Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Page 5
Borghildur Anna
sögu, og þá gjarnan ef þungamiðjan
er líf mikilmenna eins og Bismarcks
og Napóleons. Tvær bækur hafa
komið út um Alexandre sjálfan.
Eftir þrjátíu ára starf í hárgreiðslu,
árið 1972, komu út endurminningar
hans, skráðar af Etienne de Mont-
pezat, bróður Hinriks prins í
Danmörku, eiginmanns Margrétar
drottningar. Lífssagan í myndum -
Mon destin animé - kom svo út árið
1982.
Stærsta hársafn veraldar
„Eins og þú sérð á safninu hérna
á neðri hæðinni hef ég áhuga á öllu
sem tengist hári. Þetta er líklega eitt
besta safn skartgripa, sem unnir eru
úr hári, sem fyrirfinnst í veröldinni.
Reyndar safna ég bókstaflega öllu
sem tengist hári. Frá unga aldri
þurfti ég að spara og ef einhverjir
aurar voru aflögu fóru þeir í að
kaupa gripi af þessu tagi. Eg borðaði
frekar samlokur í öll mál og safnaði
dýrgripum úr mannshári. Þannig
varð þetta safn til.“
Krafturinn geislar af Alexandre
þegar hann talar. Hann skiptir um
ham í sífellu og virðist ganga á ein-
hverjum aukahleðslum. Þegar
honum er bent á þetta samsinnir
meistarinn samstundis:
„Ég hefði viljað verða margt annað
en hárgreiðslumaður líka - til dæmis
leikari - og er það auðvitað að sumu
leyti á stofunni. Einu sinni lék ég
sjálfan mig í kvikmynd og hafði mik-
ið gaman af.“
Skrifstofan á rue de Ponthieu er glæsileg og á veggjum hanga minjagripir frá ýmsum tímum. Þarna sést í mynd og kveðju frá Grace Kelly, Wallis Simpson,
Liz Taylor og Rainier fursta.
hjúkrunarkonu. „Það hefur senni-
lega bjargað lífi mínu,“ segir Alex-
andre í dag.
„í lok ársins 1944 voru svo harm-
leikir styrjaldarinnar í algleymingi.
Þá vann ég með andspymuhreyfing-
unni sem hélt yfir mér verndarhendi.
Konan mín kom til mín í heimsókn
og til varð sonurinn Michel sem
meðal annars hannar skartgripi fyrir
mig núna.“
Fyrstu skref til heimsfrægðar
Árið 1946 varð nafn Alexandre
fyrst verulega þekkt þegar prinsess-
an Begum Aga Khan valdi hann til
að sjá um hárgreiðslu sína fyrir brúð-
kaupið sem allur heimurinn fylgdist
með af áhuga. En samt sem áður á
hann frægðina hvað mest að þakka
hertogaynjunni af Windsor - öðru
nafni Wallis Simpson - sem tók hann
ungan með sér frá Cannes til Parísar
og síðar fór hann með henni til
Bandaríkjanna.
„í þeirri ferð kynnti Simpson mig
fyrir ungfrú Maxwell sem var mikill
blaðamaður en verulega ófríð. Og
hertogaynjan sagði við mig: Ef þú
gerir hana fagra með réttri hár-
greiðslu mun hún elska þig að eilífu.
Ungfrú Maxwell var þá þekkt í sjón-
varpi vestra. Mér tókst að gerbreyta
henni og varð frægur fyrir strax eftir
fyrstu útsendinguna. Þá vissi ég að
framtíðin var gulltryggð. Síðan hef
ég greitt mörgum heimsfrægum per-
sónum, hitti Taylor í París, Loren í
Róm og Schneider í Þýskalandi. Aílt
dásamlegar konur, hver á sinn mát-
ann. Og herrarnir hafa sótt til mín
líka, til dæmis Ustinov, og Burton
kom einnig oft á stofuna.
Greiddi Grace Kelly
Um árabil ferðaðist ég með Grace
Kelly og greiddi henni meðal annars
í síðustu myndinni hennar. Þaðan
fór hún til Mónakó og giftist Rainier
fursta og bað mig að sjá um greiðsl-
una fyrir þá athöfn. Þetta varð til
þess að ég var einkahárgreiðslu-
meistari hennar í tuttugu og sex ár.
Andrumsloftið við kvikmyndirnar
heillar Alexandre og hann hefur
meðal annars leikið sjálfan sig i
kvikmynd. Hérna er hann að fullgera
hár Alexöndru Stewart fyrir kvik-
myndina Madame Claude No 2.
Hún var ógleymanleg kona. Núna
sé ég um hár Karólínu en með henni
hef ég fylgst frá fæðingu."
Alexandre er lifandi persónuleiki
og sem svo margir fleiri af rómönsku
bergi brotnir nægir honum ekki að
tjá sig með orðunum einum - hann
talar með öllum líkamanum. Af og
til stekkur hann svo á fætur úr skrif-
borðsstólnum og hendist í kringum
borðið til að leggja meiri áherslu á
orðin.
Kyssti YSL
„Auðvitað er ég búinn að vera
lengi í faginu og kominn tími til að
gefa yngri mönnum tækifæri. Það er
bara ekki svo auðgert að hætta. Ég
greiddi sýningarstúlkunum á fyrstu
sýningu Yves Saint Laurent og hef
unnið með honum allar götur síðan,
nú síðast á vorsýningunni. Að henni
lokinni var Yves svo feginn þegar
allt var yfirstaðið að hann hrópaði
til mín:„ Gefðu mér nú stóran koss,
Alexandte!" Við föðmuðum hvor
annan og kysstum innilega enda
mörg ár liðin síðan við höfum staðið
saman í eldlínunni. En fólkið í kring-
um okkur horfði undrandi á og vissi
ekki hvaðan á það stóð veðrið."
Fyrir hátískusýningarnar, Haute
Couture í París á síðasta ári, sá
meistarinn um hárgreiðslur fyrir
Mori, Balmain, Scherrer, Patou,
Lanvin, Ungaro, Chanel, YSL, Gi-
venchy og Dior. Á Prét- á- Porter
sýningunum voru það Lagerfeld,
Tarlazzi, Valentino og margir fleiri.
Núna er hins vegar heilsan farin að
setja strik í reikinginn - hvað sem
síðar verður.
Óskarsverðlaun hártískunnar féllu
Alexandre í skaut árið 1963. Hann
er forseti Intercoiffure samtakanna
og honum hafa verið veittar ótal orð-
ur og viðurkenningar fyrir snilli sína
og er meðal annars riddari af St.
Charles-reglunni í Mónakó. Alex-
andre vinnur einnig með Intercoiff-
ure-hópnum í París og leggur tvisvar
á ári línuna fyrir samtökin.
Bróðir prinsins skrifar
Alexandre segist hafa mörg áhuga-
mál og stunda þau þegar tími gefst
frá vinnu. Hann les mikið, einkum
Sjáumst á íslandi
„Við sjáumst kannski á íslandi
næst,“ segir hann svo hinn hressasti
og tekur enn eina hringferð frá skrif-
borðinu - fórnandi höndum. Allir
andlitsvöðvar eru nýttir til hins ýtr-
asta þegar leggja þarf auknar
áherslur á setningarnar. „Hvemig
land er þetta ísland eiginlega? Er
loftslagið óskaplega kalt? Hver eru
stærðarhlutföllin miðað við Frakk-
land og hversu margir búa þarna?“
Það er ekki um annað að ræða en
setja í gang hefðbundna lýsingu á
landi og þjóð, miðnætursól, eldgos-
um og snjóþunga. Meistarinn lyftist
allur af ánægju og segist hlakka til
að sjá þetta með eigin augum.
„Það væri gaman að koma til Is-
lands einhvern tímann - yrði eins
konar frí fyrir mig. Ég ferðast mikið
vegna starfsins og hef yfirleitt gaman
af. Ég vil lifa skapandi lífi og ekki
of reglubundnu. Það er nauðsynlegt
að krydda tilveruna með mátulegri
spennu."
Innan tiskuheimsins i Parisarborg er Alexandre á heimavelli. Héma mefi
Maryll Lanvin.
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
I
rnidre
tunglið í ljóni