Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 40
56 MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. Andlát Sr. Benjamin Kristjánsson er lát- inn. Guðjón J.S. Björnsson veggfóðrari lést 24. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram. Útför Páls Helgasonar, Hrafnistu, Hafnarfirði, sem andaðist 28. mars, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík kl. 15 miðvikudaginn 8. apríl. Útför Önnu Guðmundsdóttur, Hólavallagötu 7, fer fram frá Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 7. apríl nk. kl. 15. Kveðjuathöfn um Loft Loftsson kennara, Dvalarheimilinu Höfða, fer fram frá Akraneskirkju í dag, 6. apríl, kl. 13. Útförin fer fram frá kapellunni í Fossvogi þriðjudaginn 7. april kl. 10.30. Hrafnhildur Margrét Viggósdótt- ir, Álfhólsvegi 27, Kópavogi, andað- ist í Landakotsspítala sunnudaginn 29. mars. Útförin verður gerð frá 37 íí Í7 íí 37 37 Luxemborg Lykillinn að töfrum Evrópu. Þaö er margt að sjá og gera í stórhertogadæminu Luxemborg. Fagurt landslag, fornar byggingar, fjölbreytt menningarlíf, verslanir og veitingastaðir. ■^ofcjAavj Glæsilegt hótel og vel staösett í borginni. Heigarpakki: 3 dagar í Luxemborg fyrir aðeins 14.990 kr.* Súperpakki: Kostar litið meira, eða 16.050 kr* en býður upp á mikiu meira. Kynntu bér þessar sérlega hagstæðu Lúxemborgarferðir á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. #Gildir til I5.maí FLUGLEIDIR Fossvogskapellu þriðjudaginn 7. apríl kl. 15. Grétar Jóhannesson verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju í dag, mánudag 6. apríl, kl. 13.30. Sigurður Jónas Jónasson verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. apríl kl. 13.30. Ragnheiður Kristín Viggósdóttir, Laugavegi 50 B, lést á krabbameins- deild Landspítalans 21. mars. Jarðar- förin hefur farið fram. Tónlist Vortónleikar djassdeildar Tónlistarskóla F.Í.H. verða haldnir á Hótel Borg í kvöld, 6. apríl, kl. 20. Á tónleikunum koma fram 10 djasshljómsveitir skólans en þar á með- al er „Litla blúsbandið“. „Saxófónhljóm- sveitin Bjartsýnismenn, „Kvak-bandið", tvö gítarbönd og „Tilraunabandið“. Einn- ig kemur fram „Vélbandið" sem eingöngu er skipað tækjum og tólum en það mun leika tvær útsetningar nemenda. Sérstak- ur gestur kvöldsins verður Léttsveit Ríkisútvarpsins sem m.a. mun leika frum- samin verk eftir Stefán Hjörleifsson og Össur Geirsson en Össur tekur nú fyrstur nemenda lokapróf í djassfræðum frá Tón- listarskóla F.l.H. { Léttsveit Ríkisútvarps- ins eru margir núverandi og fyrrverandi kennarar skólans og er stjórnandi hennar Vilhjálmur Guðjónsson. yfírkennari djass- deildar. Kynnir á tónleikunum verður djasssögukennari skólans, Jón Múli Árna- son. Fundir Aðalfundur L.A.U.F. Landssamtök áhugafólks um flogaveiki (L.A.U.F.) eru 3 ára um þessar mundir. Gefinn hefur verið út fræðslubæklingur um flogaveiki í samvinnu við Landlæknis- embættið og er honum ætlað að. veita upplýsingar um flogaveiKi og gefa góð ráð hvernig bregðast eigi við fái einhver krampaflog. Nk. þriðjudag. 7. apríl, verður aðalfundur L.A.U.F. haldinn í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Fundurinn hefst kl. 20 og eru allir velkomnir. Fyrirlestur á vegum Rann- sóknarstofnunar uppeldis- mála Þriðjudaginn 7. apríl flytur Sigrún Guð- mundsdóttir M.A. fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar uppeldismála er nefnist: Kunnátta og kennsla: hlutverk „pedagogiskrar" fagþekkingar í kennslu. Fyrirlesturinn verður haldinn í Kennara- skólahúsinu við Laufásveg og hefst kl. 16.30. Öllum heimill aðgangur. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Lækjarfit 7, 1. hæð, Garðakaupstað, þingl. eign Fastkaupa, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 81. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Smáraflöt 26, Garðakaupstað, þingl. eign Gústafs Sófussonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Móaflöt 11, Garðakaupstað, þingl. eign Árna Gunnarssonar, fer fram á skrifstofu emþættisins að Strandgötu 31, Hafnar- firði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð sem auglýst var í 93., 100. og 104. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Barrholti 19, Mosfellslíreppi, þingl. eign Einars Egilssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á skrifstofu embættisins að Strand- götu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 16.15. ____________________ Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 93., 100. og 104. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Dvergholti 14, e.h., Mosfellshreppi, þingl. eign Olafs Jóhannsson- ar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 17.00. _____________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Arnartanga 14, Mosfellshreppi, þingl. eign Karls Friðriks Kristjánssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 9. apríl 1987 kl. 15.30. ________________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu í gærkvöldi Hreiðar Jónsson klæðskeri Þátturinn Irfnaði við Ég hlustaði á fréttimar yfir helgina og þá kom á daginn nokkuð sem mér kom á óvart því venjulega er sagt að allar fréttir séu slæmar fréttir en aftur á móti var þó nokkuð af góðum fréttum í þetta skiptið. Það náðust til dæmis samningar stórra hópa á vinnumarkaðinum, saltfisk- markaðurinn hefur aldrei verið eins góður og í ár, Flugleiðir opnuðu nýja leið til Boston sem ætti að vera okkur í hag, Iðnaðarbankinn sýndi mjög góða afkomu á árinu og sund- fólkið okkar setti ný Islandsmet sem er nokkuð góður árangur. Það var hörkukeppni í úrslita- þætti spumingakeppni fi-amhalds- skólanna hjá báðum liðum og athyglisvert var að það munaði ekki nema einu stigi hjá keppendunum. Þetta er allt glæsilegt ungt fólk og fór FB með sigur af hólmi. Kvikmyndin Sól og sandur var að mögu leyti sérkennileg mynd, tveim- ur tímum var blandað saman á Hreiðar Jónsson. skemmtilegan hátt og hafði ég gam- an af að horfa á þá mynd. Fréttimar á Stöð 2 fundust mér vera heldur stuttar í gærkvöldi og yfirleitt horfi ég lítið á Stöð 2. í gærkvöldi var þátturinn Geisli, sem mér finnst yfirleitt vera heldur bragðdaufur, en i gærkvöldi lifnaði hann þó við er Thor Vilhjálmsson og Hrafn Gunnlaugsson fóm að skiptast á skoðunum. Það var nokk- uð til í þessu hjá þeim báðum og gaman að hlusta á þá. Thor tók nú fulldjúpt í árinni og eins og hans er von og vísa en Hrafn benti honum á að bestu listamennimir væm ekki alltaf viðurkenndir meðan þeir væm á lífi og að margir góðir listamenn byrjuðu á lágu sviði. Franski framhaldsþátturinn Co- lette finnst mér að mörgu leyti vera skemmtilegur. Á eftir þeim þætti horfði ég á endursýningu á Eldsmið- inum sem var athyglisverð heimild- armynd og mjög góð sem slík. Stjórnarfundur Landsmáiafé- lagsins Varðar Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Landsmálafélagsins Varðar þriðjudaginn 31. mars 1987: „Landsmálafé- lagið Vörður lýsir yfir stuðningi við forystu flokksins og helstu stofnanir hans varðandi málefni Alberts Guðmundssonar og flokksstofnunar af hans hálfu. Ljóst er að um mjög vandasamt mál var að ræða og engir góðir kostir voru til staðar þegar til skamms tíma er litið. Vörður hvetur alla sjálfstæðismenn í Reykjavík að meta allar aðstæður með yfírveguðum hætti og fylkja sér órofa um lista Sjálfstæðisflokks- ins í næstu kosningum og tryggja þannig þá festu í íslenskum stjórnmálum sem Sjálfstæðisflokknum er einum treystandi fyrir.“ Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 7. apríl kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Gestur fundarins verður Kristín Guðmundsdóttir, formaður Bandalags kvenna í Reykjavík, og mun hún flytja erindi, þá verður tískusýning frá Elísubúðinni. Nýirfélagar velkomnir. SUS og SUJ halda kappræðu- fund á Hótel Borg Miðvikudaginn 8. apríl kl. 20.30 verður haldinn á Hótel Borg kappræðufundur milli Sambands ungra sjálfstæðismanna og Sambands ungra jafnaðarmanna. Þrír frummælendur verða frá hvorum aðilan- um. Fyrir hönd Sambands ungra sjálfstæð- ismanna mæta þau Sigurbjörn Magnússon, Sólveig Pétursdóttir og Árni M. Mathiesen en fyrir hönd Sambands ungra jafnaðarmanna þau Magnús Á. Magnússon, Guðmundur Árni Stefánsson og María Kjartansdóttir. Fundurinn skiptist niður í þrjár umferðir. I þeirri fyrstu fær hvor aðili 7 mínútna framsögu fyrir fyrsta mann, 6 mínútna fyrir annan mann og 5 mínútna framsögu fyrir þriðja mann. Að þessum framsögum loknum fær hvor aðili 2 mínútur til þess að spyrja hinn spjörunum úr og síðan verða báðum gefn- ar 10 mínútur til þess að svara spurning- um. I lokaumferðinni fær síðan hver framsögumaður fjórar mínútur. Hádegisverðarfundur presta verður í safnaðarheimili Bústaðakirkju í dag, 6. apríl. Samtök heilbrigðisstétta halda ráðstefnu í ráðstefnusal ríkisins að Borgartúni 6, 4. hæð, föstudaginn 10. apríl kl. 14. Efni ráð- stefnunnar verður Ný viðhorf í heilbrigð- ismálum. Ávörp flytja: Jón Bjarni Þorsteinsson, formaður S.H.S., og Ragn- hildur Helgadóttir heilbrigðismálaráð- herra. Framsöguerindi: Islensk heilbrigð- isáætlun: Páll Sigurðs$on ráðuneytis- stjóri; Framtíðin, hvert skal stefna í öldrunarþjónustu: Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur; Öldrunarþjónusta, viðhorf sjúkraliða: Ásta Sigurðardóttir sjúkraliði. Sjúkraþjónusta eða forvarnir: Bjarni Þjóðleifsson yfirlæknir; Viðhorf stjórnmálamanns: Guðrún Agnarsdóttir læknir; Nýir smitsjúkdómar: Sigurður B. Þorsteinsson læknir; Breytt vinnubrögð: Bergljót Halldórsdóttir kennslumeina- tæknir. Að framsöguerindum loknum verða opnar umræður. Stjóm S.H.S. hvet- ur alla aðildarfélaga til að fjölmenna. Ti]kyimingar Jóganámskeið Didi Susuma Acarya, sem er sérlærður jógakennari frá Filippseyjum og hefur margra ára reynslu að baki, verður með hagnýtt jóganámskeið fyrir konur. Þátt- takendum verða ky nntar slökunaraðferðir og hugleiðsla og rætt verður um skilning jóga á tilgangi andlegra æfmga. Einnig verður kennd matreiðsla á jurtafæði. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.30 og verður samtals í fjögur skipti, einu sinni í viku. Frekari upplýsingar fást í síma 27050. Bubbi Morthens í aðalviðtali Æskunnar 3. tbl. Æskunnar 1987 er komið út. Jens Kr. Guðmundsson ræðir við rokkkónginn Bubba Morthens í aðalviðtalinu. Bubbi er einnig á veggmyndinni, sem fylgir blað- inu, ásamt Ragnhildi Gísladóttur en þau sigruðu nýlega í vali lesenda Æskunnar á vinsælustu söngvurum og poppstjörnum sl. árs. Þetta er í fyrsta sinn sem Bubbi og Ragnhildur prýða saman veggmynd í íslensku tímariti. Æskan og hljómtækja- verslunin Steríó efna til myndagetraunar og hinn heppni hlýtur glæsilega hljóm- tækjasamtæðu frá Samsung að launum. Starfskynningin heldur áfram. Að þessu sinni er nám og starf lögreglumanns kynnt. Litið er inn í blindradeild Álftamýr- arskóla og rætt við tvo nemendur. Herdís Egilsdóttir sér um páskaföndur. Birtar eru myndir sem bárust í teiknisamkeppni Æskunnar og tryggingafélagsins Ábyrgð- ar hf. Iðunn Steinsdóttir er höfundur nýrrar sögu sem ber heitið Lóa litla rauð- hetta. Margt fleira skemmtilegt og spennandi efni er í blaðinu. Æskan er 56 síður að stærð, prentuð í Odda hf. en útgef- andi er Stórstúka íslands. Ritstjórar eru Eðvarð Ingólfsson og Karl Helgason. Styrkir úr Íslensk-ameríska listiðnaðarsjóðnum Þann 26. mars sl. var úthlutað tveimur styrkjum úr íslensk-ameríska listiðnaðar- sjóðnum, sem kenndur er við Pamelu Sanders-Brement, fyrrverandi sendiherra- frú. Styrkjunum fylgir námsdvöl við hinn þekkta listaskóla Haystack Mountain School of Crafts í Maine, Bandaríkjunum, á sumri komanda. Tíu íslenskir listamenn og hönnuðir í ýmsum greinum sóttu um styrkina. I ár urðu hlutskarpastar þær Guðrún Gunnarsdóttir veflistamaður og Guðrún Kristjánsdóttir, listmálari og pappírshönnuður. Hyggjast þær sækja námskeið í veflistum og pappírsgerð við Haystack skólann. í dómnefnd listiðnað- arsjóðsins eru Aðalsteinn Ingólfsson list- fræðingur, Bjami Daníelsson, skólastjóri MHl, og Kolbrún Björgólfsdóttir leirlista- maður. Kvæði Freysteins Gunnars- sonar Á þessu vori kemur væntanlega út endur- útgáfa af kvæðum Freysteins Gunnarsson- ar, skólastjóra Kennaraskóla íslands. Nemendum Freysteins, sem á lífi eru og til hefur náðst, hefur verið sent bréf um útgáfuna, sem er helguð minningu Frey- steins. Nöfn þeirra nemenda hans, sem vilja heiðra minningu hans með því að gerast áskrifendur að bókinni, verða birt í skrá framan við kvæðin. Mjög margir hafa þegar svarað bréfmu fyrir áður til- skilinn frest, en hér með er minnt á þetta aftur og skilafresturinn lengdur til 15. apríl nk. og þess vænst að allir þeir sem vilja eiga aðild að útgáfunni með fyrr- nefndum hætti svari fyrir þann tíma í síðasta lagi, svo að nöfn þeirra komist í skrána. Ekki hefur náðst til þeirra sem búa erlendis, en viti einhverjir um skóla- systkin þar væri þakkarvert ef þeim væri gert viðvart um þessa útgáfu. Allar upplýs- ingar veita Andrés Kristjánsson, sími 40982, Gils Guðmundsson, sími 15225, og Ragnar Þorsteinsson, sími 45067. Myndakvöld F.l. Ferðafélagið efnir til myndakvölds í Ris- inu, Hverfisgötu 105, miðvikudaginn 8. apríl kl. 20.30. Efni: 1. Tryggvi Halldórsson sýnir myndir frá Öskju, Kverkfjöllum, Snæfelli og víðar frá Austurlandi (ferð nr. 20 í ferðaáætlun). Einnig sýnir Tryggvi myndir frá Snæfellsjökli, áhugavert fyrir væntanlega farþega F.í. í páskaferð þang- að. 2) Þorsteinn Bjarnar sýnir myndir teknar í skíðagönguferð til Landmanna- lauga um páska 1986. Gott tækifæri fyrir þátttakendur í næstu páskaferð að kynna sér hvers er að vænta.. Veitingar í hléi. Aðgangur kr. 100. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Kynnist ferðum Ferðafé- lagsins hjá þeim sem farið hafa í ferðirnar. ATH. Kynning á Ferðafélaginu í máli og myndum í Gerðubergi 29. apríl nk. Starfsmannafélag Flensborg- arskóla lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur bóka- safnsfræðinga um bætt kjör. Lokun skólabókasafna hefur alvarleg áhrif á dag- legt skólastarf og prófundirbúning nemenda. Starfsmannafélagið skorar því á ríkisvaldið að ganga strax til samninga við bókasafnsfræðinga svo starfsemi skól- anna raskist ekki meira en þegar er orðið. Bókasafnsfræðingar í verkfalli Bókasafnsfræðingar, sem starfa hjá rík- inu, hófu verkfall 2. apríl sl. Verkfallið tekúr til 56 bókasafnsfræðinga sem starfa m.a. í framhaldsskólum, á Landsbóka- safni, Háskólabókasafni og Landspítalan- um og á hinum ýmsu opinberu stofnunum, s.s. Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og sjón- varpi, Iðntæknistofnun, Orkustofnun, Veðurstofu, Náttúrufræðistofnun og Ha- frannsóknastofnun. Bókasafn Landspítal- ans er lokað, bæði afgreiðsla og lestrarsal- ur. Þar fellur m.a. niður upplýsingadreif- ing til starfsmanna spítalans. Oft er þar um að ræða áríðandi upplýsingar í sam- bandi við störf lækna og annarra sérfræð- inga. Lestrarsalur Landsbókasafns er lokaður og vinna við íslenska bókaskrá liggur niðri. Á Háskólabókasafni fellur niður öll þjónusta við útibú safnsins. Á aðalsafni fellur niður skráning nýrra bóka og tímarita svo og tölvuleitir, safnkynn- ingar og bóka- og tímaritalán erlendis frá. Aðalsafni Háskólans er lokað kl. 17 i stað kl. 19 áður, nema les- og handbókasalur á 2. hæð. Á bókasöfnum stofnana fellur m.a. öll upplýsingaöflun og dreifing niður. Bókasöfn flestra framhaldsskólanna eru alveg lokuð. Á bókasöfnum nokkurra skóla eru lessalir opnir hluta úr degi en þjónusta bókasafnsfræðinga fellur niður. /-------------------------\ Ferðtt stundum á hausinn? Hundruð gangandi manna slasasl árlega í hálkuslysum. Á mannbroddum, ísklóm eða negldum skóhlífum ertu „svellkaldar/köld“. Heimsaektu skósmiðinn! ^ aar"* J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.