Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987. Viðskipti Lífleg blaða- útgáfa Ómar Garöaissan, DV, Vestmaimaeyjum; Blaðið Fréttir í Vestmannaeyj- urn kemur nú út tvisvar í viku. Blaðaútgáfa í Eyjum er mjög líf- leg. TVö blöð hafa komið út vikulega undanfarin ár, Dagskrá, sem hefur komið út í 16 ár, og Fréttir sem hóf göngu sína 1964. Baeði þessi blöð hafa komið út reglulega einu sinni í viku frá því að útgáfa þeirra hófst Fyrir utan þessi blöð gefa stjóm- málaflokkamir út sín blöð en útgáfa þeirra er ekki regluleg. Auk þessara blaða hefur blaðið Bœjar- tíðindi komið út reglulega frá því í haust en þeirri útgáfu hefur verið hætt í bili. Þá má nefna íþróttablað sem gefið er út í Eyjum. Skólamir gefa út blöð og svo mætti lengi telja. Blaðið Fréttir hefur komið út á fimmtudögum frá upphafi en kem- ur nú einnig út á þriðjudögum. Að sögn Gísla Ásgeirssonar rit- sijóra er þetta gert til reynslu en viðbrögð almennings lofa góðu. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtrvggð Sparisjóðsbækur 10-11 Lb óbund. Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 10-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-19 Vb 12 mán. uppsögn 13-22 Sp.vél. 18mán. uppsögn 20.5-22 Sp Ávisanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar 4-7 Sp Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb. Vb 6 mán. uppsöqn Innlán með sérkiörum 2.5-4 Ab.Úb 10-22 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 8.5-10.5 Ab Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab Danskar krónur 9-10.25 Úb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 19-20 Lb.Úb Viðskiptavixlar(forv.)(1) 22 eöa kge Almenn skuldabréf(2) 20-21,5 Ab.Úb Viðskiptaskuldabréf (1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr) 20-21.5 Lb Útlán verðtryggð Skuldabréf Að 2.5árum 6-7 Lb Til lengri tíma 6.5-7 Ab.Bb. Lb.Sb. Úb.Vb Útlántilframleiöslu Isl krónur 16.25-21 Ib SDR 7,5-8.25 Lb Bandaríkjadalir 7,5-8 Sb.Sp Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Úb, Vb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 30 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala apríl 1643 stig Byggingavísitala 305 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi 3% 1. apríl HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 121 kr. Eimskip 200 kr. Flugleiðir 166 kr. Hampiðjan 147 kr. lönaðaröankinn 135 kr. Verslunarþankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldaþréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verðtryggö og óverð- tryggð lán, nema I Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaöarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb=Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nónari upplýsingar um penlngamarkaölnn birtast I DV á fimmtudögum. Fiskurinn frá íslandi, sem sendur er á fiskmarkaðina í Hull og Grimsby, þykir ekki góður. Menn segja að íslendingar kunni ekki að ísa fiskinn rétt i gámana og því sé fiskurinn lélegri en ella. DV-mynd S.dór Gæðamálin í fiskútflutningi: Vantar meira eftitiit með gámaútflutningnum - segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðheira Vegna þeirrar miklu gagnrýni, sem tíðindamaður DV varð var við á fiskmörkuðunum í Hull og Gríms- by á dögunum og þeirrar umsagnar allra sem rætt var við að gæði ís- lenska fisksins verði að batna í harðnandi samkeppni á fiskmörkuð- um Evrópu, var Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra spurður hvort nokkuð það væri í bígerð sem tæki á þessu máli? „í sjálfu sér er ekkert sem segir að ísfiskmarkaðurinn í Bretlandi eigi að fá besta fiskinn frá íslandi. En hitt er svo annað mál að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það vanti meira skipulag og meira eftir- lit með gámaútflutningi. Því miður hefur ekki náðst um það sam- staða, en það er alveg ljóst að breyting þarf að verða hér á,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Halldór benti á að sjávarútvegs- ráðuneytið hefði ekki með höndum úthlutun útflutningsleyfa á ísfiski. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að útflutningsleyfimum þurfi að fylgja eftirlit. Aðspurður hvort ekki væri tíma- bært að setja það í reglugerð að notuð séu fiskkör um borð í bátun- um, en þau hafa gefið mjög góða raun, sagðist Halldór ekki hafa trú á þvi að stjóma með reglugerðum. Hitt væri rétt að fiskkörin væru al- ger bylting hvað gæði hráefnis snerti og sem betur fer væru augu manna að opnast fyrir þessu. Aftur á móti væm sumir bátanna þannig að kör- um yrði ekki komið við um borð, en í nýrri og stærri skipum væri það hægt. „Aðalatriðið tel ég vera að menn fai það borgað að skila góðu hráefni að landi. Og ýmislegt hefur verið gert til að fá betra hráefni að landi. Netum heiur verið fækkað og marg- ir skipstjórar em farnir að taka net upp um helgar. Ég held að menn verði að finna það hjá sjálfum sér að koma með betri fisk, ég hef ekki mikla trú á reglugerðum í þeim efii- um,“ sagði Halldór. Loks benti Halldór á varðandi ís- fiskinn á Bretlands og Þýskalands- markaði, að vegna þess hve hátt verð er greitt þar fyrir lélegan fisk, freistuðust menn til að senda þangað þann fisk sem minnst verð fæst fyrir hér heima. Hann sagðist vera viss um að þar kæmi að verð á lélegum fiski félli þar líka og þá fæm menn sjálfsagt að hugsa sig um. En það væri vissulega alvarlegt mál ef ís- lenskur fiskur á þessum mörkuðum er að fá á sig það orð að vera léleg vara. -S.dór Hagvangur í bæjaimálum Þórshafnar í Færeyjum - útflutningur til Færeyja sífellt vaxandi Stjómskipulag og vinnuskipulag hjá Þórshafnarbæ í Færeyjum er til endurskoðunar hjá Hagvangi hf. Þetta er fyrsta verkefhi íslenska fyrirtækis- ins erlendis og ekkert annað íslenskt fyrirtæki hefur fengist við hliðstætt úrlausnarefni á erlendri grund. Samkvæmt frásögn fréttabréfs Fé- lags íslenskra iðnrekenda, Á döfinni, fékk Hagvangur hf. verkefiiið í Þórs- höfii í framhaldi af markaðsferð fyrir- tækisins til Færeyja fyrir tveim árum. Flugmálastjóm hér á landi er enn- fremur ráðgjafi Færeyinga varðandi nýjan flugvöll. Flugleiðir hf. stefna að aukinni þjónustu við Færeyinga, með- al annars með frekari tengingu við Noreg og Skotland. Útflutningur á íslenskum vörum til Færeyja fer sífellt vaxandi. Á meðal þess vamings, sem selst hefur vel und- anfarið, er steinull frá Sauðárkróki og er markaðshlutdeild hennar um 40%. Um 5.000 tonn af fiskafóðri frá ístess á Akureyri munu seljast til um 70 stöðva í Færeyjum á árinu. Það mun vera meira en helmingunnn af því fiskafóðri sem notað verður í eldi þar. Fyrirtækið Hlín hf. hefur selt vax- andi magn af Gazella kvenkápum á nokkrum stöðum í Færeyjum síðustu tvö ár og er að hefja sölu á karlmanna- frökkum. Þá hefur Byggingariðjan hf. selt strengjasteypueiningar í tvær byggingar en nú munu Danir hafa undirboðið verð fyrirtækisins. Fram- hald er því óvisst. Margt fleira mun vera á döfinni í þessum útflutningi. Minna er um inn- flutning frá Færeyjum. Þó hafa sést hér vörur þaðan síðustu misseri, þar á meðal léttöl og salemispappír. -HERB Ferðaskrifstofan Saga dregur sig til baka Ferðaskrifstofan Saga hefur dreg- DV heimildir fyrir því að Saga hafi ið sig til baka úr samstarfi því sem ekki talið sér fært að standa að sam- á var komið á milli nokkurra miðl- starfinu á breiðari grundvelli en ungsstórra ferðaskrifstofa hér á áður er greint. landi, en samtök ferðaskrifstofanna „Við erum úti með annan fótinn, kallast Reisuklúbburmn. að minnsta kosti í bili, þar sem við Að Reisuklúbbnum standa ferða- sættum okkur ckki við sláptingu skrifatofiimar Atlantik, Ferðamið- sæta í flugi til Evrópu,“ sagði Öm stöðin, Terra og Pólaris, en Saga Steinsen. hefur dregið sig út. Samkvæmt upp- Samkvæmt upplýsingum, sem DV lýsingum, sera DV hefur aflað sér, fékk hjá Kolbeini Pálssyni hjá ferða- var ágreiningur innan Reisuklúbbs- skrifatofunni Terru, hefur Reisu- ins, meðal annare um skiptingu sæta klúbburinn verið skráður sem á mifli ferðaskrifetofanna í sameigin- sérstakt fyrirtæki og standa áður- legu flugi og staðfesti Öm Steinsen nefhdar feröaskrifetofur að honum. hjá ferðaskrifstofunni Sögu það. MunstarfeemiReisuklúbbsinsverða Hins vegar sagði öm að Saga myndi hliðstæð ferðaheildsölura þeira sem standa að viðræðum um sameiginleg starfandi eru erlendis og koma fram viðskipti ferðaskrifetofanna á með margs konar ferðatilboð. Florida og á Kanaríeyjum. Þá hefur -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.