Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. 53 dv Stjómmál Kjamorkuvopnalaust svæði Ásta Sigurðardóttir, Hafnarfirði, spyr: Hver er afstaða Jóns Baldvins og Alþýðullokksins til kjamorku- vopnalausra Norðurlanda? - Eins og þú veist þá hafa Norður- löndin verið, eru og eiga að verða kjamorkúvopnalaus og við teljum að kjamorkuvopnaleysi Norður- landanna sé liður í ríkjandi jafnvægi í okkar hoimshluta. í okkar stefnu- yfirlýsingu stendur þess vegna: Staðfesting þess með sérstakri yfir- lýsingu ætti að verða þáttur í víðtækara samkomulagi um stærra kjamorkuvopnalaust svæði, tak- mörkun vígbúnaðar, fækkun kjamavopna og slökun spennu í Evrópu. Þetta teljum við ákaflega þýðing- armikið verkefhi í framtíðarbaráttu fyTÍr friði í heiminum en við leggjum áherslu á að það verði að byggjast á gagnkvæmum samningum og eftir- liti ef árangur á að nást og vekjum athygli á því að Norðurlöndin, sem eru kjamorkuvopnalaus, ógna ekki öryggi neins ríkis. En við erum um- kringd kjamorkuvopnum og sér- staða okkar íslendihgá er sú að þetta svæði verður að vera stærra en Norðurlöndin, verður til dæmis líka að ná til hafsvæðisins sem er okkar lífæð. Ég lít svo á að um þetta mál sé samstaða á Alþingi. f ályktun Al- þingis frá 1985 um afvopnunarmál lýsti Alþingi, með samþykki allra þingflokka, þeirri afstöðu sinni að þetta yrði að ná til stærra svæðis heldur en landsvæðis Norðurland- anna einna. framfærslumörk. í annan stað get ég reynt að tryggja það að í skattalögum verði hinum efhameiri gert að borga sína skatta. Það em 4-5 þúsund millj- ónir sem em sviknar undan skatti af efnafólkinu í landinu. í þriðja lagi get ég reynt að nota mína krafta til að koma á manneskjulegu húsnæðis- málakerfi, þannig að fólk eigi val milli leigu og séreignar, geti fengið hús- næðisöiyggi án þess að lenda í skulda- fangelsi og ég get reynt að tiyggja aldraða fólkinu sæmileg lífeyrisrétt- indi með lögum. Þama verður að koma til samspil launþegahreyfingar- innar og stjómmálaaflanna. Veikleik- inn í þessu landi er að við eigum ekki nógu öflugan jafnaðarmannaflokk. Bilnúmerakerfið Guðjón Eggertsson spyr: ■ Ætlið þið alþýðuflokksmenn að af- nema þetta úrelta númerakerfi á bifreiðum? - Ég er tilbúinn til að beita mér fyrir því. Það voru mennimir með lágu númerin sem komu í veg fyrir það á síðasta þingi. Það er sjálfsögð aðgerð til að draga úr kostnaði. Það á að ráða heilbrigð skynsemi en ekki dekur við forréttindi. Rósir fyrir milljón? Rannveig Höskuldsdóttir, Reykjavik: Við höfum lesið í fréttum að Al- þýðuflokkurinn sé að flytja inn rósir fyrir tæplega eina milljón króna. Er það rétt og í hvað tilgangi er það þá gert? - Það er rétt að Alþýðuflokkurinn hefur neyðst til þess að flytja inn rós- ir. Það var ákveðið að undangengnum könnunum sem sýndu að við gátum ekki fengið þær frá innlendum fram- leiðendum. Það reyndum við mjög ítrekað. Rósin er hið alþjóðlega tákn jafnaðarmanna og framundan eru kosningar. Við munum nota þetta tákn okkar með nákvæmlega sama hætti og við gerðum við síðustu kosn- ingar. Skattiagning Kristín Jóhannsdóttir, Reykjavik, spyr: Hefur Alþýðuflokkurinn á stefnu- skrá sinni að skattleggja sparifé ellilíf- eyrisþega? Nei, Alþýðuflokkurinn hefur það ekki á stefhuskrá sinni. Hitt er rétt að við höfum sett fram ítarlega og til þess að gera nákvæma verklýsingu á þvi sem við köllum forgangsverkefni næstu ríkisstjómar og það er heildar- endurskoðun á öllu skattakerfinu. Þar leggjum við megináherslu á það að þrátt fyrir þær breytingar sem nú á að gera, til dæmis með staðgreiðslu- kerfi skatta, þá ná þær bara til innheimtufyrirkomulags á sköttum launþega. Það sem hún snertir ekki á er skatt- lagning á fyrirtækjum og skattlagning á tekjum sjálfetæðra atvinnurekenda. 1 stefhuyfirlýsingu Alþýðuflokksins segir að alveg eins og launatekjur eru skattlagðar, þó við leggjum til að skattfrelsismörk verði hækkuð, þá verðum við að líta á breyttar aðstæð- ur. Núna er um það að ræða að fólk á verulegar eignir í tengslum við verð- bréfamarkaði, til dæmis í formi skuldabréfaeignar. Við teljum ekki rétt að hafa það sem grundvallarreglu í skattlagningu að eingöngu séu skatt- lagðar tekjur manna af vinnu en að tekjur af eignum, ef þær eru umfram ákveðin mörk, og tekjuaukning á milli ára umfram verðbólgu sé skattfrjáls. En það er ekki á okkar stefhuskrá að skattleggja sparifé ellilífeyrisþega. Landbúnaðurinn Hallgrímur Sigurður Aðalsteinsson, Vaðbrekku, Hrafnkelsdal: Hvað hefur þú að segja um land- búnaðarmálin, um stefhu Alþýðu- flokksins? - Það er mjög erfitt að gera grein fyr- ir henni í mjög stuttu máli. En aðalatriðin eru þó þessi: Við höfum lýst því yfir að við erum andvígir ríkj- andi kvótakerfi og munum afhema það við fyrsta tækifæri. Við ætlum okkur til þess þrjú ár. í stað framleiðslu- skerðingar með beinum tilskipunum viljum við að ríkisvaldið beiti sinum stjómtækjum á svæðaskipulag land- búnaðarframleiðslunnar. Innan þess ramma verði bændum í sjálfevald sett hvemig þeir reka sín bú. Sauðfjárbúskap á að stunda sam- kvæmt ítölu þar sem beitarþol leyfir. Mjólkurframleiðslan á auðvitað að fara fram sem næst þéttbýlisstöðum. Það á að skipuleggja landbúnaðinn þannig á hagkvæmnisgrundvelli. Stuðningur hins opinbera á fyrst og fremst að beinast að vömþróun og það á að brjóta upp einokunarkerfi SfS og beina viðskiptunum til þeirra sem best bjóða. Þetta ætlum við að gera á þrem árum og ég veit að þetta er leiðin til þess að eyða tortryggni og ósætti milli framleiðenda og neytenda. Heildsölu- kostnaður við markaðssetningu sauðfjár nemur hærri tölu en saman- lagður launa- og flutningskostnaður í sláturhúsum. Smásöluálagningin samsvarar að minnsta kosti launum 2.050 bænda. En það munu ekki vera nema 2.500 bændur í sauðfjárbúskap. Þessu verður að breyta og það verð- ur erfitt á meðan það gengur y’fir. Égimá konunni minni Sigurgeir Guðjónsson, Hafnarfirði, spyr: Hver telur þú að lágmarkslaunin eigi að vera hjá verkafólki? - Lágmarkslaun, samkvæmt upplýs- ingum kjararannsóknamefndar á sl. hausti miðað við tvær fyrirvinnur, sem er í 80% tilvika, vom 70 þús. á mán- uði. Ég held að það sé ógjömingur fyrir fjögurra manna fjölskyldu að lifa á lægri launum. Þá vísa ég til minnar eigin reynslu. Ég er með sex manna fjölskyldu, þingfararkaupið er, að því er ég best veit, 93 þús. á mánuði, þar af fara um 40 þús. í skatta og önnur gjöld. Það sem eftir er leifir engu til að framfleyta sex manna fjölskyldu og það dugir ekki til, ég verð að hluta til að lifa á konunni minni. Hrömun opinberrar þjónustu Baldur Ragnarsson, Reykjavík, spyr: Mun Alþýðuflokkurinn beita sér fy'r- ir auknum fjárveitingum til mennta- mála? - Já, hann mun gera það og sérstaða okkar er einmitt sú að yið gerum grein fyrir því í okkar tillöguflutningi, eins og stjómmálaflokkar eiga að gera, hvernig við ætlum að endurskipu- leggja ríkisbúskapinn á íslandi og tekjuöflunarkerfið, hvemig við ætlum að fækka útgjaldaliðum ríkisins, sér- staklega þeim sem má kenna við millifærslur í þágu sérhagsmuna, til þess að afla fjár fyrir þeim forgangs- verkefnum, endurreisn velferðarríkis- ins, sem við setjum á oddinn. Þar á meðal eru skólamál ofarlega á blaði í okkar stefnuvfirlýsingu, að bæta bún- að skóla og auka gæði skólastarfe. Það er orðið augljóslega sjúkdómseinkenni í okkar þjóðfélagi það ginnungagap sem er orðið á milli blómlegrar einka- neyslu í landinu. t.d. einkabíllinn og heimilið, en hins vegai' hrömun opin- berrar þjónustu, t.d. skólinn okkar er í hættu, gæði skólastarfs hafa farið versnandi og námsefnið í mörgum til- vikum úrelt. Það þýðir að það verður að gera sérstakt átak í því að bjóða upp á betra og nútímalegra námsefni og það verður ekki gert án fjármuna. en ég bendi þeim á hvar á að taka peningana. Tvöfalt siðgæði Rögnvaldur Óðinsson, Reykjavík: Eg er forvitinn um þetta siðgæði sem þú hefur verið að predika um. Núna upp á síðkastið snýst það um Albert og þú virðist vera mjög mótfallinn gerðum hans. Þá langar mig til þess að vita hvers vegna þú réðst Ingólf Margeirsson sem ritstjóra Alþýðu- blaðsins skömmu eftir að hann viður- kenndi opinberlega ósannsögli imi viðskipti sín við Hafekip hf. - Ég skal gjaman svara þessu eins og ég er maður til. Kjaminn í umræð- unni um tvöfalt siðgæði að undan- fómu er þessi: Forystumenn Sjálfstæð- isflokksins sögðu að Albert væri óhæfur til þess að gegna embætti iðn- aðarráðherra vegna þess að hann væri grunaður um skattsvik. Það vom ekki mín orð, þetta sögðu þeir. Síðan fór formaðurinn á fund fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna og lagði að þvi að sami maður yrði ekki settur út úr þeirri mllu að leiða lista flokksins i Reykjavík. Varðandi Ingólf Margeirsson er mitt svar þetta: Hann var borinn þeim sök- um sem þú ert að nefna. Hann brást við á þann veg að hann sagði af sér starfi þegar í stað. Ingólfur hefur ckki verið kærður fyrir neitt. En hann hef- ur tekið afleiðingum gerða sinna og nú vitna ég til heilagrar ritningar: „Sá vðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum." Fjölgun þingmanna Magnús Sigmarsson, Stöðvarfirði, spyr: Var Jón Baldvin fylgjandi flölgun þingmanna? Nei. enda greiddi ég atkvæði á móti því. Kvótakerfið Magnús Sigmai-sson, Stöðvarfirði, spyr: Hvert' er álit formanns Alþýðu- flokksins á núverandi stefnu í fisk- veiðimálum, það er kvótakerfmu? - Mitt álit er ósköp einfaldlega þetta: Ég tel það höfuðatriðj að rjúfa kvóta- úthlutun á skip. Ástæðumar em augljósar. Gömul skip. jafhvel ryðkláf- ar og fúafleytur. ijúka upp í verði því það er kvótinn. sem fylgir. sem ræður verðlaginu. Þá útilokar kvótakerfið það að hægt sé að snúa sér að eðli- legri endumýjun á okkar gamla flota. Það getur leitt til þess að þegar það verðm- orðið óumflýjanlegt þá verðm- það orðið svo risavaxið verkefhi að við verðum að flvtja það úr landi og skipasmíðaiðnaðurinn okkar missir af því. Þannig að við segjum: Kvótakerfi á skip er ekki fiskveiðistefha til fram- búðar. Það var neyðarráðstöfun til skamms tíma. út af fyrir sig hægt að fallast á hana í eitt til tvö ár en hún má ekki festast í sessi. Albert hefur enga stefnu Sigurður Magnússon, Reykjavik, spyr: Ef Alþýðuflokkurinn gengur til stjómarsamstarfs skiptir þá máli úr hvorri fylkingu sjálfetæðismanna starfað er með, ef málefhagmndvöllur finnst? - Ég veit nánast ekkert um stefhu Borgaraflokksins. Ég er þeirrar skoð- unai' að Albert Guðmundsson hafi enga stefnu. Ég hef aldrei heyrt hann lýsa pólitískum hugmyndum, lesið eft- ir hann blaðagrein eða heyrt hann flytja ræðu um pólitik. Hann segist vera fyrirgreiðslumaður, sem ég kalla framsóknarmennsku. í kringum Al- bert er fólk eins og Júlíus Sólnes sem er frjálshyggju- og hægri maður og síðan hefur hann Aðalheiði Bjam- freðsdóttur sem er yfirlýst vinstri- manneskja. Verður einhver stefria úr þessu? Þetta em mínar efasemdir í bili. Mér sýnist stefhuskráin aðallega vera klippiverk úr stefhuskrám ann- arra flokka. Alþýðuflokkurinn þriðji hægri flokkurinn? Aðalsteinn Björnsson Reykjavik stjórnmála. Það getur hver maður spyr: séð sem kynnir sér stefnumál hans. Ef Alþýðuflokkurinn gengur til Við erum að því leyti við snertiflöt stjómarsamstarfe við Sjálfetæðis- Sjálfetæðisflokksins að við viljum flokkinn er þó ekki kominn þriðji draga úr ríkisafskiptum í atvinnulíf- hægri flokkurinn? »'u og efla hér markaðsbúskap og - Flokkar breyta ekki um eðli við samkeppni án ríkisforsjár. Þetta er að mynda stjóm. Alþýðuflokkurinn vegna þess að við erum baráttumenn myndi ekki breyta um eðli við að fyrir velferðarríki fólksins. Þetta er mynda stjóm með Sjálfstæðisflokkn- eina leiðin til að fá fjármuni til að um. Við búum í landi margflokka- efla hér velferðarríki sem hefur verið kerifis og samsteypustjórna. í hrörnun á undanfómum árum. Alþýðuflokkurinn er forystuafl Þannig að Alþýðuflokkurinn er af- vinstra megin við miðju íslenskra dráttarlaust jafhaðarmannaflokkur. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, á beinni línu DV. Við borðið eru einnig blaðamennirnir Kristján Már Unnarsson og Ólafur Jóhannsson og Ellert B. Schram ritstjóri. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.