Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Page 16
62 LAUGARDAGUR 28. MARS 1987. VERTÍÐARVINNA Enn vantar okkur nokkrar stúlkur til fiskvinnslustarfa, fæöi og húsnæði á staðnum. Upplýsingar í síma 97-81200. K.A.S.K., fiskiðjuver, Höfn, Hornafirði. St. Jösefsspítali Landakoti RÖNTGENDEILD Aðstoðarfólk óskast nú þegar. Upplýsingar í síma 19600-330 alla virka daga milli kl. 13 og 15. Reykjavík 27. mars 1987. v*‘»**<«** iiBlllalggRivfuíf” VOLVOSALURINN SKEIFUMIU115. S. 35200 Volvo 245 GLT ðrg. 1982, ekinn 82.000 km, sjálfsk., m/vökvast., 6 cyl., 155 hö., rafmrúöur, sport- felgur. Verð kr. 495.000,- Volvo 343 GLS árg. 1982. Ekinn 48.000 km. Blár metal, beinskiptur, sumar-/vetrardekk. Verð 290.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 51.000 km, sjálfsk., .-n/vökvast., blár. Verð kr. 420.000,- Volvo 245 DL árg. 1982, ekinn 66.000 km, rauður, beinsk., m/ vökvast., toppbill. Verð kr. 415.000.- Volvo 240 turbo árg. 1984, ekinn 32.000 km, silfurgrár metal, beinsk., overdrive, m/vökvast., topplúga, sumar- og vetrardekk á felgum. Verð kr. 720.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 119.000 km, silfur metal, sjálf- skiptur, m/vökvastýri. Verð kr. 390.000,- Volvo 740 GLE árg. 1985, ekinn 45.000 km, dökkgrár metal, sjálf- skiptur, m/overdrive, m/vökvast. Verð kr. 780.000,- Subaru 1800 GL station, árg. 1983, ekinn 83.000 km, rauður metal., beinsk., góð kjör. Verð kr. 370.000,- NÝIR BÍLAR í SÝNINGARSAL ★ Nýjar hugmyndir. ★ Góð kjör. ★ Úrval notaðra bíla ★ Heitt á könnunni. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00 LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00, VOLVOSALJURINN SKEIFUNNI 15, SÍMI 35200 - 35207. Merming Einar Jóhannesson, klarenetUeikari og tilvonandi Kínafari. DV-mynd GVA „Konfekt á plötu“ - segir Einar Jóhannesson „Þetta er einleiks blásaraplata, árangur af íslensku og ensku sam- starfi,“ segir Einar Jóhannesson klarinettuleikari um nýútkomna plötu sína. „Það er enskt útgáfu- fyrirtæki, Merlyn Records, sem stendur að útgáfunni. Þetta er frekar lítið íyrirtæki sem gefur út ýmsar tegundir tónlistar, þó aðal- lega klassík. Það var mjög gaman fyrir mig að vinna að þessari plötu,“ segir Einar. „Ég bjó einmitt lengi í Eng- landi. Það er gott að halda sambandinu á þennan hátt.“ Rómantísk klassík „Efni plötunnar er blandað. Á annarri hliðinni eru gömul og rót- gróin erlend verk, sérlega rómant- ísk klassík. Á hinni hliðinni eru íslensk verk eftir Jón Þórarinsson og Þorkel Sigurbjörsson. Þar eru ennfremur íslensk þjóðlög í útsetn- ingu Þorkels. Ég byrjaði að vinna að þessari plötu síðastliðið sumar. Ég var í fríi frá Sinfóníuhljómsveitinni og skaust þá út til Englands og æfði með Philip Jenkins píanóleikara. Ég fór svo út aftur í september og tók plötuna upp á þremur dögum í London." - Hver stjómaði upptökunum? „Það var Tryggvi Tryggvason, Islendingur sem hefur verið búsett- ur í Englandi frá þriggja ára aldri. Það er kannski ein af ástæðunum fyrir því að ég réðst í þetta verk- efni. Þama var ég að endumýja gömul kynni af Englandi og Tryggvi að halda sambandinu við ísland. Tryggvi er auk þess fær upptökustjóri og mjög eftirsóttur sem slíkur í Englandi." Mynd af Heklu „Ég held að efni plötunnar sé framur aðgengilegt," segir Einar. „Á henni er að finna allt litrófið í rómantískri músík. Ilmandi hæga kafla og allt upp í ástríðufulla og hraða músík.“ - Er þetta fyrsta einleiksplatan þín? „Já, þetta er í fyrsta skipti sem ég er ekki í samfloti við aðra á plötu. Þar af leiðandi er þetta dálít- ið öðruvísi, einhvem veginn miklu persónulegra. Ég er til að mynda alveg einráður í efnisvali. En ég verð jafnframt að viður- kenna að þessi frumraun sem einleikari á plötu var dálítið erfið. Tæknilega hliðin var til dæmis nokkuð sem ég hafði ekki hugsað mikið út í. Það var nokkur pressa á manni að ljúka upptökum á til- settum tíma. Þannig varð maður að vera í toppformi hvernig sem á stóð. Eins var mér ekki sama um vinnslu plötunnar eftir á þegar frá- gangur hennar var kominn í hendur annarra. Ég gerði til dæmis athugasemd við umslagið og fékk því breytt. Nú er það prýtt vatn- slitamynd af Heklu. Þetta er eftir- prentun af mynd eftir enskan málara, mynd sem er í eigu Þjóð- minjasafnsins. Vinkona mín hafði reyndar á orði að hún hefði einhvem tíma séð sömu mynd utan á konfektkassa. Það skiptir mig engu enda em kannski nokkrir sætir molar á plöt- unni,“ segir Einar og hlær. Til Kína Það eru Fálkinn og ístónn sem sjá um dreifingu plötunnar hér heima. Aðspurður sagðist Einar hafa tekið þátt í vinnslukostnaði en þyrfti að öðru leyti ekki að hafa áhyggjur af kostnaðarhlið útgáf- unnar. „Það voru ýmsir sem aðstoðuðu mig fjárhagslega. Það kom mér þægilega á óvart hvað mörg fyrirtæki voru tilbúin til að styðja við bakið á síblankri lista- gyðjunni." - Nú er platan komin út. Hvað er fram undan hjá þér? „Ég er á leiðinni í mánaðarferð til Kína ásamt þrem öðrum tónlist- armönnum. Það eru Áskell Másson, tónskáld og slagverksleik- ari, Jósef Fung, gítarleikari og tónskáld, og sænskur slagverks- leikari, Roger Carlson að nafni. Við köllum okkur Norræna kvart- ettinn. Fyrst höldum við eina tónleika í Svíþjóð og förum svo þaðan til Asíu.“ - Hvað ætlið þið að spila fyrir þar- lenda? „Á efnisskránni eru splunkuný verk eftir norræna höfunda. Við leitumst við að gefa mynd af því sem er að gerast í okkar umhverfi. Þetta er ný, skapandi samtímatón- list. Áhugi Kínverja á nútímatón- list hefur aukist mikið á síðustu árum. Þeir eru geysilega opnir fyr- ir öllum nýjungum,11 sagði Einar Jóhannesson. -ÞJV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.