Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 16
16 FÖSTUDAGIJR 3. APRÍL 1987. Spumingin Hvernig líst þér á tilboð fjármálaráðherra til sjúkraliða? Guðmundur A. Erlendsson ljós- myndari: Ég held mér lítist bara ágætlega á það. Það hlýtur að koma sér vel fyrir sjúkraliða að gengið sé að öllum kröfum þeirra, þetta er ágætis launauppbót til að byrja með. Magnús Gunnarsson húsvörður: Mér líst bara vel á það. Það var svo sann- arlega tímabært að gera eitthvað í málinu, annars hefði heilbrigðiskerf- ið verið að niðurlotum komið. Póll Pétursson verslunarmaður: Mér líst alveg ágætlega á það, þeir áttu þetta skilið. Vilhjálmur Harðarsson bilstjóri: Ég héf nú bara ekki kynnt mér það svo náið en það er gott að það er verið að ganga frá þessu svo allt komist í eðlilegt horf sem fyrst aftur. Gunnar Björnsson húsvörður: Mér finnst mjög eðlilegt að gengið sé að kröfum sjúkraliða, þó fyrr hefði ver- ið. Það ætti að semja svona við alla ríkisstarfsmenn. Guðrún Kristjánsdóttir: Mér líst mjög vel á það. Lesendur Völd eru áfeng Þengill skrifar: Mikið rót hefur komist á hugi landsmanna vegna viðburða síðustu daga og margar spumingar hafa vaknað. Völd eru alltaf áfeng og stundum rótáfeng. Hóflegur skammtur af áfengi getur örvað og hresst en mörkin eru óljós og ein- staklingsbundin. Áfengi fer fljótt að rugla dómgreind manna. Sumir verða góðir og glaðir en aðrir miklir að eigin mati og færir í allan sjó. (Ö1 er innri maður, segir máltækið.) Áfengi er eldi líkt, þvi fylgir hætta. Svo er um valdið. Mikið áfengi/vald mikil hætta. Ungum byrjendum hættir til að vera snarbrattir í um- gengni við bæði áfengi og völd. Þess vegna er mikillar aðgátar þörf. Menn velta því fyrir sér hvort hinn ungi og efhilegi formaður Sjálfstæð- isflokksins hafi verið í jafhvægi er hann tók upp á eindæmi að ákveða ráðherraval framtíðarinnar. Hafði dómgreind hans ruglast og hvers vegna? Gætu þetta verið ástæður? 1) Hann kemur heim frá París eins og hvítur stormsveipur, grípur fram fyrir hendur tvíráðra ráðherra og alþingismanna. Sjómenn hrifust og sömdu. Þetta voru tilþrif með góðum árangri. 2) Svipað má segja um samninga ASf og VSÍ. F.v. framkvæmdastjóri VSÍ, ráðherrann og flokksformaður- inn voru harðákveðnir. Látum þá sjálfa semja. Og hvað gerðist? Samn- ingar kenndir við þjóðarsátt. 3) Landsfundur í Laugardalshöll, Qölmennur og litríkur, og foringinn óspart hylltur og endurkjörinn ein- róma. Enginn ágreiningur á yfir- borðinu. (Ráðlegra mun að tala upphátt um hlutina.) Var nema von að þessi ungi foringi færi að finna á sér og teldi sig einfær- an um að ákveða hvort Jón Baldvin eða Albert fengju ráðherrastól á næstunni? Þar fór hann yfir strikið - og það var rautt strik. En eins og segir, völd eru áfeng og hafa ruglað marga stóra með örlagaríkum afleið- ingum. Þorsteinn mikilhæfur leiðtogi Jónas Jónsson skrifar: Mig langaði að leggja orð í belg um þessa eilífu Albertsumræðu er hefur gjörsamlega hertekið fjölmiðlana svo ekkert annað hefur komist að. Það sem mér hefur þótt leiðinlegast við þessa umræðu er að það er alltaf verið að kenna Þorsteini um þetta allt saman en ég get ekki séð annað en hann hafi gert hið eina rétta sem hægt var að gera úr því sem komið var. Það er ekki Þorsteini að kenna þótt einhverjir ráðherrar gleymi að telja fram til skatts og finnst mér Þor- steinn eiga mikið lof skilið fyrir þá afstöðu er hann tók í þessu máli. Fólk er alltaf að gagnrýna stjóm- málamenn fyrir að bera ekki ábyrgð á þessu og hinu og svo þegar einhver á að bera siðferðilega og pólitíska ábyrgð á alvarlegum mistökum sínum er allt í einu komið allt annað hljóð í strokkinn. Það þarf mikið hugrekki og kjark til að standa í svona leiðindamálum en mér finnst hinn ungi og efnilegi formaðuí hafa sýnt og sannað með þessu hversu mikilhæfur leiðtogi hann er. „Þorsteinn hefur staðið sig sem skyldi í þessu Albertsmáli og á hann mikið lof skilið fyrir það.“ Hvað er hugsanaflutningur annað en það að heili eins manns sendir frá sér hugsanir sem heili annars manns nemur og veitir viðtöku. Heilinn sendir frá sér hugsanir „B fólk með Albert á heilanum?“ Sigurður B, hringdi: Þetta skattsvikamál og fleiri vandræði Alberts Guðmundsson- ar hafa hertekið fjölmiðla svo mjög að lífsnauðsynjamál sjúkra- og skólaungmenna okkar hafa nærri horfið í skuggann af því. Hvers konar fólk erum við ís- lendingar eiginlega, höfum við meiri áhuga á hneykslismálum og pólitísku brölti meintra skatt- svikara en neyðarmálum sjúkra og mörg þúsund skólaungmenna. Það mætti halda að fólk væri með Albert á heilanum. Þjóðin er spillt hefur ekki þolað góðærið, segja sumir, er það ekki ofsagt? Ekki eru allir sama marki brenndir. yyAUIII- ingia Albert“ Margrét H. hringdi: Ósköp voru formenn litlu pólitísku flokkanna lítt traustvekjandi í sjónvarpinu 30. mars sl. nema K vennalistinn er skar sig alveg úr. í tali sínu lögðu þeir áherslu á að fólk vorkenndi Albert Guð- mundssyni þvi einhverjir hefðu verið vondir við hann. Árangurinn er að margir sem hafa óákveðnar skoðanir í pólitík og kusu þessa flokka hlaupa nú frá þeim og kjósa aumingja Albert sem reyndar virð- ist ekkert eiga bágt. Ingvar Agnarsson skrifar: I dagblaði einu birtist'eitt sinn fróð- leg og athyglisverð grein eftir Einar Frey rithöfund „um Grikkland hið foma og „Hellas" Ágústar“. í grein þessari er m.a. setning er hjóðar svo: „mannsheilinn sem hefur verið að þróast í milljónir ára sendir ekki frá sér hugsanir eins og nútíma útvarpsstöð. Hér ráða allt önnur nátt- úrulögmál." Mér dettur í hug hvort hér sé ekki skotið fram hjá marki með fullyrðingu eins og þessari. Hvaðan kemur sú vitn- eskja að mannsheilinn sendi ekki frá sér hugsanir? Benda ekki einmitt ýms- ar rannsóknir fyrirburðafræðinga og annarra til þess að hugsanaflutningur og aðrar garskynjanir eigi sér stað? - Nú orðið þykir fullsannað að hugs- anaflutningur fari fram manna á milli og raunar hvers skonar fjarskynjanir annarra tegunda. Fyrirburðafræðingar og aðrir rann- sóknarmenn hafa mjög rannsakað þess háttar fyrirbæri á síðari árum og enginn þeirra mun treysta sér til að afsanna vemleika þeirra. Og hvað er hugsanaflutningur annað en það að heili eins manns sendir frá sér hugsan- ir sem heili annars manns nemur og veitir viðtöku. Meðan annað er ekki sannað verð- um við að taka það sem gott og gilt að mannsheilinn sendi frá sér hugsan- ir. Léleg þjónusta Raggi hringdi: Eg vil kvarta yfir lélegri þjón- ustu sem ég fékk á bílasölu Matthíasar á Miklatorgi. Ég kom til að leita mér upplýsinga um bíla og ætlaði að fá að kíkja á spjald- skrána en mér til mikillar furðu var það óheimilt. Þess i stað átti eg að gefa þeim upplýsingar um hvers konar bíl ég væri að leita að. Mér finnst mun æskilegra að íá að leita sjálfur og gá hvort ég detti ekki niður á eitthvað við mitt hæfi. Ég var búinn að þræða bíla- sölumar og alltaf hafði ég fengið að fletta í gegnum spjaldskrána til þess að athuga hvort ég sæi eitt- hvað spennandi. Mér finnst það mun eðlilegri við- skiptahættir, annaðhvorter maður að kaupa bíl eða ekki! „Eiga leigubíl- sýórargötumar?" Ökumaður hringdi: Mér finnst leigubílstjórar lang- veratu bílstjóramir enda aka þeir um götumar eins og þeir eigi þær. Þeir eru alveg hryllilega frekir í umferðinni og virðast einskis svíf- ast. Það hefur komið oftar en einu sinni fyrir mig að leigubílstjórar hafa við gatnamót, þar sem er bið- skylda, keyrt eins og þeir séu á aðalbraut og hirða ekkert um það þó þeir séu að svína fyrir mann. Ég vil beina þeim tilraælum til leigubílstjóra að keyra eftir settum reglum, þeir eru ekkert undan- skildir þeim frekar en aðrir ökumenn. HRINGIÐ í SÍMA 27022 MILLI KL. 13 og 15 EÐA SKRIFIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.