Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. 21 Sverrir í þungum þönkum yfir einhverju atriði. ijörugri en sú fyrri enda stigu þá báð- ir ráðherrar kjördæmisins, Sverrir og Halldór, í pontu, en umferðin hófst á ræðu Ingvars Nielssonar sem útlistaði fyrir fundarmönnum hvemig Borgara- flokkurinn hygðist afla nýrra tekju- stofha með nýjum atvinnugreinum í kjördæminu. í miðjum þessum útlistunum var Hjörleifur: „Sömu loforðin ár eftir ár.“ kallað á Ingvar úr salnum hver stefn- an væri í skattamálum og benti Ingvar þá viðkomandi á stefnuskrána. Hjörleifi Guttormssyni,-sem talaði næstur fyrir Alþýðubandalagið, varð tíðrætt um kísilmálmverksmiðjuna sem reisa á við Reyðarfjörð. Hann sagði að eftir að sett vom lög um verk- smiðjuna 1982 hefði Sverrir komist í málið og þar með væri ætlunin að verksmiðjan yrði að meirihluta eign útlendinga. „Það hafa verið endurtekin ár eftir ár loforð um að þetta mál sé í höfh. Hvemig ætla þessir menn að koma fyrir fólkið hér með þetta á bakinu?" sagði Hjörleifur og veifaði til ráð- herranna. Hiti i Sverri „Afreksmaðurinn frá 1983 lauk hér máli sínu,“ sagði Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra, sem næstur talaði fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og nefndi nokkur dæmi um viðskilnað vinstri stjómarinnar síðustu. Hann sagði að verðbólgan nálgaðist nú eins stafs tölu sem væri nokkuð sem enginn hefði trúað fyrir en verðbólgan hefði verið aðalbölvaldurinn, hún gerði þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari. Hér var byrjað að grípa fram í fyrir Sverri sem svaraði fyrir sig. „Er hann Hallur litli byrjaður að gala þama? Þú átt að vera á Eski- firði.“ „Það er ágætt að þú skelfur," kom á móti. „Þegiðu Hallur." Sverrir gerði samanburð á því sem nú er að gerast f íslenskum stjóm- málum og því sem gerst hefði í Frakklandi og síðar í Danmörku er flokkum hefði fjölgað úr hófi. Er hér var komið sögu hefur Hallur greini- lega staðið upp þvi Sverrir gerði hlé á máli sínu til að segja: „Og nú flýr karlinn. Hann er sennilega að fara út að skipta um skoðun." Hann gerði einnig að umfjöllunar- efni málfluting Þjóðarfiokksins á fundinum: „Hjá þeim er allt að fara lóðbeint til andskotans. Og þama situr Sigga Kristins der engang var min elskerinde...“ Guðmundur: „Málið snýst um hvaða flokkur er liklegur til að leiða næstu stjórn. Aðrir flokkar fengu sinn skammt. hvað Alþýðuflokkinn varðaði var honum ekki treystandi fyrir neinu því Jón Baldvin Hannibalsson er.. .„einn liprasti og hraðskreiðasti snælduhali í pólitík sem ég þekki." Sverrir sagði að valkostimir væm skýrir, annars vegar væri sjö flokka súpan til vinstri...og hvað er að treysta á þá?“ og hins vegar Sjálfstæð- isflokkurinn. Ekki taka ræðuna mína Næstur í pontu var Guðni Nikulás- son fyrir Þjóðarflokkinn og bar helst til tíðinda í málflutningi hans að hann fór að vitna í tölur frá Guðmundi Ein- arssvni sem bað hann þá blessaðan að taka ekki ræðuna sína. Jón Kristjánsson og Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra töluðu báðir fyrir Framsóknarflokkinn í síð- ari umferð. Jón sagði m.a. í máli sínu að nú væri sóknarfæri til betri fram- tíðar og væri rétt á málunum haldið biðu okkar miklir möguleikar og menn ættu ekki að láta þetta bölsýnisraus. sem hér hefði komið fram, villa sér sýn. Halldór sagði að hvað kísilmálm- verksmiðjuna varðaði þá væri áfram unnið að því á heiðarlegum grund- velli að koma því máli í höfn. Hvað stjómmálin almennt varðaði sagði Halldór að eins og málum væri komið í Sjálfstæðisflokknum væri ljóst að hann gæti ekki tekið forystu í þessu landi. Guðmundur Einarsson var síðastur ræðumanna kvöldsins. Hann sagði m.a. að málið nú snerist um hvaða flokkur væri líklegur til að leiða næstu ríkisstjóm. Þar kæmu kratar mun fremur til greina en allar þessar klofn- ingssúpur í kringum þá. -FRI Jón Kristjánsson og Halldór Ásgrímsson brosa að einhverju skemmtilegu. Stjómmál Hverju spáir þú um úrslit kosninganna í Austurlands- kjördæmi? (Spurt á Reyöarfirði.) Hilmar Finnsson, Heiðarvegi 4, Reyðarfirði: Ég geri ráð fyrir að Al- þýðubandalagið fái tvo menn, Framsókn tvo menn og Sjálfstæðis- flokkur einn mann. Ætli kratar séu svo ekki næstir þvi að koma manni að. Hildur Magnúsdóttir, Réttar- braut 3, Reyðarfirði: Ég spái að Alþýðuflokkurinn fái tvo menn, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur einn hvor og síðan hef ég trú á því að Kvennalistinn komi konu að. Haraldur Óskarsson, Mið- stræti 25, Neskaupsstað: Ég held að gömlu fjórflokkarnir fái einn mann hver en siðan er þetta spurning um fimmta manninn. Ætli ég setji hann ekki á Alþýðuflokkinn. Einar Baldursson, Heiðarvegi 25, Reyðarfirði: Ég spái Framsókn þremur mönnum og að Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðubandalag fái einn hvor. Ætli Alþýðubandalagið sé svo ekki næst þvi að ná manni af Fram- sókn. Sveinn Jónsson, Strandgötu 9, Eskifirði: Æ, ég veit ekki hvað skal segja. Ég spái Framsókn þremur mönnum og Sjálfstæðisflokk tveimur. Stefán Þórarinsson, Heiðar- vegi 23, Reyðarfirði: Framsóknar- flokkurinn fær þrjá menn, Sjálfstæð- isflokkurinn einn og Alþýðubanda- lagið einn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.