Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Qupperneq 11
aftur. Þetta var „Rock and Roll“ með Led Zeppelin og það var Jimmy Page sem töfraði hin undarlegu hljóð úr gítarnum. „Breska innrásin“ Aðrir tónlistarmenn hafa svipaða sögu að segja. Margir hafa þó lengur verið að fást við rokktónlistina. Einn þeirra er Boris Grebenschikov sem kynntist tónlist Bítlanna þegar þeir voru og hétu. Þau kynni breyttu lífi hans. í Sovétríkjunum er talað um „bresku innrásina" á sjöunda ára- tugnum. Þá flæddi breska rokkið yfir landið. Það kom með erlendum ferðamönnum og hljómaði í erlend- um útvarpsstöðvum og í sovéskum áróðursmyndum sem útmáluðu úr- kynjun Vesturlanda. Þar mátti jafnan heyra lög sem tekin voru sem dæmi um siðspillingu ungmenna í vestrinu. „Við sátum fyrir framan sjónvarpið og tókum þessi lög upp á segulband," segir Boris. Boris Grebenschikov segir sögu af tónleikum sem haldnir voru í Len- ingrad á síðasta vori. Hann bauð erlendum gestum á samkomuna og þeir þurftu að fara í gegnum þrefald- an lögregluvörð. Þeir sluppu vand- ræðalaust framhjá tveim þeim fyrstu en við þriðju skoðun var Boris beð- inn að gera grein fyrir sér. Hann gerði það og benti jafnframt á að hann ætti að leika á tónleikunum með hljómsveit sinni. Lögreglumað- urinn leit í minnisbók sína, fann nafn rokkstjörnunnar og hleypti honum og gestunum í gegn. Vafasöm viðurkenning Boris segir að svona atvik séu dæmigerð fyrir lif rokkstjörnu í Sov- étríkjunum - frægðin leiði aðeins til nákvæmara eftirlits. En tímamir eru að breytast og Boris, sem starfað hefur neðanjarðar með hljómsveit sinni, er lentur í þeirri undarlegu stöðu að hafa öðlast opinbera viður- kenningu. Hin opinbera plötuútgáfa hefur t.d. gefið út lögin af tveim síð- ustu plötunum sem báðar voru ólöglegar. Undanfarin fimmtán ár hefur Boris verið einn þekktasti rokktónlistar- maðurinn í Leningrad. Hann hóf að dreifa upptökum af tónlist sinni fyrir meira en áratug og varð þekktur meðal fjölmargra sem eignuðust eft- irtökur af þessum upptökum. Yfirvöld brugðust árið 1981 við þessari neðanjarðarstarfsemi með því að opna klúbb þar sem rokktón- list mátti heyrast. „Þetta var tilraun til að ná tökum á þessari tegund tón- listar,“ segir Boris. Rekstur klúbbs- ins varð til þess að fjölmargir tónlistarmenn settust að í Leningrad þar sem helst var von um að hægt væri að starfa. „Yfirvöld áttu ekki von á að þessi tónlist hefði sterk áhrif,“ segir Boris, „og brugðust því ekki við vinsældum hennar. Ráðamenn virðast margir hverjir ekki vita að fólk getur hrifist af fleiru en áróðrinum frá þeim. Því vissu þeir ekki við hverju átti að bregðast." Saigon Helsti samkomustaður andófs- manna í Leningrad er á kaffihúsi sem gengur undir nafhinu Saigon. Opin- berlega heitir staðurinn Veitinga- húsið Moskva en nafnið Saigon festist við staðinn löngu fyrir bylt- inguna árið 1917. Á sjötta áratugnum var hann helsti griðastaður jassá- hugamanna og á sjöunda áratugnum tók fyrsta kynslóð rokksins að sækja staðinn. Það var á sama tíma og Víetnamstríðið litaði rokkið á Vest- urlöndum en nafnið Saigon var þá þegar fast í sessi. Á Saigon má frétta um allt sem er að gerast. Þar voru ólöglegir tónleik- ar auglýstir. Slíkum auglýsingum fer þó fækkandi því opinberar aulýsing- ar eru nú löglegar. Hins vegar mátti enn sjá merki um óánægjuna, sem sýður undir, daginn eftir minningar- tónleikana um John Lennon - þá sem lögreglan stöðvaði. Á vegg kaffihúss- ins var krotað: Elskum þig, John. Lifðu áfram. Inni í kaffihúsinu mátti einnig sjá að nokkur tíðindi höfðu orðið. Fasta- gestirnir voru þar ekki og í dyrunum stóðu lögregluþjónar og kröfðust skilríkja af þeim fáu sem þorðu inn. Allir þeir sem höfðu ástæðu til að óttast um sinn hag héldu sig fjarri. Seint á síðasta áratug var Saigon eitt sinn lokað í nokkrar vikur. Þeg- ar staðurinn var opnaður á ný var allt óbreytt, utan hvað einn veggur var orðinn að spegli. Hvað er á bak við hann veit enginn. Vertinn á Sai- gon þarf að þjóna tveim herrum og spyr engra spuminga. Snarað/GK Zvuki Mu, ein litríkasta hljómsveitin í Moskvu 57 stfumqvelúja!] Við styðjum saumadagana 23.-31. mars og bjóðum 5% aukaafslátt af öllum saumavélum þá daga. Verið velkomin. Gunnar Ásgeirsson hf. Pfaff hf. Suðurlandsbraut 16 Borgartúni 20 Sdmaddgar23.Sl.Mts i mmmmmmmm. r Atari 1040 STF Örtölva: Motorola 68000 1024K minni (RAM). Innbyggt 720K diskdrif. ' Skjár s/h 640x400 punktar. Ásamt: mús, ritvinnslu, Basic, Logo og teikniforriti. Verð kr. 44.000 stgr. •Atari 520 STFM Örtölva: Motorola 68000 512K minni (RAM). Innbyggt 360K diskdrif. Sjónvarpstengi. Ásamt: mús, ritvinnslu, Basic, Logo og teikniforriti. Verð kr. 24.900 stgr. HUGTAK HF., DNG, Vestmannabraul 25, Vestmannaey|um. S. 2963. Óseyri 4, Akureyri. S. 26842. Bókaskemman, Stekkjarholti 8, Akranesi. S. 2840 MARCO HF., umboös- og heiidverslun, Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavik. Simar 687970 & 687971.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.