg 16. Stjórn Iðju. Ætlarðu að aðeins kr- 390.- þvottur og þurrkun ■f.’SS mea hrnu ni^g|g||L Klöpp - Simi 20370 V/Umferðarmiðstöðina - Sími 13380 Höfðabón Höfðatúni 4 - Sími 27772

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.