Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987.
5
Fréttir
Niðurgreiðslur á ull:
Hækkaðar um 30
krénur á kílóið
- kosta ríkið um 40 mílljónir í ár
Ríkisstjómin heíur hækkað niður-
greiðslur á ull úr 76 krónum á kílóið
í 106 krónur og em ullarverksmiðjum-
ar því aftur famar að kaupa ull af
bændum. Hér er um meðaltalshækkun
að ræða því í fyrsta sinn em niður-
greiðslumar miðaðar við gæði ullar-
innar. Lægsta niðurgreiðslan er 18
krónur á kílóið fyrir lélegustu ullina
en fer upp í 156 krónur á kílóið fyrir
bestu ullina. Bændur fá að meðaltali
142 krónur fyrir kílóið.
„Við teljum þetta ekki nóg, það hefði
þurft að niðurgreiða ullarkílóið um
116 krónúr að meðaltali til þess að
dæmið gengi upp,“ sagði Kristinn
Amþórsson, framkvæmdastjóri ullar-
iðnaðarins hjá iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri, í samtali við DV.
Kristinn sagði að verð fyrir hvíta
gæðaull á erlendum mörkuðum væri
um 100 krónur fyrir kílóið en færi nið-
ur í 15 krónur á kíló á mislitri ull.
Þessar niðurgreiðslur munu kosta
ríkið um 40 milljónir króna á þessu
ári en niðurgreiðslumar gilda til ára-
móta.
-S.dór
Sigluflörðui:
■ ■I ■■
Mjolkur-
laust í
rúma viku
Jón G. Haukœan, DV, Akureyix
Mjólkurlaust hefúr verið á Si-
glufirði frá því á fimmtudag í
sfðustu viku. Úr þessu ætti að
rætast í dag þvi samkvæmt upplýs-
ingum frá vegagerðinni var orðið
fært til Siglufjarðar í morgun.
Víða er búið að moka á Norður-
landi eftir farviðrið sem geisaði
fyrr í vikunni. öxnadalsheiðin var
opnuð í morgun og fert var til
Siglufjarðar. Þá er fært austur frá
Akureyri til Vopnafjarðar.
Viðtalið
Kolbeinn Pálsson
Stunda skið-
in af kappi
- segir Kolbeinn Pálsson
„Ég kom hingað til Terru í vetur
en áður hafði ég starfað hjá Flug-
leiðum í tæp tiu ár. Þar var ég fyrst
skrifstofustjóri i Keflavík og hafði
síðan umsjón með sölunni í innan-
landsfluginu, fór þaðan í söludeild
og varð síðan sölustjóri á Islandi.
Meginverkefriin voru að gera samn-
inga og eiga samskipti við ferða-
skrifstofumar og ég hafði umsjón
með ferðatilboðum Flugleiða út úr
landinu og jafnframt yfirmaður sölu-
skrifstofa Flugleiða," sagði Kolbeinn
Pálsson, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofúnnar Terru.
„Ástæða þess að ég fór til Terru
var sú að ég hafði áhuga á að breyta
til og ég sagði það líka þegar ég var
yngri að ég myndi ekki vinna lengur
en 5 ár í sama starfi! Það má segja
að starf mitt hér hjá Terru sé svipað
því sem ég vann áður en þó er
ábyrgðin víðtækari. Hér sé ég líka
um rekstur skrifstofunnar og kemur
það til viðbótar þvi sem ég sinnti í
söludeild Flugleiða. Ég átti kost á
þessu starfi og ákvað að breyta til
og setjast hinum megin við borðið,
enda felst stór hluti starfsins í því
að semja við Flugleiðir um sætakaup
og em þeir stærsti einstaki samn-
ingsaðili okkar,“ sagði Kolbeinn.
„Varðandi önnur áhugamál þá hef
ég í gegnum tíðina tengst mjög upp-
eldis- og íþróttamálum og það hefur
mikið af tíma mínum farið í það. Ég
vann áður hjá Æskulýðsráði
Reykjavíkur í ein 6 ár og starfaði
einnig hjá körfuknattleiksdeild KR,
en hún átti hug minn allan í 20 ár.
Ég var meðal annars formaður deild-
arinnar og þjálfaði yngri flokkana.
Þá rak ég Tónabæ og vann ýmis
störf fyrir Fellahelli þannig að ég
hef unnið mikið með unglingum.
Það má kannski segja að í þessu
starfi haldi ég áfram að fylgjast með
þessu fólki og reyna að mæta breytt-
um þörfúm þess og sinni því uppeld-
ismálum í raun, þó með öðrum hætti
sé!“ sagði Kolbeinn.
„Þó ég hafi ætlað að hætta afskipt-
um af svona málum fyrir síðustu
borgarstjómarkosningar þá tók ég
að mér að sitja í íþrótta- og tóm-
stundaráði borgarinriar en auk þess
hef ég tekið að mér að vera formað-
ur Bláfjallanefndar og jafnframt
Reykjanesfólkvangs. Það starf teng-
ist einu áhugamálinu, sem er skíðin,
en það sport hef ég stundað af kappi
síðustu tíu ár. Ég hef líka ferðast
mikið um hálendi landsins og það
má segja að þegar maður ferðast í
útlöndum þá undirstrikar þaðglæsi-
leika íslenskrar náttúru. Ég er
fjölskyldumaður og ég vel mér
áhugamál samkvæmt því þannig að
þar geti fjölskyldan öll tekið þátt og
áhugamálið sé sameiginlegt öllum
fjölskyldumeðlimum," sagði Kol-
beinn. -ój
Bréfaskriftir úr borgarstjom:
Forseti óskaði
skýringa á þukli
Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjómar, hefúr ritað ritstjóra
Vinnunnar bréf þar sem hann óskar
eftir skýringum á skrifum tímaritsins
um þukl í borgarstjóm.
I grein Vinnunnar fyrir skömmu var
frá því greint að ákveðinn borgarfúll-
trúi neitaði að láta af þeim ósið að
káfa á kvenkyns borgarfulltnium þó
svo hann væri vinsamlega beðinn um
það.
Ummælin vom höfð eftir Guðrúnu
Jónsdóttur. félagsráðgjafa og fyrrum
borgarfulltrúa Kvennaframboðsins. I
samtali við DV neitaði hún að gefa
upp hver borgarfulltrúinn væri. at-
burðir þessir hefðu orðið á kjörtímabili
borgarstjómar 1982-86.
I svari Sverris Albertssonar, ritstjóra
Vinnunnar, til forseta borgarstjómar
kom fram að ummælin væm höfð eftir
Guðrúnu Jónsdóttur. Spumingunm
um við hvaða borgarfulltrúa væri átt
gæti hann hins vegar ekki svarað.
Ekki hafa farið fleiri bréf á milli
borgarstjórnar og höfuðstöðva Al-
þýðusambands íslands vegna þessa
máls. Það er ASÍ sem gefur tímaritið
' Vinnuna út.
-EIR
LAUGARDAGS-
KYNNING
AUSTAST
v/STÓRHÖFÐA
Kynning á
BW-
gæðaparketti
frá Sviss.
VESTAST
v/HRINGBRAUT
Kynnum
nýjar norskar
baðinnréttingar
frá Foss.
Falleg og vönduð vara.
Sérfræðingar á staðnum
OPIÐ
KL. 8-18
VIRKA DAGA,
KL. 10-16
LAUGARDAGA.
2 góðar
byggingarvöruverslanir,
austast og vestast í borginni.
Stórhöfða, sími 671100
Hringbraut, sími 28600.