Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987. 9 Útlönd Grjóti og flöskum rigndi yfir lögregluna i Santiago í óeirðunum sem brutust þar út i gær í einu fátækrahverfanna en á sama tíma söng páfinn messu í dómkirkjunni. Simamynd Reuter Páfinn tók opnum örmum ungum dreng og litlu systur hans, sem færðu honum blóm, en þau voru bæði úr fátækrahverfinu þar sem kom til óeirða t gær. Símamynd Reuter Oeirðir undir heimsókn páfa Sextíu eru sagðir hafa meiðst en um 150 voru handteknir í átökum milli lögreglu og hústökufólks í einu fá- tækrahverfa höfuðborgar Chile, þar sem Jóhannes Páll II. páfi er staddur í heimsókn þessa vikuna. Nokkrum stundum áður hafði páfinn ávarpað hverfisbúana og sagt þeim að honum þætti mjög íyrir bágindum fátækra í Chile. Um 300 manna lögregluliði var att gegn fólkinu í Santa Monica-hverfinu, sem er meira þyrping kofa og hrúgalda (hróílað upp í óleyfi) en húsahverfi, en slíkir íverustaðir umlykja Santiago. Beitti lögreglan táragasi og vatnskan- ónun til þess að dreifa manníjöldanum sem lét grjóti og flöskum rigna yfir lögreglumennina. Þessar róstur bera upp á annan dag páfaheimsóknarinnar til Chile, sem þykir ein með vandasamari ferðunum sem páfinn hefur tekist á hendur vegna ástandsins í Chile. En í flugvél- inni á leiðinni til Chile hafði páfi látið þau orð falla við fréttamenn að hann teldi stjóm Pinochets forseta (ög hers- höfðingja) harðstjóm og millibils- ástand. Fyrr í heimsókn páfans kom til óeirða á aðalíþróttaleikvangi Sant- iago þar sem mikið flölmenni hafði safnast saman því að páfinn ætlaði að ávarpa þar mannfjöldann. Þessi leik- vangur var notaður til að gevma pólitíska fanga og einnig til aftaka í skálmöldinni sem ríkti fyrst eftir bvlt- inguna 1973. Þegar Pólverjar fóru til matarinnkaupa i vikunni þurftu þeir að greiða 9,6 prósentum meira fyrir matvælin en fyrir helgi. Verð á bensini hækkaði um 25 prósent og kolaverðið hækkaði um 50 prósent. Símamynd Reuter Verðhækkanir í Póllandi Talsmaður pólsku stjómarinnar fullyrðir að verðhækkanimar í Póll- andi, sem gagnrýndar hafa verið harðlega, muni ekki hafa áhrif á lífsaf- komu fólks. Um helgina hækkuðu matvæli um 9,6 prósent. Bensín hækkaði um 25 prósent og kol um fimmtíu prósent. Að sögn talsmannsins hefur ekki frést af mótmælaaðgerðum vegna verðhækkananna. Ef atvinnurekendur hækka laun starfsmanna um meir en 12 prósent á þessu ári eiga þeir á hættu að þurfa að greiða sektir sem geta orðið allt að ftmm sinnum hærri upphæð en sjálf launahækkunin. Síðustu þrjú árin hafa launahækkanir verið meiri en verðhækkanir í Póllandi. Hreindýrakjöt mjög geislavirkt Norskir vísindamenn hafa skýrt frá því að fundist hafi mikil geislavirkni í kjöti af hreindýrum í austanverðum Noregi. Er geislavirknin sett í sam- band við slysið í kjamorkuverinu í Chemobyl í Sovétríkjunum fyrir nær einu ári. Vísindamennimir segja að prófanir sýni geislavirkni í kjötinu sem nemur 98,500 becquerels á hvert kílógramm. Er það vemlega yfir þeim mörkum sem heilbrigðisyfirvöld heimila en það eru 6,000 becquerel á hvert kíló af hrein- dýrakjöti. Mikið magn hi'eindýrakjöts hefur af þessum sökum verið dæmt óhæft til manneldis og verður það eyðilagt. HreindjTum er að vetri til beitt á skófir sem taka til sin meiri næringu úr lofti en jarðvegi. Þær menguðust þvi mikið af geislavirkni þeirri sem barst yfir Noreg og Svíþjóð eftir slysið í Chemobyl. Norðmenn urðu að evðileggja þús- undir hreindýraskrokka síðastliðið haust eftir að rannsókn leiddi í ljós að kjötið var mjög mengað af geisla- virka efhinu caesium. Vonast er til að geislavirkni í hrein- dýrakjöti minnki verulega i sumar þegar dýrin komast á beit á nýgræð- inginn. Belgísk, nýtísku svefnherbergishúsgögn nýkomin OPIÐ í KVÖLD JIS TIL KL. 20 Jón Loftsson hf. LAUGARDAG KL. 9-16. Hringbraut 121 Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.