Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987. 65 DV Bílar Nýlt dekk sem hægt er að aka spmngnu 400 kílómetra: Ein mesta nýjungin í hjólbörðum frá því að radialdekkin komu fram á sjónarsviðið Venjulegur hjólbarði gerir oft kraftaverk í akstri þegar hann er uppblásinn en verður næsta gagns- laus þegar loftið síast út. Því er það svo allt frá árdaga bílaaldar að hjól- barðaframleiðendur hafa leitast við að koma fram með hjólbarða sem ekki springur eða að minnsta kosti dugar til að hægt sé að ljúka öku- ferðinni. Fyrir áratug eða svo kom Dunlop fram með sína lausn á þessum vanda, dekk sem kallað var Denovo. Það var að vísu hægt að aka á því þótt það spryngi en það var þungt, dýrt, með felgu sem var óvenjuleg og var langt frá því í sama gæðaflokki hvað varðaði akturseiginleika miðað við venjulega hjólbarða. Bílaframleið- endur sneru baki við Denovo og keppinautar Dunlop sýndu þessu framtaki þeirra lítinn áhuga. Þar með voru dagar Denovo taldir. Umsjón: Jóhannes Reykdal Fyrir þremur árum kynnti Contin- ental, stærsti hjólbarðaframleiðand- inn í Vestur-Þýskalandi, nýtt framlag í þessari baráttu. Þetta framlag sitt kölluðu þeir ContiTyre- System eða CTS. Þeir hjá Continent- al töldu að venjulegi hjólbarðinn væri kominn á enda þróunarferils síns, sérstaklega ef aka þyrfti á hon- um eftir að það væri sprungið. CTS er nánast ný hugsun í hönnun hjólbarða og eins á hönnun felgunn- ar sjálfrar. Að vísu er hjólbarðinn sjálfiir framleiddur á sama hátt og venjuleg dekk, úr gúmmíi, styrktur með þráðum og stálböndum. Galdurinn á bak við þetta nýja dekk er að hliðar þess eru úr sérstak- iega mjúku gúmmíi og liggja utan á felgunni. Ef loftið fer síðan úr dekk- inu leggjast hliðamar út og felgan sest á slitflöt hjólbarðans. Hliðamar fallá út til hliðar svo þær étast ekki upp af felgunni líkt og gerist í dag ef springur á dekki. Að sjálfsögðu er dekkið kyrrt á felgunni í stað þess að venjulegt dekk losnar yfir- leitt strax af felgunni ef það springur og ekið er á því loftlausu. Continental heldur því fram að þegar CTS kemur á markað á 1988- 1989 árgerðunum þá muni það geta leyft allt að 400 kílómetra akstur eftir að það springur. Enn mikilvæg- ara er að CTS-dekkið á að vera fyllilega sambærilegt eða betra í akstri en venjulegur hjólbarði er í dag ef passað er upp á að hafa hæfi- legan loftþrýsting í því. Þunnar, mjúkar hliðamar gera aksturinn mýkri og þægilegri. Það á að hafa betra veggrip í bleytu og á síður að fljóta í mikilli rigningu. Jafiiframt á CTS að veita minna viðnám í venjulegum akstri og þar með spara eldsneyti. Continental Venjulegt dekk (A) situr i sæti í útbrún felgunnar. Þegar það springur (B) leggst kröpp brúnin yfir hliðar þess og press- ar það að slitbananum. Núningurinn eyðileggur fljótlega dekkið sem losnar yfirleitt af felgunni og þar með er hætta á því að ökumaðurinn missi stjórn á bílnum. CTS-dekkið (C) fellur alveg að innri brún felgunnar og hliðar þess liggja utan á brún hennar. Þegar það springur (D) taka breiðir þófar á felgunni við álaginu og leggjast niður á slitflötinn sjálfan. Þar með leggst þungi bilsins áfram á slitflötinn og hliðar dekksins leggjast út til hliðar og eru úr allri hættu á að eyðileggjast vegna núnings. Þegar CTS-dekkið og önnur slik hafa tekið við ætti slfk sjón að heyra sögunni til og ökumenn þyrftu þá ekkl að skipta um dekk við erfiðar og hættulegar aðstæður. DV-mynd KAE heldur því fram að hægt verði að nota CTS-dekkin á öllum gerðum bíla án þess að breyta fjöðrun þeirra. Það verður dýrara í framleiðslu en dekk em í dag en fjögur CTS-dekk ásamt felgum munu þó kosta minna en fimm dekk og felgur kosta i dag. Endingin á að minnsta kosti að vera svipuð og á dekkjum í dag. Fyrir nokkru voru CTS-dekkin reynd á nokkrum mismunandi bíla- gerðum, nánar tiltekið VW Polo, BMW 325i og Mercedes Benz 560SEC. Alls voru níu bílar í þessari tilraun. Einn af hverri gerð var bú- inn venjulegum dekkjum, einn á fullpumpuðum CTS- dekkjum og sá þriðji á CTS, en með ýmist einu dekki að aftan eða framan vind- lausu. í akstri í kröppum beygjum á til- raunabraut varð Poloinn mun betri i akstri. Allt varðandi aksturinn varð betra, þægindin í akstri, minni hávaði frá dekkjunum, svörun í stýri og veggrip í beygjum. Með annað framdekkið vindlaust þurfti að beita stýrinu mun meira til að ná bílnum í gegnum beygjumar. Með annað afturdekkið vindlaust varð bíllinn óstöðugur í akstri, jafnt á beinum vegi og í beygjum, en þó hægt að aka áfram. Sömu sögu var að segja af til- raunaakstri á BMW og Mercedes. Aksturseiginleikar þeirra bötnuðu til muna á CTS, bæði í venjulegum akstri og í beygjum. Með annað-,-. hvort fram- eða afturdekk vindlaust var enn hægt að aka bílnum án vandræða og hægt að taka beygjur á hraða sem enginn óvitlaus maður myndi reyna á bíl með venjulegt vindlaust dekk. Þar liggur einmitt hundurinn graf- inn í þessu máli. Dekk sem hannað er til að nota fullt af lofti getur ekki unnið jafhvel vindlaust. Eitthvað verður a(S gefa eftir þegar vindurinn er úr dekkinu. Það mikilvægasta er- að dekkið er enn öruggt þótt það springi og hefur alla kosti venjulegs dekks uppblásið. Allt þetta getur CTS og það er ein- mitt það sem gerir dekkið að bylt- ingu í hönnun dekkja. Vissulega er_ það að sumu leyti ekki svo mikil framfór ffá Denovo-dekki Dunlop en með CTS verður strax vart við ef það verður vindlaust þvi það finnst í viðbrögðum bílsins og eins í aukn- um hávaða þegar teknar eru beygj- ur. Þetta gerir það að verkum að öku- maðurinn verður var við að vindur er farinn úr einu dekki en getur jafn- framt haldið ferðinni áffam á allt að 90 kflómetra hraða. Þar með er sú martröð að þurfa að skipta á dekki á hraðbraut eða í dimmum skuggasundum á bak og burt. 1 erlendum blöðum er CTS-dekkið talið vera ein mesta byltingin ffá þvi að radialdekkin ruddu eldri gerðun- um á burt á sínum tíma. Það er búist við að þetta nýja dekk muni fara að sjást á venjulegum bílum eftir tvö ár, fyrst á Volkswagen, Mercedes Benz og Ford, og jafnframt talið að aðrir hjólbarðaframleiðendur muni hefja ffamleiðslu á því með leyfi frá Continental.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.