Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1987, Síða 40
52 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Margrét Danadrottning hefur ekki tilkynnt þátttöku í blautbolskeppninni í Sjall- anum en vakti hins vegar óskipta athygli þannig búin í Ástralíu. Kerling steypti séi eiturhress í hótelsundlaug- ina viö Ayers Rock og viðstaddir Ijósmyndarar urðu óðir á staðnum. Magg? sleppti því alveg að dangla i nærliggjandi Ijósmyndara- snúða - enda kann konan ekkert í fótbolta - og svei' bara hátignarlega upp úr lauginni og hvarf inn í bún- ingsherbergin. Myndir af náðinni í rennblautu og fá- klæddu ástandi þekja nú hreint alveg óteljandi dálks- entímetra helstu heimsblað- anna. MargrétThatc- her þykir alltaf skothelt frétta- efni. Því fannst hollenska blaðamanninum Mark Bla- ise það rakinn lukkupottur þegar honum bauðst einka- viðtal við járnfrúna. Við- burðurinn átti ser stað á hótelherbergi þar sem Magga steppaði sem óð væri og söng Túlípanar frá Amsterdam svo undir tók í húsinu. í lokin reyndi hún að lokka Mark út á gólfið til þess að taka rækilegan loka- snúning í kveðjuskyni og ennþá læddist ekki að þeim reynda blaðamanni grunur um að eitthvað kæmi kannski ekki alveg heim og saman í atburðarásinni. Eftir að skúbbið stóra hafði á þrykk komist standa menn í keng af hlátri en Mark ætlar í málarekstur mikinn. Þarna var sumsé á ferðinni Janet nokkur Brown sem vinnur við að líkja eftir breska for- sætisráðherranum - og varla getur sú góða kona fengið betri auglýsingu í náinni framtíð. Philip Michael Thomas berst fyrir því að fá son sinn afhentan - en króginn mun rétt nýfæddur vestra. Fyrir átti Philip sex dætur utan hjónabands með fjórum konum og því var þetta karl- mannskríli guðvelkomið í hópinn. Móðirin - Daima Matthews - hefur eitthvað á móti því að láta barnið af hendi og veldur með slíkum viðhorfum mæjamilöggunni ómældum vandræðum. Samband foreldra drengsins sprakk í loft upp fyrir fæð- inguna en það kom þó ekki í veg fyrir að sá stutti beri það ágæta nafn Philip Mic- hael Thomas yngri. II I drasiii Það eru ekki öll kurl komin til grafar ennþá i skilnaði stórstjörnunnar Joan Collins og Peters Holm. Meðfylgjandi Reutersmynd var tekin af Joan og lögfræðingi hennar, Marvin Mitchelson, þegar þau mættu i réttarsal til þess að krefjast þess að Peter skilaði aftur húsgögnum og fjármunum sem kappinn mun hafa undir höndum ennþá. Peter Holm svaraði með þvi að fara fram á himinháar fjárhæðir í mánaðargreiðslur eftir skilnaðinn og glotti þá fyrrum eiginkona Holms sem búsett er i Svíþjóð. Fyrir giftingu Holms og Collins varaði hún stórstjörnuna við í blaðaviðtali - sagði Peter Holm hafa gifst sér peninganna vegna og gert sig að öreiga á nokkrum mánuðum. Peter Holm og Joan Colllns hafa verið gift í þrettán mánuði. Ber bringa og nafli fór fyrir brjóstið á Hollívúddurunum. Parsíns Domóklæöi Sú strangkristna Charlene Tilton náði andlitinu gersamlega af gestum á verðlaunaafhendingunni við American Music Awards í Los Angeles. Stjarnan mætti með eiginmanninn, Domenic Capaldi, og bæði voru prúð- búin svo sem venja er við hátíðlegri tækifæri. Domenic var að mestu ber að ofan en hafði þó bleika skyrtu á öxlum til hlífðar en Charlene lét sér ekki nægja bera bringu heldur sást verulega langt niður fyrir nafla. Hörðustu Hollívúddarar hneyksluðust upp fyrir öll sín eyru og segja að hjónakornin hljóti að hafa villst þetta kvöldið - ferðinni greinilega verið heitið á pomóverðlaunaveitingu þar sem gestirnir leiki aðalhlutverkið á staðnum. Ljóskan svaraði fyrir sig með því að biðja i tvo heila tíma fyr- ir helstu hneykslunarsprautunum. . ’ Það má komast nokkuð hátt á hinum nýju fljúgandi diskum. ffflL **| Fljúgandi diskar frá Noregi Nýjasta æðið í Noregi eru fljúgandi diskar - UFO eða FFH - sem bókstaf- lega allir Norðmenn hoppa um á sem óðir væru á almannafæri. Apparatið er í rauninni ekkert annað en tví- skiptur bolti með hoppbretti um miðju þar sem menn tylla tánum nið- ur og hoppa síðan upp og niður af jötunmóð miklum. Húlahoppæðið fyrrum er hreinasti barnaleikur mið- að við þessa fljúgandi diska og varla getur leikið nokkur vafi á því að smit berist hingað til lands innan tíðar. Þá geta menn losað sig við fótanuddtækin, reiðhjólin og nudd- púðana - og farið út að hoppa um steyptar stéttar og grænar grundir. Greinilega er þarna líka upplagt tæki til þess að láta frambjóðendur keppa á fyrir kosningarnar í vor- þarna er það keppnisskapið og íþróttaandinn sem fleytir mönnum heilum í höfn. Med dóttur milli tannanna Þegar ferjan Herald of Free Enterprice fórst við strendur Belgíu er mörgum ógleymanleg sagan af manninum sem braust út úr sökkvandi skipinu með eiginkonuna meðvitundarlausa í fanginu og þriggja mánaða dóttur sína milli tannanna. Meðfylgjandi mynd sýnir fjölskylduna á sjúkrahúsinu nokkr- um dögum eftir slysið - sá fílhrausti Peter Zutic með konu sinni, July, og dótturinni, Carly. Fyrir höndum var endurtekning ferðarinnar til Bretlands og ekki hafði verið tekin ákvörðun um hvort hún yrði farin flugleiðis eða ferjufyrirkomulagið reynt á nýjan leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.